 |
Inga María Ingvarsdóttir Leikskólastjóri
Inga Mæja hóf störf í Tjarnarseli í september 1995. Hún útskrifaðist sem leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands árið 1991. Hún lauk framhaldsnámi í Stjórnun menntastofnanna í október 2005 frá Kennaraháskóla Íslands. Hún lauk íMastersnámi við Framhaldsdeild Háskóla Íslands, Menntavísindasviði vorið 2009.
Stjörnumerkið hennar Ingu Mæju er Hrúturinn. Hrúturinn þolir illa reglur, kerfi og vanabindingu, en hefur gaman af nýjum áskorunum. Það má líkja honum við landnema. Hann tendrast upp þegar ný mál eru á dagskrá hans, lifnar við og smitar út frá sér með ákafa sínum, en dofnar og verður leiður ef hann þarf að fást of lengi við það sama. Hann er góður í upphafi, sæmilegur þegar verk er hálfnað en verður oft að beita sig aga til að ljúka verkum. Hann er fæddur brautryðjandi og frumkvöðull, en er síðri í rekstri og vanaverkum. |
|
|
 |
Ragnhildur Sigurðardóttir Aðstoðarleikskólastjóri
Ragga hefur starfað í Tjarnarseli með hléum frá árinu 1966. Hún útskrifaðist 1999 sem leikskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands og árið 2001 hóf hún þá störf sem Aðstoðarleikskólastjóri Tjarnarsels. Ragga er textasmiður og prófarkalesari Tjarnarsels og á hún lestur margra góðra ritgerða og textasmíða að baki. Textar Röggu hafa meðal annars verið fluttir á hinni margrómuðu Hæfileikakeppni leikskóla.
Stjörnumerkið hennar Röggu er Nautið. Eitt helsta einkenni Nautsins er sterk einbeiting og í tengslum við það hæfileiki til að útiloka umhverfið og þá þætti sem það telur sér óviðkomandi. Nautið er frekar hlédrægt og varkárt í skapi og í raun feimið. Segja má að Nautið sé rólegur og traustur persónuleiki, að öllu jöfnu vingjarnlegt og seinþreytt til reiði. En þegar Nautið reiðist, þá reiðist það svo um munar |
|
|
 |
Aldís Dröfn Einarsdóttir Leikskólaliði á Sólvöllum
Aldís hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 2002. Aldís útskrifaðist sem stuðningsfulltrúi í apríl 2008. Í frítíma sínum fer Aldís oft með Sindra Snæ syni sínum í litlar dagsferðir hingað og þangað og henni finnst mjög gaman að fara á tónleika og leikhús.
Stjörnumerkið hennar Aldísar er Hrútur. Hrúturinn er vormerki. Á vorin fer birta vaxandi og veður batnandi. Mesti athafnatími ársins er fyrir höndum. Eðli Hrútsins endurspeglar þetta og birtist meðal annars í þörf fyrir athafnasemi og innri vissu um að lífið bjóði uppá ótal tækifæri. Hrúturinn er fyrir vikið drífandi og fljótur að framkvæma ætlunarverk sín. Að sama skapi er honum illa við alla bið. Hann vill gera það strax sem hann fær áhuga á. |
|
|
 |
Árdís Hrönn Jónsdóttir Verkefnastjóri/Sérkennslustjóri ardis.h.jonsdottir@reykjanesbaer.is
Árdís byrjaði að vinna í Tjarnarseli árið 2009 sem verkefnastjóri þróunarverkefnisins Bók í hönd. Hún hefur nú einnig tekið við stöðu sérkennslustjóra í leikskólanum. Árdís útskrifaðist frá Háskóla Íslands haustið 2008 með meistaragráðu í menntunarfræðum með áherslu á mál- og læsi. Meistaraprófsverkefnið hennar heitir "Bók í hönd og þér halda engin bönd" Að efla mál- og læsisþroska leikskólabarna með lestri bóka". Í frítíma sínum vill Árdís eyða tíma með fjölskyldu sinni og fara í jóga og rækta sál og líkama.
