Megináhersla er lögð á vettvangsferðir, umhverfismennt, leiktilboð með opinn efnivið og bjóða nemendum upp á lestrarhvetjandi umhverfi. Til að fylgja þeim eftir er m.a. nemendum boðið daglega upp á valtíma fyrir og eftir hádegi. Einnig eru áhersluþáttunum fylgt eftir með því að fara í hópastarf fjóra daga vikunnar í kynjaskiptum hópum, ef hægt er að koma því við.
Vettvangsferðir
Tvisvar til þrisvar sinnum í viku förum við í vettvangsferðir vítt og breytt um bæinn. Stundum fer öll deildin saman og einnig er farið í smáum hópum. Mest er farið í Vatnsholtið, einnig Hrauntúnsholtið, gamli bærinn mikið skoðaður og farnar mismunandi leiðir að sjómannamerkinu.
Málrækt og markviss málörvun
Samræður
Nemendur eru hvattir til að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir þar sem það á við. Leikskólakennarinn er fyrirmynd þeirra og leggur áherslu á samræður og virka hlustun. Hann hagar orðavali sínu eftir þroska og aldri einstaklinganna í hópnum. Hann spyr opinna spurninga og hvetur nemendur til að segja frá eigin brjósti og til að standa fyrir framan litla hópa.
Lestur bóka/kenndar þulur, rím og ljóð
Daglega er boðið upp á lestrarstundir. Í samverustundum er mikið lesið, kennd kvæði og þulur. Hvíldarstund dagsins er oft nýtt til að hlusta á sögur og leikrit af hljóðsnældum og geisladiskum. Auk þess eru sagðar sögur með hjálp loðtöflu og myndvarpa.
Bókasafnið
Nemendur hafa frjálsan aðgang að bókasafni skólans og er aðgengi gott. Þeir geta tyllt sér í notalegan sófa eða hægindastóla við bókasafnið eða farið með bækurnar inn á deildirnar. Reglulega er farið í bókasafn Reykjanesbæjar m.a. í sögustundir og nemendur fá að velja bækur sem fara til útláns í leikskólann sem þau skila að lestri loknum.
Ritmálið
Til að vekja enn frekar áhuga nemenda á lestri er ritmálið gert sýnilegt inni á deildinni með margvíslegum hætti. Sama letrið ,,Skriftís" er notað í allar merkingar.
Dæmi um sýnilegt ritmál:
. áhöld og hlutir í hillum
. nöfn nemenda eru uppi á vegg á deildinni
. fatahólfin eru merkt nöfnum nemenda og foreldra
. dagatal hangir uppi á vegg með nöfnum daga, mánaða og dagsetningum
. bókaormur er útbúinn af nemendum þar skrifuð er nafn sögu sem lesin hefur verið.
Söngur
Mikið er sungið á Ljósvöllum og í leikskólanum öllum. Daglega er sungið í samverustundum og nemendur hvattir dáða og frumkvæðis og syngja fyrir félagana á deildinni. Sameiginlegar söngstundir eru einu sinni í viku, á föstudögum. Þá fara Ljósvallanemar og bjóða nemendum af yngri deildum með sér í söngstund og leiðast allir fallega, í sal.
Tölvur
Tölvuforritin sem nemendum er boðið upp á eru flest ætluð til að þjálfa bókstafi, hugtök og form. Nemendur Sunnu- og Ljósvalla hafa aðgang að tveimur tölvum, á valtíma tvisvar á dag.
Kennsluáætlun og dagskipulag Ljósvalla
Fyrst á morgnana á milli kl. 7:30 - 9:00 þegar börnin eru að tínast eitt af öðru í leikskólann hafa þau val um að borða strax morgunverð, skoða bækur, hlusta á sögu, teikna og skrifa.
Morgunverður: Börnin setjast eitt af öðru við morgunverðarborðið ásamt einum kennara og æfa sjálfshjálp og borðsiði (kurteisi og tillitsemi).
Lestrarkrókur:
Þar æfa börnin sig í að skoða og handfjatla bækur undir umsjón kennara. Þar hafa þau val um að vera ein eða með öðrum börnum (deila saman).
Skriftar/teiknikrókur:
Þróa teikningar og stafagerð. Æfing í að meðhöndla blýanta, ná tökum á réttu gripi sem og að draga rétt til stafs. Efniviður: blýantar, trélitir og blöð.
Vina/valfundur á milli kl. 8:45-9:15 og kl. 14:15-14:45 - Markviss málörvun.
Áður en hið eiginlega val hefst þá er vinafundur þar sem við syngjum, förum með kvæði og þulur og eitt og annað fróðlegt er rætt svo sem hvaða dagur og mánuður er hverju sinni. Þá er einnig kannað hverja vantar í hópinn (sunginn vinasöngur fyrir þau börn) og farið yfir þær reglur sem barnahópurinn hefur sett saman ásamt kennurum. Dyggðir æfðar svo sem kurteisi, hlýðni og prúðmennska. Hvert og eitt barn fær tækifæri til að æfa sig í framsögn með því að segja frá einhverju sem það hefur upplifað og vill deila með vinum sínum og á meðan æfa hin sig í hlustun, prúðmennsku og þolinmæði. Val á milli króka tekur síðan mjög stutta stund þar sem það byggir á skipulögðu kerfi sem börnin eru orðin þjálfuð í. Það ber að taka fram að þessi æfing í að velja hefur markvisst eflst með degi hverjum.
