Almennar upplýsingar.. 2
Leikskóli 2
Uppeldisstarf, áherslur og markmið.. 2
Starfið sl. leikskólaár.. 2
Starfsáætlun.. 2
Innra mat á starfinu, framkvæmd og niðurstöður. 2
Þróunar og nýbreytnistarf. 3
Ferðir, menningarviðburðir, sýningar, hefðir og hátíðir. 4
Menningarviðburðir og aðrar skemmtanir. 4
Kynning á leikskólanum út á við. 7
Starfsmenn.. 9
Stöðugildi 9
Fundir. 9
Skipulags- og námskeiðsdagar –Endur- og símenntun.. 9
Börn.. 10
Fjöldi barna.. 10
Sérkennsla.. 11
Foreldrasamstarf.. 11
Áherslur og markmið.. 11
Foreldrafundir. 11
Foreldraviðtöl, fréttabréf. 11
Opið hús. 12
Foreldrafélag.. 12
Samstarf – fræðsla - ráðgjöf.. 12
Ráðgjöf og samstarf við rekstraraðila.. 12
Samstarf við aðra.. 13
Starfsmannasamtöl. 13
Framhalds-, leikskólakennara- og þroskaþjálfakennaranám við KHÍ og HA og nemar. 13
Samstarf við grunnskóla.. 14
Öryggismál. 14
Breytingar og viðhald.. 15
Námskeið, fyrirlestrar, ráðstefnur o. fl. 15
Lokaorð.. 18
Tjarnarsel, Tjarnargötu 19 – sími 420-3100
Netfang: tjarnarsel@reykjanesbaer.is
Veffang: www.tjarnarsel.is
Leikskólinn Tjarnarsel tók til starfa árið 1967 og er elsti leikskólinn í Reykjanesbæ. Tjarnarsel er með fjórar aldursskiptar deildir. Fyrir sumarfrí ár hvert færast nemendur hverrar deildar yfir á næstu aldursdeild ásamt kennurum. Leikskólinn hefur skýra starfsmannastefnu með marga fagmenntaða starfsmenn sem búa yfir mikilli starfsreynslu.
Í leikskólanum er starfað samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla sem Menntamálaráðuneytið gaf út 1999. Áhersluþættir leikskólans eru vettvangsferðir, lestrarhvetjandi umhverfi og umhverfismennt. Markmiðið er að flétta saman vettvangsnámi, umhverfisfræðslu og lestrarhvetjandi umhverfi inn í daglegt líf og starf leikskólans. Jafnframt hefur leikskólinn lagt mikla áherslu á að bjóða nemendum upp á opinn efnivið til leiks og til ýmiss konar sköpunar eins og kubba af öllum stærðum og gerðum. Í Tjarnarseli er áhersla á tillitssemi, vináttu og kærleika milli allra og hver einstaklingur lærir að bera virðingu fyrir sjálfum sér, náunganum og umhverfinu. Skýr starfsmannastefna og skólanámsskrá leikskólans gerir vinnuferlið opnara og sýnilegra fyrir starfsfólk leikskólans og foreldra leikskólabarna.
Einkunnarorð leikskólans eru; hreyfing – lífsgleði – upplifun og virðing sem tengjast inn í daglegt líf leikskólans.
Ársáætlunin byggir á áhersluþáttum leikskólans og framtíðarsýn allra starfsmanna leikskólans. Hlutverk hennar er tvíþætt; annars vegar er hún hugsuð sem tímaáætlun og hins vegar vinnuáætlun.
Dagatal leikskólans
Á starfsmannafundi 4. sept. var dagatal leikskólans fyrir starfsárið 2007-2008 lagt fram. Þá var farið yfir það sem er á döfinni allt skólaárið og starfsfólk fékk tækifæri til þess að koma með athugasemdir (sjá fylgiskjal 1).