Stjörnumerkið hennar Árdísar er Sporðdrekinn. Sporðdrekinn dregur að sér athygli hvert sem hann kemur. Sporðdrekinn er sterka þögla týpan og hefur sterka nærveru. Það er erfitt að henda reiður á það er nánast ómögulegt fyrir fólk að horfa fram hjá honum. Sporðdrekinn veit vel að hann getur stjórnað fólki og nýtur þess valds til hins ýtrasta. |
|
|
 |
Ásta Sigurðardóttir Leikskólakennari/Deildarstjóri Mánavalla
Ásta hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 2000. Hún útskrifaðist 1979 sem leikskólakennari úr Fóstruskóla Íslands og haustið 2009 útskrifaðist hún sem jógakennari. Ástu finnst mjög gaman að sauma og vera í góðra vina hópi í frítíma sínum.
Stjörnumerkið hennar Ástu er Tvíburinn. Tvíburinn þarf fjölbreytni til að viðhalda lífsorku sinni. Honum líður best þegar mikið er um að vera og þess er krafist að hann sinni mörgum verkefnum á sama tíma. Honum leiðist vanabinding og hann verður þreyttur ef hann þarf að fást of lengi við sama verkið. Fjölbreytni og hreyfing eru honum nauðsynleg til að viðhalda orku. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, enda er ein uppáhaldssetning hans: "Ég þarf aðeins að skreppa." |
|
|
 |
Ástríður Guðmundsdóttir Aðstoðarmatráður
Ásta hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 2001. Ásta finnst alveg einstaklega skemmtilegt að leggja land undir fót og ferðast í fótspor Vesturfaranna. Hún hefur mjög sterkt verslunargen í sér og hefur fataskápurinn heima fengið aðeins að finna fyrir því og gaman að segja frá því að hún á sama afmælisdag og Smáralind. Enda skilur hún ekkert í því af hverju hún var ekki fengin til þess að klippa á borðann, þegar Smáralindin var opnuð.
Stjörnumerkið hennar Ástu er Vogin. Árstími Vogarinnar er haustið, þegar litir eru sterkir í náttúrunni og sumarið og uppskeruvinnan er að baki. Veður eru enn ágæt og því góður tími til að sinna félagslífi. Fyrsti mánuður haustsins er rómantískur og það fólk sem fæðist í Vogarmerkinu þykir ljúft, listrænt og félagslynt. |
|
|
 |
Fanney M. Jósepsdóttir Leikskólakennari/Deildastjóri Sunnuvalla
Fanney hefur starfaði í Tjarnarseli frá árinu 1998. Hún útskrifaðist sem leikskólakennari frá Háskólanum á Akureyri árið 2005. Fanney finnst gaman að vera með fjölskyldu sinni og ferðast þegar hún er ekki að vinna.
Stjörnumerkið hennar Fanneyjar er Bogmaður. Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Bogmaðurinn að búa við fjölbreytta lífshætti. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, ferðast og vera frjáls, eða þarf að minnsta kosti að hafa það á tilfinningunni að hann geti gengið út hvenær sem er. Höft og vanabinding leiða til þreytu, nýjungar skapa lífsgleði og auka kraft hans
|
|
|
 |
Fríða Bjarnadóttir Matráður
Fríða hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 1998. Fríða aðstoðar hana Fanney í eldhúsinu að elda allan góða matinn sem við fáum að borða hérna. En Fríða hefur líka starfað sem leiðbeinandi inni á deild. Fríða hefur, ásamt Fanney sótt hin ýmsu námskeið í tengslum við matargerð. Fríðu finnst gaman að fara í lengri gönguferðir, ferðalög, fara í sumarbústaðinn sinn og eyða tíma með fjölskyldu sinni.
Stjörnumerkið hennar Fríðu er Hrúturinn. Hrúturinn er lítið gefinn fyrir að horfa um öxl. Hann vill lifa fyrir daginn í dag og horfa fram á veginn. Hann veltir sér því sjaldan upp úr vandamálum, að minnsta kosti ekki til langframa. Ef erfiðleikar steðja að er hann fljótur að hrista þá af sér. Lífið býður alltaf upp á ný tækifæri, nýjar áskoranir og ný verkefni til að keppa að. |
|
|
 |
Hjálmey Einarsdóttir Afleysing
Eyja hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 1990. Eyja er svo fjölhæf kona að hún getur starfað jafnt sem inn á deild og í eldhúsi. Í frítíma sínum finnst Eyju mjög gaman að ferðast, hún les mjög mikið og finnst gaman að eyða tíma sínum með fjölskyldu sinni.
