Námskrá yngsta stigsins
Einkunnarorð leikskólans eru;
hreyfing - lífsgleði - upplifun - virðing
Áhersluþættir
Námskráin byggir á þroska og getu nemenda deildarinnar.
Í fyrstu er lögð áhersla á að nemendur og kennarar kynnist sem best. Aðallega hefur það farið fram í gegnum leik og umönnun.
Markmiðið er að öllum líði vel, finni fyrir öryggi og að það ríki gleði inni á deildinni okkar.
Leikskilyrði og efniviður:
Mánavöllum er skipt í heimastofu, kubbastofu og leikstofu.
Í heimastofu er t.d. boðið upp á myndsköpun, leir og bækur. Þar snæða tveir hópar á matmálstímum
Í kubbastofu er boðið upp á einingakubba, pappakassa, legókubba risastóra og stóra. Þar snæðir einn hópur á matmálstímum
Í leikstofu er boðið upp á bolta, fatnað fyrir hlutverkaleikinn og þar fer fram ,,könnunarleikur" í hópastarfi.
Kennsluáætlun og dagskipulag Mánavalla
Ákveðinn rammi heldur utan um daglegt líf í leikskólanum sem við köllum dagskipulag. (Sjá dagskipulag)
Daglegt líf yngstu leikskólanema er endalaust nám og þekking sem vex með hverju nýju skrefi. Tveggja ára nemendur hafa mikla þörf fyrir að rannsaka og uppgötva á eigin spýtur hvernig hlutir haga sér í rými þegar þeir sjálfir stjórna þeim. Forvitnin og löngunin til að prófa eitthvað nýtt er mikil og mikilvægt að fá að endurtaka það oft og mörgum sinnum. Nemendur læra af athöfnum sínum að hugsa og öðlast sjálfstæða reynslu um sig og umhverfi sitt.
Námsvið leikskólans:
hreyfing, málrækt, tónlist, myndsköpun, náttúra og umhverfi, menning og samfélag.
Leikurinn:
Í gegnum hann þroskast nemendur, læra og þjálfa hæfileika sína best
Hreyfing.
Hreyfiþroskinn hefur mikilvægt gildi fyrir nemendur og undirstaða fyrir aðra þroskaþætti. Við leggjum mikla áherslu á að nemendur fái að hreyfa sig frjálst og óhindrað. Gott rými er inni á Mánavöllum til leikja og hreyfingar. Einnig er boðið upp á fjölbreytt skilyrði á útileiksvæðinu. Ýmsar stundir dagsins eru nýttar til hreyfinga daglega og oft á dag. (sjá vettvangsferðir).
Málrækt.
Við leggjum áherslu á málrækt í öllu okkar starfi og erum meðvituð um hversu stór þáttur það er. Því í frumbernsku er lagður grundvöllur að málþroska barna og öll okkar samskipti hvert við annað byggist á okkar ástkæra ylhýra máli. Kennarar leggja áherslu á að setja orð á allar afhafnir sem verið er að gera hverju sinni eins og t.d. í fataherberginu. Til að efla orðaforða og hljóðvitund nemenda er mikil áhersla lögð á lestur bóka, söng, loðtöflusögur og klappa nafn nemenda í atkvæði o.s.frv.
Tónlist.
Söngur er uppistaðan í tónlistarnámi nemenda. Við syngjum saman ýmis sönglög oft á dag s.s. hreyfisöngva og söngva með tákni. Í söngnum þjálfast málið, hlustun, taktur og hreyfing/dans. Einnig er mikið hlustað á tónlist af geisladiskum t.d. er spiluð slökunartónlist í hvíldinni.
Lífsleikni.
Markvisst er unnið að því að styrkja samhug og sjálfsmynd nemenda og hvetja þá til sjálfshjálpar. Það er m.a. gert með því að virða hvert annað og gleðjast saman.
Myndsköpun.
Í leikskólanum fer fram ýmis konar myndsköpun. Meginþáttur myndsköpunar er gleðin og ánægjan sem nemendur upplifa með því að skapa eitthvað sjálfir. Með myndsköpun er verið að efla fínhreyfingar og samhæfingu augna og handa. Einnig eru nemendur hvattir til að tjá sig um sköpun sína.
Náttúra og umhverfi.
Nemendur læra að bera virðingu fyrir umhverfi sínu með því að tína rusl og hlúa að gróðri leikskólans. Einnig læra þau að flokka lífrænan úrgang sem til fellur eftir máltíðir. Auk þess læra þau að nota umbúðir sem til falla frá eldhúsinu, í útiveru og myndsköpun.
Menning og samfélag.
Leikskólakennarar vekja athygli nemenda á umhverfi sínu til að þau geti lært að meta og þykja vænt um samfélagið sem þau búa í. Einnig læra nemendur að virða ólíka menningu og þjóðerni.
Hátíðir og hefðir.
Haldið er upp á afmæli hvers nemenda fyrir sig með því að gera daginn sérstakan. Afmælisbarnið má hafa með sér veitingar til að bjóða upp á í samráði við kennara. Sælgæti er ekki æskilegt. Haldið er upp á ýmsa hátíðisdaga með skemmtilegri tilbreytingu (nánari upplýsingar í leikskólanámskrá Tjarnarsels).
Foreldrasamtöl.
Foreldrasamtöl eru einu sinni á ári, í afmælismánuði nemanna. Foreldrar geta óskað eftir viðtölum á öðrum tímum í samráði við deildarstjóra.
Starfsáætlun fyrir hópastarfið í vetur
Á Mánavöllum eru 19 leikskólanemendur og fimm kennarar. Hóparnir eru fjórir og eru 5 nemendur og einn hópstjóri í hverjum hóp.
Hópastarfið:
Í hópastarfi er áhersla lögð á að æfa nemendur í tillitssemi og að rækta vináttu á milli félaganna í hópnum. Einu sinni í viku er farið í ,,könnunarleikinn", einingakubba og vettvangsferðir.
Einingakubbar:
Kubbarnir eru úr tré, af mörgum stærðum og gerðum. Þeir bjóða upp á óendanlega möguleika í byggingum og eru námsþættir þeirra margir. Fyrsta leikskólaárið fá 2ja til 3 ára nemendur eingöngu þrjár gerðir af kubbum. Smátt og smátt bætast fleiri gerðir við eftir því sem þeir færast á milli deilda.
Könnunarleikur:
Í könnunarleiknum er verið að leika sér með fjölbreytta og hversdagslega hluti og ílát s.s. plast- og og áldósir, pappahólka í mismunandi stærðum og gerðum, keðjur, lykla, dósalok, efnisbúta og korktappa. Nemendurnir skoða hlutina á opin hátt og engin niðurstaða er ,,rétt" eða ,,röng". Þessir hlutir færa ungum nemendum þá reynslu að möguleikar þeirra séu óþrjótandi.
Vettvangsferðir:
Við leggjum mikla áherslu á vettvangsferðir í leikskólanum. Í vettvangsferðunum fer fram markviss og fjölbreytt hreyfing í bland við uppgötvunarnám og leikir fyrir nemendur og kennara. Fyrstu vettvangsferðir 2ja og 3ja ára nemenda er að kanna nánasta umhverfi, sem er leikskólinn sjálfur. Þegar líða tekur á önnina förum við að færa okkur út fyrir skólann og skoðum nánasta umhverfi hans. Smátt og smátt eykst þolið hjá nemendum og ferðirnar lengjast.
Kær kveðja kennarar Mánavalla