Það sem er í boði að velja um er:
. Tölva: Þar er boðið upp á fjölbreytt efni sem undirbýr börnin m.a. undir stærðfræði og lestur.Við þjálfum móðurmálið, bókstafi, hugtök, form, fjölda í gegnum valin forrit og þar ber helst að nefna forritin Glói geimálfur, Bogi blýantur, Reiknibílinn, Veröldin okkar, Leikverið, Tölvubiblía barnanna og Leikskólaleikinn.
. Listasmiðja: Í listasmiðju skapa börnin á eigin forsendum úr þeim efnivið sem fyrir er. Börn og foreldrar hafa safnað og komið með í skólann efnivið sem börnin endurvinna á skapandi hátt. Ítarefni: Skæri, lím, litir, penslar o.fl. eru til staðar í hillum í þeirra hæð.
. Leirkrókur: Þar æfa/þjálfa börnin sig í fín- og grófhreyfingum með efnivið sem gott er að móta úr og skapa eitt og annað. Ítarefni: Kleinujárn, kökukefli, litlir hnífar og gafflar (úr plasti). Börnin bregða á leik og fara í hin ýmsu hlutverk (hlutverkaleikir/ímyndunarleikir) svo sem að vera bakari, kokkur o.fl.
. Skólakrókur: (Börnin völdu sjálf þetta nafn á krókinn). Þar æfa börnin sig í að skrifa og meðhöndla blýanta. Þau æfa sig í að draga rétt til stafs. Þau spil sem eru í boði eru annars vegar stafaspilið Rummikubb og hins vegar spil sem byggir einnig á litlum og stórum stöfum sem raða má í orð. Einnig má spila þetta spil með sama hætti og samstæðuspil, minnisspil eða veiðimann þar sem tvö spil eru alveg eins. Í þessum krók eru börnin ein og sér eða með öðrum börnum að leita að stöfum í nafninu sínu eða pabba og mömmu og raða síðan rétt saman. Bækur með skýrum bókstöfum eru einnig vinsælar í þessum krók.
. Holkubbar: Þar æfast börnin í rökhugsun og stærðfræðilegum skilningi, þar sem börnin þurfa að finna út stærð og hlutföll við byggingar. Félagsþroski þeirra eflist, þar sem í þessum krók reynir á samvinnu og samhæfni barnanna sem og sköpunargleði þeirra. Ítarefni: Borðbúnaður þ.e. glös, diskar, hnífapör og pottar, einnig teppi og púðar.
. Einingakubbar: Þar æfast börnin einnig í rökhugsun og stærðfræði. Félagsþroski eflist í formi samskipta og samvinnu. Viðbótarefni: Dýrin, efnisbútar, blýantar og blöð til að merkja byggingar.
. Legókubbar: Æfa fínhreyfingar og einbeitingu, samvinna og samskipti eflast.
. Salur: Eflir grófhreyfingar og hreyfiþörf fær útrás.
Hópastarf: Fjóra daga í viku um klukkustund í senn frá 10:00-11:00 er hópastarf og eru börnin þessa stund í smærri hóp þ.e. frá 5-7 börnum og einum kennara (hópstjóra). Það sem verið er að æfa/styrkja frekar er í grundvallaratriðum sjálfsmynd barnsins. Það að breyta deildum í aldurskiptar deildir gefur sjálfkrafa möguleika á að börnin vinni markvisst að ákveðnum verkefnum sem hæfa aldri þeirra og þroska. Hópastarf þar sem börnin fá tækifæri til að dvelja aðeins færri í hóp gefur fyrst og fremst viðkomandi hópstjóra möguleika á að styrkja enn betur ákveðna þætti hjá hverju barni fyrir sig, sem þeim hefur ekki tekist að æfa með hópnum í heild. Unnið er markvisst að vettvangsferðum í leikskólanum okkar, þar sem náttúrufræði, sagnfræði, samfélagsfræði, umferðarfræðsla, lífsgleði og hreyfing fær að njóta sín (sjá handbók leikskólans ,,Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans").
Útivera/frímínútur eða vinafundur kl. 11:00-11:30 - Markviss málörvun.
Hádegisverður kl: 11:30-12:00.
Börnin sitja við fjögur borð meðan á hádegisverði stendur og eiga þau hver sitt sæti ásamt kennara. Börnin leggja til skiptis á borð og eru þau þá hlutverki umsjónarmanns. Í því hlutverki felst að telja hvað þarf marga diska, hnífapör og glös og mínusa frá ef ekki eru allir mættir. Meðan börnin leggja á borð eitt barn fyrir hvert borð, þá eru hin í heimakróki ásamt kennara í gagnlegum samræðum. Þegar búið er að bjóða til sætis þá byrjar umsjónarmaður fyrstur og síðan koll af kolli. Borðsiðir eru virtir og æfðir og sjálfshjálp einnig.
Hvíld/samvera kl. 12:30 - 13:00 - Markviss málörvun.
Börnunum er skipt upp í tvo hópa og þá les kennari framhaldssögu (gagnvirkur lestur), hlustað er á tónlist eða sögu í hljómflutningstæki, teiknað eða skrifað.
Útivera/frímínútur kl. 13:00-14:20
Með markvissri útiveru á hverjum degi tryggjum við að börnin fái hreyfingu og ferskt andrúmsloft.
Vinafundur/val kl: 14:30 - 14:45 (ath. sjá ofar).
Síðdegishressing, kl: 14:45-15:15, ath. sjá morgunverð.
Val, kl: 14:45-15:50
Ávaxtatími kl: 16:00
Frístund (spil, leikir, lestur) kl: 16:00-17:15 - leikskólinn lokar.
Starfsfólk Ljósvalla