Stjörnumerkið hennar Eyju er Nautið. Nautið er stöðugt merki og því fast fyrir og oftar en ekki þrjóskt. Persónuleiki þess er fastmótaður og breytist lítið og það heldur sig oft við sömu áhugamálin í langan tíma. Meðal einkenna Nautsins eru því úthald, festa og varanleiki. Það er oft eins og jarðýta. "Ekkert skal stöðva mig. Það er sama hvað það tekur mig langan tíma að ná takmarkinu. Ég skal." |
|
|
 |
Hólmfríður Jónsdóttir Leikskólaleiðbeinandi á Mánavöllum
Hófi hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 2004. Frítíma sínum eyðir Hófí með fjölskyldu sinni og reynir eftir mestu getu að hreyfa sig reglulega.
Stjörnumerkið hennar Hófíar er Nautið. Í samræmi við vorblíðuna er Nautið að öllu jöfnu gæflynt í skapi. Það trúir á lífið og sér ekki ástæðu til annars en að menn lifi í sátt og samlyndi. Það vill stunda vinnu sína, eiga gott heimili og sinna áhugamálum og félagslífi, og vill jafnframt láta aðra í friði með sitt. |
|
|
 |
Hrönn Stefánsdóttir Leikskólaleiðbeinandi á Sunnuvöllum
Hrönn hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 1999. Hrönn er útskrifaður snyrtifræðingur. Í frítíma sínum er Hrönn mjög dugleg að hreyfa sig reglulega og vera með fjölskyldu sinni.
Stjörnumerkið hennar Hrannar er Vatnsberinn. Hinn dæmigerði Vatnsberi er yfirleitt rólegur, vingjarnlegur og þægilegur í framkomu. Hann er yfirvegaður og viðræðugóður en hleypir fólki samt sem áður ekki of nálægt sér. Hann er oft á tíðum heldur dularfullur eða a.m.k. fjarlægur. Að minnsta kosti finnst öðrum oft erfitt að átta sig á honum. Ein ástæða fyrir þessu er sú að hann er frekar ópersónulegur og lítið fyrir að ræða um sjálfan sig og bera tilfinningar sínar á torg. |
|
|
 |
Ingunn Ósk Ingvarsdóttir Leikskólakennari/Deildarstjóri Sólvalla
Ingunn Ósk hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 2000. Hún útskrifaðist sem leikskólakennari úr Fósturskóla Íslands árið 1995. Í frítíma sínum finnst Ingunni Ósk gaman að ferðast, innanlands jafnt sem utan. Hún er mjög dugleg að hjóla innan sem utanlands.
Stjörnumerkið hennar Ingunnar Óskar er Steingeitin. Oft er sagt að Steingeitin sé það merki sem eldist hvað best. Sagt er í gríni að hún fæðist gömul og leiðinleg, en kveðji ung og skemmtileg. Vegna sterkrar fullkomnunarþarfar og sjálfsgagnrýni er fyrri hluti ævinnar erfiðari, en þegar hún eldist og nær tökum á viðfangsefnum sínum þá verður þetta allt léttara. Að lokum má svo geta þess að Steingeitin býr yfir geysilegri seiglu og þó að hún virðist dauð og tröllum gefin, rís hún iðulega upp aftur og nær að endurheimta það sem virtist glatað |
|
|
 |
Jenný Olga Eggertsdóttir Leikskólaliði á Mánavöllum
Jenný hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 1992. Hún starfaði frá 1992-1998 þangað til hún fór í fæðingarorlof með yngstu stelpunni sinni. og kom aftur 2001. Jennýju finnst mjög gaman að ferðast, jafnt innanlands sem utan og er dugleg að fylgja dætrum sínum á sundmót. Jenný stundar leikskólaliðanám hjá Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum.
Stjörnumerkið hennar Jennýjar er Sporðdrekinn. Sporðdrekinn er skapstór og tilfinningaríkur og tekur ákveðna afstöðu með eða á móti mönnum og málefnum. Hann vill ganga heill að hverju verki, hvort sem er um vinnu, ást eða áhugamál að ræða. Hann er lítið fyrir hálfkák og vill komast til botns í hverju máli. Sporðdrekinn er því ekki maður sem á auðvelt með að skipta sér á milli margra ætlunarverka |
|
|
 |
Margrét Kolbeinsdóttir Leikskólakennari/Deildarstjóri Ljósvalla
Magga hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 1996. Hún útskrifaðist sem leikskólakennari frá Háskólanum á Akureyri í júní 2005. Magga er mikill áhugamanneskja um umhverfismennt og öllu sem því tengist, enda ófá verkefnin sem hún hefur tekið að sér í tengslum við slíkt. Möggu má oft sjá spássera um bæinn með litla könnuði í eftirdragi...