Matsaðferðir
Aldursmiðaðar atferliskannanir að hausti og vori.
v Þroskapróf AAL, sem er athugunarlisti fyrir atferli leikskólabarna.
v Ofvirknikvarði fyrir 4ára og eldri.
v Ísl. þroskalistinn.
v Smábarnalistinn.
v Athyglisbrestur barna, fyrir 4ára og eldri.
v Hegðun á heimili, fyrir 4ára og eldri sem foreldrar fylla út ef um hegðunarerfiðleika er að ræða.
v Hljóm – 2, sem kannar hljóðkerfisvitund elstu barnanna í leikskólanum. Prófað er bæði að hausti og að vori.
v Orðaskil (málþroskapróf).
v Gillberg og Echlers gátlisti fyrir einhverfa einstaklinga.
v Færni barns í málnotkun og málskilningi, gróf viðmið fyrir aldurinn 1 – 4ja ára.
v Stafaþekking (könnuð hjá elstu nem. fyrir og eftir lestrar- og skriftarnámskeið.)
v Lestrar- og skriftarpróf (lagt fyrir hjá elstu nem. fyrir og eftir lestrar- og skriftarnámskeið)
Þróun lestrar- og skriftarnámsins. Sífellt er verið að endurskoða og aðlaga tíu vikna lestrar- og skriftarnámið að starfsháttum og stefnu leikskólans og tökum við tillit til hugmyndaauðgi og reynslu kennaranna.
Móðurskóli táknmáls. S.l. vor fékk leikskólinn styrk úr Manngildissjóði Reykjanesbæjar s.l. vor til að þróa enn frekar sérkennslu með heyrnarskertum börnum og einstaklingum með mikla málþroskahömlun. Leikskólakennarar næst elstu deildar hafa verið á viðamiklu táknmálsnámskeiði s.l. ár sem taka mun þrjú ár alls.
GETA til sjálfbærni – menntun til aðgerða. Leikskólinn tekur þátt ásamt nokkrum leik-, grunn- og framhaldsskólum á landinu í rannsóknar- og þróunarverkefninu GETA til sjálfbærni – menntun til aðgerða sem KHÍ og HA leiða í samstarfi við fleiri aðila. Þróunarverkefnið er hugsað sem hluti af menntun til sjálfbærrar þróunar í leikskóla. Þáttur Tjarnarsels í verkefninu er að útfæra og aðlaga lestrar- og skriftarnám og kennslu að völdum opnum svæðum innan bæjarfélagsins. Svæði verða valin sérstaklega með tilliti til útináms og kennslu í lestri og skrift.
Útbúin fjölskyldustefna Tjarnarsel. Leikskólinn útbjó fjölskyldustefnu sem byggir á fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar (sjá fylgiskjal 2).
Grænfánaverkefnið. Áfram var haldið með stefnu Landverndar að áframhaldandi vinnu til að viðhalda Grænfánanum og okkar umhverfismennt.
Bókakoffort fyrir börn af erlendum uppruna. Bókasafn Reykjanesbæjar færði leikskólanum bókakoffort fyrir aðstandendur barna af erlendum uppruna. Bækurnar eru ætlaðar til heimláns og fylgir þeim einnig hljóðdiskur talsettur á íslensku.
Starfsmat kennara. Leikskólastjóri fékk styrk úr þróunarsjóði leikskóla Menntamálaráðuneytisins til að rannsaka með sex leikskólakennurum í Tjarnarseli eigið starf.
Styttri kynnisferðir. Í hópastarfi sem er þrisvar-fjórum sinnum í viku er farið að mestu í vettvangsferðir. Þá eru svæði eins og Skrúðgarður, Nónvarða, Vatnsholt, Hrauntúnsholt, Skólaholt, fjaran, smábátahöfnin, og ótal önnur svæði könnuð í öllum sínum fjölbreytileika. Flest er farið gangandi en þó stundum með strætisvögnum bæjarins.
