Námskrá Sunnuvalla
Áhersluþættir leikskólans
Megináhersla er lögð á vettvangsferðir, umhverfismennt, leiktilboð með opinn efnivið og bjóða nemendum upp á lestrarhvetjandi umhverfi. Til að fylgja þeim eftir er m.a. nemendum boðið daglega upp á valtíma fyrir og eftir hádegi. Einnig eru áhersluþáttunum fylgt eftir með því að fara í hópstarf fjóra daga vikunnar í kynjaskiptum hópum, ef hægt er að koma því við. Nánar upplýsingar er að finna í kaflanum ,,Námskráin fléttast inn í daglegt líf Sunnuvalla" neðar á blaðsíðunni.
Vettvangsferðir
Meginmarkmið vettvangsferðanna
. Að börnin verði meðvitaðri um umhverfi sitt og þá möguleika sem það býður upp á, til gagns og gamans.
. Að börn læri á áþreifanlegan hátt að bera virðingu fyrir umhverfi sínu, hvar sem þau eru.
. Að gefa leikskólabörnum tækifæri til að takast á við hættur í umhverfinu.
. Að starfsfólk geti nýtt sér vettvangsferðir um opin svæði bæjarfélagsins sem leið til náms og uppgötvunar í leikskólauppeldi.
. Að færa hluta af uppeldisstarfinu út fyrir leikskólann sjálfan.
. Að njóta lífsgleði og hreyfingar í öllum veðrum.
. Að gera leikskólastarfið sýnilegra.
. Vettvangsferðirnar veita börnunum ómælda útrás í leik og starfi og eru möguleikarnir óþrjótandi. Í ferðunum er hægt að vinna markvisst með ákveðna þætti sem styrkja þarf innan hópsins.
. Það er reynsla hópstjóra að líkamsþrek og þol barna aukist smátt og smátt með markvissum vettvangsferðum. Einnig að vináttubönd styrkjast og blómstra í vettvangsferðum. Í hverri vettvangsferð um bæjarfélagið fá börnin grenndarfræðslu, sem styrkir þau í að þekkja og lesa sitt nánasta umhverfi og á vonandi eftir að nýtast þeim á næsta skólastigi.
. Nemar á elstu deildinni eru orðin reynslumikil í vettvangsferðum og fara orðið vítt og breytt um bæinn sinn. Má þar nefna; Vatnsholtið, Nónvörðuna, Hrauntúnsholtið, smábátahöfnina og hellinn þar, fjöruna í Innri Njarðvík, Stekkjarkot og tröllin í bænum eru einnig skoðuð.
Málrækt og markviss málörvun
Samræður
Nemendur eru hvattir til að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir þar sem það á við. Leikskólakennarinn er fyrirmynd þeirra og leggur áherslu á samræður og virka hlustun. Hann hagar orðavali sínu eftir þroska og aldri einstaklinganna í hópnum. Hann spyr opinna spurninga og hvetur nemendur til að segja frá eigin brjósti og til að standa fyrir framan litla eða stóra hópa og flytja eitthvað frá eigin brjóst.
Lestur bóka/kenndar þulur, rím og ljóð
Daglega er boðið upp á lestrarstundir. Framhaldssaga er lesin á morgnana einn kafli í senn. Einnig fá þau smá kynningu á rithöfundi bókarinnar sem verið er að lesa. Í samverustundum er mikið lesið, kennd kvæði og þulur. Hvíldarstund dagsins er oft nýtt til að hlusta á sögur og leikrit af hljóðsnældum og geisladiskum. Auk þess eru sagðar sögur með hjálp loðtöflu og myndvarpa.
Bókasafnið
Nemendur hafa frjálsan aðgang að bókasafni skólans og er aðgengi gott. Þeir geta tyllt sér í notalegan sófa eða hægindastóla við bókasafnið eða farið með bækurnar inn á deildirnar. Reglulega hefur verið farið með elstu börnin í bókasafn Reykjanesbæjar m.a. í sögustundir og nemendur fá að velja bækur sem fara til útláns í leikskólann sem þau skila að lestri loknum. Einnig fara þau í bókasafn Myllubakka- og Holtaskóla í samráði við bókasafns- og upplýsingafræðinga. Er þetta einn liður í að undirbúa þau fyrir komandi grunnskólagöngu.
Lestrarnámskeið
Nemendum elsta stigsins er boðið upp á 10 vikna lestrar- og skriftarnámskeið í lok janúar eða byrjun febrúar. Kennt er fjóra daga vikunnar og hver lestrarstund er 1/2 klst. Kennt er í 7 - 10 barna hópum. Þar sem um er að ræða einstaklingsmiðað nám eru tveir til þrír leikskólakennarar í lestrarstund. Hver stund fylgir nokkurn veginn sama munstri sem börnin fara að þekkja þegar líða tekur á námskeiðið.
