Áhersluþættir leikskólans
Megináhersla er lögð á vettvangsferðir, umhverfismennt, leiktilboð með opinn efnivið og bjóða nemendum upp á lestrarhvetjandi umhverfi. Til að fylgja þeim eftir er m.a. nemendum boðið daglega upp á valtíma fyrir og eftir hádegi. Einnig eru áhersluþáttunum fylgt eftir með því að fara í hópastarf fjóra daga vikunnar kynjaskiptum hópum, ef hægt er að koma því við (sjá nánar í dagskipulagi).
Vettvangsferðir
Tvisvar í viku förum við í vettvangsferðir.
Málrækt og markviss málörvun
Samræður
Nemendur eru hvattir til að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir þar sem það á við. Leikskólakennarinn er fyrirmynd þeirra og leggur áherslu á samræður og virka hlustun. Hann hagar orðavali sínu eftir þroska og aldri einstaklinganna. Spyr opinna spurninga og hvetur nemendur til að segja frá eigin brjósti.
Lestur bóka/kenndar þulur, rím og ljóð
Daglega er boðið upp á lestrarstundir. Í hvíldarstund dagsins hlustum við á sögur og leikrit af hljóðsnældum og geisladiskum. Auk þess eru sagðar sögur með hjálp loðtöflu, myndvarpa og handbrúða.
Bókasafnið
Nemendur hafa frjálsan aðgang að bókasafni skólans og er aðgengi gott. Þeir geta tyllt sér í notalegan sófa eða hægindastóla við bókasafnið eða farið með bækurnar inn á deildir.
Ritmálið
Til að vekja áhuga nemenda á lestri er ritmálið gert sýnilegt inni á deildinni með margvíslegum hætti. Sama letrið ,,Skriftís" er notað í allar merkingar.
Dæmi um sýnilegt ritmál:
. áhöld og hlutir í hillum
. nöfn nemenda eru uppi á vegg inni á deildinni
. fatahólfin eru merkt nöfnum nemenda og foreldra þeirra
. dagatal hangir uppi á vegg með nöfnum daga, mánaða og dagsetningum
. veggspjöld með bókstöfum hangir á áberandi stað á deildinni.
Söngur
Mikið er sungið á Sólvöllum. Daglega er sungið í samverustundum og nemendur hvattir til dáða og frumkvæðis að syngja fyrir félagana á deildinni. Sameiginlegar söngstundir eru á föstudögum. Þá hittum við nemendur af öðrum deildum, syngjum saman, fyrir aðra og lærum söngva af öðrum.
Tölvur
Tölvuforritin sem nemendum er boðið upp á eru flest ætluð til að þjálfa bókstafi, hugtök og form. Nemendur Sólvalla hafa aðgang að tölvunni á valtíma fyrir og eftir hádegi