Stjörnumerkið hennar Möggu er Nautið. Nautin eru fædd að vori, þegar daginn er tekið að lengja og náttúran að vakna til lífsins. Vorið er frjósamur og gjöfull tími vinnu og undirbúnings fyrir sumarið en jafnframt tími til að njóta vaxandi veðurblíðu og grænkandi náttúru. Þetta endurspeglast í upplagi Nautsins, sem sambland af vinnugleði og leti, eða því að skapa og njóta. Hið dæmigerða Naut er því duglegur nautnamaður. |
|

|
Ólafía Marelsdóttir Leikskólakennari á Sunnuvöllum
Lóa hefur starfað í Tjarnarseli frá byrjun árs 2007. Hún er útskrifaður leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands. Lóa hefur mikinn áhuga á fótbolta og á sumrin má sjá Lóu öskra manna mest á flestum leikjum Keflavíkurliðsins.
Stjörnumerkið hennar Lóu er Tvíburinn. Tvíburinn er oft málgefinn (staða hugarpláneturnnar, Merkúrs, skiptir miklu í þessu sambandi) og hefur gaman af því að segja frá. Í fjölskylduboðum og öðrum samkvæmum gengur hann á milli manna og herbergja og talar og segir sögur. Auk félagslyndis og sagnagleði, er fjölhæfni eitt af einkennum hans, sem þýðir að margir í þessu merki fást við tvö til þrjú mismunandi störf. Ef Tvíburinn er í einu starfi, þá leitar hann eftir breytilegum verkefnum innan þess starfs, pælir mikið og er alltaf reiðubúinn að skoða nýja fleti eða ræða við samstarfsmenn um þeirra mál. Tvíburinn hefur ekki áhuga á að beina athyglinni lengi að einu máli í einu. |
|
|
 |
Selma Kristjánsdóttir Leikskólaliði á Sólvöllum
Selma hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 1996. Selmu finnst skemmtilegast að eyða frítíma sínum með fjölskyldu sinni. Selma útskrifaðist úrleikskólaliðanámi hjá Keili í ágúst 2009. Á sumrin sjást hún og Sævar, eiginmaður hennar ferðast um á húsbílnum sínum út um allar trissur.
Stjörnumerkið hennar Selmu er Ljónið. Tími Ljónsins er hásumarið, heitasti tími ársins. Á þessum árstíma skrýðist náttúran sínu fegursta, gróður blómstrar og litadýrð er mikil. Þessa dýrð má sjá í fari Ljónsins, sem oft hefur skrautlega og stóra sál og sterka þörf fyrir að tjá sig |
|
|
 |
Svanrós Gréta Eiríksdóttir Leikskólaleiðbeinandi á Mánavöllum
Gréta hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 1990. Í frítíma sínum finnst Grétum gaman að eyða tíma með fjölskyldu sinni og að mála myndir þegar tími og færi gefast til.
Stjörnumerkið hennar Grétu er Hrúturinn. Hrúturinn kappsfullur og baráttuglaður að upplagi. Hann er því uppá sitt besta þegar honum er stillt upp við vegg, eða þegar þarf að drífa af ákveðin verk fyrir tilsettan tíma. Þá magnast hann upp. Hann er eldsmerki og þarf því að hafa líf í kringum sig og líður best þegar hann er að keppa eða fást við nýja áskorun. Hann þarf sömuleiðis á hreyfingu og líkamlegri útrás að halda, annað hvort með því að stunda líkamlega vinnu eða í íþróttum, líkamsrækt og útivist. Ef umhverfi hans er líflaust og kallar á vanabindingu og endurtekningar þá tapar hann orku. |
|
|
 |
Theodóra Mýrdal Leikskólakennari á Ljósvöllum/Tölvu- og vefstjóri Tjarnarsels
Dóra hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 2004. Dóra útskrifaðist sem leikskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands þann 14. júní 2008. Dóra hefur yfirleitt verið sú manneskja inn á Tjarnarseli sem leitað hefur verið til þegar tölvur eru annars vegar, enda með þann vafasama heiður að vera titluð sem vefstjóri leikskólans í ársskýrslum.