Hver nemandi fær möppu með lestrarheftum, ritföngum og umslögum sem þau safna í sér- og samhljóðum. Nemendur fara með námsgögnin sín heim sem er liður í að þjálfa þau fyrir næsta skólastig. Þau mega læra heima ef löngunin er til staðar.
Fyrir lestrarnámskeiðið er foreldrum boðið á kynningarfund þar sem farið er yfir hugmyndafræði og leiðir sem eru farnar. Þátttaka foreldra felst í því að fylgjast með daglegu námi barnsins og að sjá til þess að þau komi með námsgögnin í leikskólann.
Ritmálið
Til að vekja enn frekar áhuga nemenda á lestri er ritmálið gert sýnilegt inni á deildinni með margvíslegan hætti. Sama letrið ,,Skriftís" er notað í allar merkingar.
Dæmi um sýnilegt ritmál:
. Áhöld og hlutir í hillum
. Nöfn nemenda eru upp á vegg inni á deildum
. Fatahólfin eru merkt nöfnum nemenda ásamt myndum af þeim
. Dagatal hangir uppi á vegg með nöfnum daga, mánaða og dagsetningum
. Bókaormur útbúin af nemendum sem skrifa þær framhaldsögur á hringlaga form sem lesnar eru yfir árið
. Vasateppi (Ótrúleg eru ævintýrin) sem sett er í textastrimlar með ljóðum og stefum úr ævintýrum. Námsefni sem leikskólakennarar nota til að kenna tengsl á milli tal- og ritmáls. Einnig til að kenna grunnhugtök lestrarnáms s.s. lesáttina, orð, setning og fremst og aftast í orði og setningu.
Söngur
Mikið er sungið í leikskólanum okkar. Daglega er sungið í samverstundum og nemendum hvattir til dáða og frumkvæðis og syngja fyrir félagana á deildinni. Sameiginlegar söngstundir eru einu sinni í viku, á föstudögum. Þá hittast börn af öllum deildum og taka lagið saman.
Tölvur
Tölvuforritin sem nemendum er boðið upp á eru flest ætluð til að þjálfa bókstafi, hugtök og form. Nemendur Sunnu- og Ljósvalla hafa aðgang að tveimur tölvum, á valtíma, tvisvar sinnum á dag.
Athugun og mat
Á haustin er tekið stöðupróf á nemenda í almennum þroska. Til þess er notaður atferlisathugunarlisti/gátlisti sem fræðsluskrifstofan útbjó í samráði við leikskólana í Reykjanesbæ. Einnig er Hljómpróf-2 lagt fyrir þau sem er ætlað að meta hljóðkerfisvitund nemenda á leikskólaaldri. Á vorönn er prófið endurtekið á nemendum sem komu út með slaka útkomu.
Í janúar taka nemendur hluta af Yfirlitsprófi í lestri og skrift sem gefur yfirlit á getu þeirra til að tengja saman hljóð og bókstafi. Prófið er endurtekið að lestrarnámskeiði loknu í apríllok.
Samstarf skólastiganna
Á síðustu árum hefur samstarfið á milli skólastiga verið að aukast. Heimaskóli Tjarnarsels er Myllubakkaskóli sem er næsti grunnskóli við leikskólann. Einnig er skólinn í nánu samstarfi við Holtaskóla, þar sem nemendur leikskólans dreifast á þessa tvo skóla. Deildarstjóri elsta stigsins í Tjarnarseli og deildarstjórar Myllubakka- og Holtaskóla funda á haustmánuðum til að ákveða tilhögun samstarfsins á komandi skólaári. Samstarfið byggist á gagnkvæmum heimsóknum kennara og nemenda. Eftir áramótin fara leikskólanemendur í fjórar heimsóknir ca. einu sinni í mánuði fram á vorprófi grunnskólanemenda. Í fyrstu heimsókninni fá þau kynningu á skólabyggingunni. Í annarri heimsókn fara þau í kennslustund með yngsta stiginu. Í þriðju heimsókninni fara þau í bókasafnstíma og þeim síðasta fara þau í íþróttatíma.
Lestrarmenning Reykjanesbæjar
Leikskólinn tekur þátt í þróunarverkefni á vegum Reykjanesbæjar sem ber yfirskriftina Lestarmenning í Reykjanesbæ og hófst formlega 8. apríl 2003. Verkefnið er þriggja ára samfélagslegt þróunarverkefni sem nær til leik- og grunnskóla, bókasafns, fjölskyldu og félagsþjónustu, menningar- og tómstundastarfs, verkalýðsfélaga, fyrirtækja og samtaka hér í bæ.
