GETA til sjálfbærni – menntun til aðgerða
Markmið rannsóknar- og þróunarverkefnisins GETU er að efla skilning og umræður um menntun til sjálfbærrar þróunar og leita leiða fyrir íslenska skóla sem vilja leggja áherslu á hana í sínu starfi. Verkefnið byggist á samstarfi rannsóknarhóps GETU og skóla á öllum skólastigum um skólaverkefni sem skilgreind verða í samstarfi kennara, skólastjórnenda og nemenda með stuðningi rannsóknarhópsins. Spurt verður: Hvers konar menntun vísar veginn að sjálfbærni?
GETA er liður í alþjóðlegri viðleitni til að efla og útbreiða menntun til sjálfbærrar þróunar og getur stuðlað að því að ríki, sveitarfélög og skólar hér á landi taki mið af sjálfbærri þróun í námskrám skóla og í almenningsfræðslu.
Stefnt er að því að:
· Skapa þekkingu og færni í þágu menntunar til sjálfbærni heima og heiman
· Stuðla að aukinni virðingu fyrir náttúru og umhverfi, fyrir margbreytni og gildum
sem stuðla að sjálfbærni í samskiptum mannsins við umhverfi sitt og innbyrðis á
milli manna og samfélaga.
· Efla skilning á samábyrgð okkar á framtíð mannkyns og að komandi kynslóðir
hafi möguleika á að fullnægja þörfum sínum.
Til að ná þessum markmiðum verður viðfangsefnum beint að:
· Kennslu, námi og skólastarfi, sem geri kennurum og nemendum kleift að byggja
upp þekkingu á náttúruauðlindum, umhverfisvernd, samfélagi og menningu,
samskiptum og leiðum til sjálfbærni á sem flestum sviðum.
· Skólastarfi sem styrkir virðingu fyrir lýðræðislegum leikreglum og félags- og
menningarlegum áherslum við að byggja upp getu til aðgerða og forsendur fyrir
sjálfbæru skólastarfi á Íslandi.
· Samstarfi skóla, grenndarsamfélags og annarra hagsmunaaðila við að koma á
menntun til sjálfbærrar þróunar.
Markmið með þátttöku skóla í tilraunaverkefnum er að takast á við ný viðfangsefni, öðlast reynslu, skapa umræður og sameiginlega sýn á skólastarfið með sjálfbærni að leiðarljósi.
Verkefni Tjarnarsels
Vettvangsferðir nýttar til lestrar- og skriftarnáms
Þróunarverkefnið er hugsað sem hluti af menntun til sjálfbærrar þróunar í leikskóla og m.a. verður lögð áhersla á að útfæra og aðlaga lestrar- og skriftarnám og kennslu, að völdum svæðum innan bæjarfélagsins. Þau verða valin í samvinnu við leikskólanemendur með tilliti til útináms og kennslu í lestri og skrift.
Markmið
Markmiðið með þátttöku leikskólans í GETA verkefninu er að útfæra enn frekar stefnu skólans í vettvangs- lestrar- og skriftarnámi.
Meginmarkið verkefnisins er að nýta umhverfi og náttúru til að þróa vettvangs-, lestrar- og skriftarnám og kennslu fyrir leikskólabörn og að skoða hvaða reynsla, þekking og viðhorf bætist við starf leikskólakennara við að færa og þróa lestrar- og skriftarnám utandyra. Markmiðin taka mið af stefnu leikskólans um vettvangsferðir barna um nánasta umhverfi leikskólans.
Undirmarkmið verkefnisins er;
- Að kennarar og nemendur verði meðvitaðri um möguleika umhverfisins til lestrar- og skriftarnáms
- Að flétta saman lestrar- og skriftarnám inn í vettvangsferðir
- Að auðga hugmyndir kennara og nemendur til lestrar og skriftarnáms
- Að nemendur hafi áhrif á og komi með hugmyndir um bætt umhverfi í samfélaginu
- Að færa hluta af starfs- og kennsluháttum út fyrir leikskólann
- Að kennarar og nemendur njóti lífsgleði og hreyfingar
- Að gera leikskólastarfið sýnilegra
Matsaðferðir
Matið verður tvískipti, annars vegar munu leikskólakennarar tveggja, þriggja og fjögurra ára nemenda meta þátttöku þeirra að verkefninu og hins vegar munu leikskólakennarar elsta stigsins meta hvernig tókst til við að færa lestrar- og skriftarnámskeiðið út fyrir veggi leikskólans.
Matsaðferðir kennara þriggja aldursstiga
- Dagbókafærslur og sjálfsmat leikskólakennara hvað var gert og hvernig tókst til
- Reglulegir samstarfsfundir leikskólakennara og verkefnastjóra um gang mála og ákvörðun tekin um næstu skref
- Ljósmynda og myndbandsupptökur
Mat kennara elstu nemenda
- Viðtöl við foreldra elstu nemenda
- Spurningalisti lagður fyrir foreldra elstu nemenda
- Viðtöl við elstu nemendur Dagbókafærslur og sjálfsmat leikskólakennara hvað var gert og hvernig tókst til
- Reglulegir samstarfsfundir leikskólakennara og verkefnastjóra um gang mála og ákvörðun tekin um næstu skref
- Ljósmynda og myndbandsupptökur.