Stjörnumerkið hennar Dóru er Ljónið. Þegar Ljónið er í góðu skapi geislar það og glitrar af gleði og smitar út frá sér í umhverfi sitt. Þá 'kveikir' það í öðrum. Þegar það er óánægt sést óánægjan einnig langar leiðir, enda er Ljónið merki sem sýnir það sem býr innra með. Meðal bestu eiginleika Ljónsins er heiðarleiki og einlægni. Hið dæmigerða Ljón vill segja satt hvað sem það kostar. Það vill vera trútt markmiðum sínum og hugsjónum. Ljónið er stolt, hjarthlýtt og göfuglynt merki. |
|
|
 |
Þórey Óladóttir Leikskólaliði á Mánavöllum
Þórey hefur starfað í Tjarnarseli frá árinu 2005. Í frítíma sínum finnst Þórey afskaplega gott að eyða tíma sínum með fjölskyldu og börnum og eyðir sunnudagsmorgnum í að leysa sunnudagskrossgátuna í Morgunblaðinu. Henni finnst einnig mjög gaman að búa til sultur og baka og hefur samstarfsfólk hennar notið þess líka.
Stjörnumerkið hennar Þóreyjar er Bogmaðurinn. Bogmaðurinn er að öllu jöfnu jákvæður, hress og bjartsýnn. Hann er þægilegur í umgengni og þykir skemmtilegur félagi. Hann er lítið gefinn fyrir að búa til vandamál og vill sjá og sér bjartari hliðar tilverunnar. Hann er því oft líflegur og hressilegur. Það er oft sagt um Bogmanninn að hann sé heppinn. Það er líklega vegna þess að hann er glaðlyndur og því finnst fólki gaman að gera honum greiða. Einnig fer hann víða, prófar margt og er opinn fyrir tækifærum. Hann þorir að breyta til og takast á við ný verkefni. |
|
|
 |
Birgitta Brynjúlfsdóttir Leikskólakennari á Mánavöllum
Birgitta hóf störf í Tjarnarseli í september 2010. Hún útskrifaðist frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands sem leikskólakennari í júní 2011. Birgittu finnst gott að eyða frítíma sínum með fjölskyldu sinni.
Stjörnumerkið hennar Birgittu er Sporðdrekinn. Þetta svala og rólega yfirborð sem fólk skilur svo illa stafar í raun bara af þínu afar flóknu eðlisfari. Kraumandi undir svölu yfirborðinu er mikill og ástríðufullur eldur. Þetta skynjar fólkið í kringum hann en sjálfur er hann mismeðvitaður um eigin flækjur.
|
|
|
 |
Inga Sif Stefánsdóttir Leikskólakennari á Sólvöllum
Inga Sif hóf störf í Tjarnarseli sumarið 2009. Hún er leikskólakennari að mennt og útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands árið 1998. Frítíma sínum finnst Ingu Sif best varið í fjölskyldu sína og vini.
Stjörnumerkið hennar Ingu Sifjar er Krabbinn. Krabbinn er eins og vatnið, eftirlátt og aðlögunarfært. Hann aðlagast þegar hann þarf þess en vil helst breyta til á eigin forsendum. Lífsgefandi orka er krabbanum í blóð borið og eins og vatnið er hann nærandi og róandi. Hann er stuðningspúði fyrir fólk, bæði í fjölskyldu sinni og vinahóp.
|
|
|
 |
Jóhanna Torfadóttir Leikskólakennari á Sunnuvöllum
Jóhanna hóf störf í Tjarnarseli í maí 2011. Hún útskrifaðist sem leikskólakennari frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands í júní 2011. Jóhönnu finnst gott að eyða frítíma sínum með fjölskyldu sinni, að lesa og stundar alls kyns hannyrðir.
Stjörnumerki Jóhönnu er Steingeit. Steingeitur skeyta lítið um tískufyrirbæri og klæðast oft íhaldssömum, dökkum fötum úr vönduðu efni, jafnvel þegar þær fara í samkvæmisskrúðann. Þær eru iðjusamar og þægilegar í viðmóti, vinna skipulega að langtíma markmiðum og stefna að því að öðlast viðurkenningu og virðingu fyrir erfiði sitt. |
|
|
|
|