Aðkoma okkar að verkefninu er með þeim hætti að lestur bóka er sett í forgang. Nemendum eru boðið upp á sögustundir tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Einnig hafa þau greiðan aðgang að bókum.
Kennsluáætlun og dagskipulag Sunnuvalla
Morgunstund 7:45- 9:00
Þegar börnin eru að tínast eitt af öðru í leikskólann hafa þau val um að borða strax morgunverð, skoða bækur, teikna/skrifa eða fara í lestrarhornið og hlusta á einn af kennurum deildarinnar lesa framhaldssögu.
Morgunverður: Börnin setjast eitt af öðru við morgunverðarborðið ásamt einum kennara og æfa sjálfshjálp,borðsiði (kurteisi og tillitsemi) og að ganga frá eftir sig.
Lestrarkrókur: Þar æfa börnin sig í að skoða og handfjatla bækur undir umsjón kennara. Þar hafa þau val um að vera ein eða með öðrum börnum (deila saman).
Skriftar/teiknikrókur: Þróa teikningar og stafagerð. Æfing í að meðhöndla blýanta, ná tökum á réttu gripi sem og að draga rétt til stafs. Efniviður: blýantur, trélitir og blöð.
Lestrarhorn: Kennarar lesa framhaldssögu. Kynntir eru höfundar bókanna, hverjir myndskreyta og síðan er farið í söguþráð. Einn til tveir kaflar lesnir í hvert sinn og fyrri kaflar rifjaðir upp, sem kemur sér vel þar sem ný börn bætast oft í hópinn ef þau hafa valið annan krók deginum áður. Einstök orð rædd og útskýrð í samvinnu við börnin. Börnin eru spurð hvað hafi komið í ljós í fyrri kafla, því oft er spennan mikil þegar lestri þarf að hætta hverju sinni. Börnin þjálfast í að endursegja sögu og greina aðalatriði frá aukaatriðum. Þetta er undirbúningur og æfing í gagnvirkum lestri.
Vina- og valfundur á milli kl: 8:45-9:15 og kl: 14:15-14:45
Markviss málörvun.
Áður en hið eiginlega val hefst þá er vinafundur þar sem við syngjum, förum með kvæði og þulur og eitt og annað fróðlegt er rætt svo sem hvaða dagur og mánuður er hverju sinni. Þá er einnig kannað hverja vantar í hópinn (sunginn vinasöngur fyrir þau börn) og farið yfir þær reglur sem barnahópurinn hefur sett saman ásamt kennurum. Dyggðir æfðar svo sem kurteisi, hlýðni, prúðmennska. Hvert og eitt barn fær tækifæri til að æfa sig í framsögn með því að segja frá einhverju sem þau hafa upplifað og vilja deila með vinum sínum og á meðan æfa hinir sig í hlustun, prúðmennsku og þolinmæði. Val á milli króka tekur síðan mjög stutta stund þar sem það byggir á skipulögðu kerfi sem börnin eru orðin þjálfuð í. Það ber að taka fram að þessi æfing í að velja hefur markvisst eflst með degi hverjum.
Í boði eru margir skemmtilegir og krefjandi krókar
Tölva: þar er boðið upp á fjölbreytt efni sem undirbýr börnin m.a. undir stærðfræði og lestur. Þar ber helst að nefna forritin Glói geimvera, Bogi blýantur, Reiknibílinn, Veröldin okkar, teikniforritið Kid Pix, Króni og Króna, Stafakarlarnir, Snót og Snáði, Frá A til Ö og Undur líkama míns.
Listasmiðja: Í listasmiðju skapa börnin á eigin forsendum úr efnivið sem tilfellur í eldhúsi, frá fyrirtækjum og það sem foreldrar og börn hafa safnað heima og komið með í leikskólann.
Fylgihlutir: skæri, lím, litir, penslar og fl. eru til staðar í hillum í þeirra hæð.
Leirkrókur: Þar æfa/þjálfa börnin sig í fín- og grófhreyfingum með efnivið sem gott er að móta úr og skapa eitt og annað. Fylgihlutir: kleinujárn, kökukefli, litlir hnífar og gafflar (úr plasti), plastform, hvítlaukspressur og litlar trésleifar. Börnin bregða á leik og fara í hin ýmsu hlutverk (hlutverkaleikir/ímyndunarleikir) svo sem að vera bakari, kokkur.
Skólakrókur: Þar æfa börnin sig í að skrifa og meðhöndla blýanta. Þau æfa sig í að draga rétt til stafs. Þau spil sem eru í boði eru annars vegar stafaspilið Rummikub og hins vegar spil sem byggir einnig á litlum og stórum stöfum sem raða má í orð. Einnig má spila þetta spil með sama hætti og samstæðuspil, minnisspil eða veiðimann þar sem tvö spil eru alveg eins. Í þessum krók eru börnin ein og sér eða með öðrum börnum að leita að stöfum í nafninu sínu eða pabba og mömmu og raða síðan rétt saman. Flettitafla er einnig í boði í þessum krók og eru þau mjög upptekin af að skrifa á hana það sem þau sjá ritað í umhverfinu. Bækur með skýrum bókstöfum eru einnig vinsælar í þessum krók.
Holkubbar: Þar æfast börnin í rökhugsun og stærðfræðilegum skilningi, þar sem börnin finna út stærð og hlutföll við byggingar. Félagsþroski þeirra eflist, þar sem í þessum krók reynir á samvinnu og samhæfni barnanna sem og sköpunargleði þeirra.
Fylgihlutir: borðbúnaður þ.e. glös, diskar, hnífapör og pottar einnig teppi og púðar.
Einingakubbar: Þar æfast börnin í rökhugsun og stærðfræðilegum skilningi, félagsþroski eflist í formi samskipta og samvinnu.
Fylgihlutir: Dýr, efnisbútar, blýantar og blöð til að merkja byggingar.
Legókubbar: Æfa fínhreyfingar og einbeitingu, samvinna og samskipti eflast.
Salur: Eflir grófhreyfingar og hreyfiþörf fær útrás.
Hópastarf
Fjóra daga í viku frá kl 10:00-11:30 er hópastarf og eru börnin þessa stund í smærri hópum þ.e. frá 8-10 börn og einn kennari (hópstjóri). Unnið er markvisst að vettvangsferðum í hópastarfinu, þar sem náttúrufræði, sagnfræði, samfélagsfræði, umferðarfræðsla, lífsgleði og hreyfing fær að njóta sín. En nánar er hægt að lesa um hópastarf í Handbók leikskólans.
Í hópastarfi er meðal annars verið að æfa/styrkja sjálfsmynd barnsins.
Það að breyta deildum í aldursskiptar deildir þar sem börn eru á sama aldri eins og í hefðbundnum bekkjardeildum í grunnskóla gefur sjálfkrafa möguleika á að börnin vinni markvisst að ákveðnum verkefnum sem hæfa aldri þeirra og þroska. Börnin fá tækifæri til að dvelja aðeins færri í hóp gefur fyrst og fremst viðkomandi hópstjóra möguleika á að styrkja enn betur ákveðna þætti hjá hverju barni fyrir sig, sem þeim hefur ekki tekist að æfa með hópnum í heild.
Útivera/frímínútur eða vinafundur kl. 11:30-12:00
Hádegisverður kl. 12:00-12:30
Börnin sitja við fjögur borð meðan á hádegisverði stendur og eiga þau hver sitt sæti ásamt kennara. Börnin leggja á borð til skiptis og eru þau þá í hlutverki umsjónarmanns. Í því hlutverki felst að telja hvað þarf marga diska, hnífapör og glös, oft þarf að draga frá ef ekki eru allir mættir. Meðan börnin leggja á borð (eitt barn fyrir hvert borð), þá eru hin í heimakrók ásamt kennara í gagnlegum samræðum. Þegar búið er að bjóða til sætis þá byrjar umsjónarmaður fyrstur og síðan koll af kolli. Borðsiðir virtir og börnin æfa sig í að skammta sjálf á diskana sína.
Hvíld/samvera kl. 12:30-13:00
Markviss málörvun: Börnum er skipt í tvo hópa eða eru öll saman. Þá er meðal annars lesin saga (gagnvirkur lestur), hlustað á tónlist eða sögu úr hljómflutningstæki, teiknað eða skrifað. Við æfum hljóðkerfisvitund barnanna með því að nota námsgögn eins og Tölum saman og Hljóðkerfisvitund/spil.
Útivera/frímínútur kl. 13:00-14:00
Með markvissri útiveru á hverjum degi tryggjum við að börnin fá hreyfingu, ferskt andrúmsloft og njóti sín í frjálsum leik
Vinafundur/val kl. 14:15-16:00, sama fyrirkomulag og á morgnanna.
Nónverður kl. 14:40-15:30, sama fyrirkomulag og við morgunmat.
Síðdegisstund klukkan 16:00-17:15, er frjálst val úti eða inni. Lögð er áhersla á að dagurinn endi rólega.
Með bestu kveðjum og von um gott samstarf á komandi vetri
Kennarar Sunnuvalla