Lengri ferðir. Í ævintýraviku elstu barna leikskólans er farið í styttri og lengri ferðir. Í vor var farið; í Fræðasetrið í Sandgerði, slökkvistöðina í Reykjanesbæ, í Stekkjarkot og að skoða skipið Íslending á Fitjum. Í útskriftarferð var farið með rútu að heimsækja vinaleikskólann okkar, sem er Arnarsmári í Kópavogi. Saman fórum við í Heiðmörk og þar var farið í hina ýmsu leiki og þrautir og að lokum var grillað saman.
Haustferð 10. svæðadeildar FL. farin 20. sept. ´07. Tjarnarsel sá um ferðina.
Hæfileikakeppni starfsfólks leikskólanna í Reykjanesbæ haldin á Ránni 5. okt. ´07.
Skemmtiferð starfsfólks til Manchester 13. – 16. júní ´08.
Úti-íþróttadagur haldinn 8. október í frábæru veðri. Sól- Ljós- og Sunnuvellir tóku þátt. Útisvæðinu var skipt upp í 11 stöðvar og fóru hóparnir ásamt hópstjóra sínum á hverja stöð í ákv. tíma.
Pétur og úlfurinn 7. nóv. ´07. Sól-, Ljós- og Sunnuvallanemar fóru í Frumleikhúsið ásamt nemendum leikskólans Vesturbergs og sáu brúðuleikhúsið um Pétur og úlfinn í umsjá Bernd Ogrodnik brúðuleiklistamanns
Heimsókn til listamanna í Reykjanesbæ haustið ´07. Sunnuvallanemendur heimsóttu m.a. Jöklaljós þar sem fram fer kertagerð, Hermann Árnason myndlistarmann, Gullu og Lárus glerblásturslistamenn og Fjólu Þorkelsdóttur gullsmið. Allir listamennirnir tóku vel á móti nemendunum, útskýrðu aðferðir og voru með sýnikennslu. Stundum fengu nemendur einnig að prófa að gera sjálf. Einn listamannanna kom í leikskólann, Böðvar Gunnarsson uppáklæddur í víkingaföt og með ýmislegt sem tengdist víkingatímanum s.s. sverð, skjöld og hljóðfæri og útskýrði notkun þess.
10. nóvember ´07 skrifaði aðstoðarleikskólastjóri undir samning við Brunavarnir Suðurnesja um að efla brunavarnir í leikskólanum. Sérstakir aðstoðarmenn slökkviliðsins í verkefninu eru slökkviálfarnir Logi og Glóð og eru þau jafnframt helsta auðkenni verkefnisins. Við undirritun samningsins var elstu börnum leikskólans færð mappa með skemmtilegum verkefnum sem tengjast eldvörnum og einföldum ráðleggingum til foreldra og forráðamanna um öryggi heimilisins.
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu sem við héldum uppá föstudaginn 16. nóv. ´07 fluttu kennarar Sólvalla leikþátt um Snuðru og Tuðru fyrir alla nemendur skólans, einnig voru sungin íslensk þjóðlög.
Lúlli löggubangsi kom í heimsókn 14. nóv. ´07 og rifjaði upp með okkur umferðarreglurnar. Að endingu færði hann nemendum endurskinsmerki að gjöf.
Dagur bókarinnar 23. nóv. ´07. Í því tilefni komu fjölmargir foreldrar í heimsókn og lásu upp fyrir börnin.
Jólasögustund 17. des. ´07. Gréta Eiríksdóttir flutti okkur jólaguðspjallið.
Jólastund starfsfólks 30. nóv. ´07 Starfsfólk kom saman og átti góða kvöldstund með tilheyrandi jólamat og skemmtun.
Jólaleiksýning í Frumleikhúsinu 20. des. ´07 Sunnuvallanemum boðið á leiksýningu í Frumleikhúsið þar sem þau sáu jólasýninguna Hvar er Stekkjastaur á vegum Möguleikhússins.
Fjölskyldudagur í Kirkjulundi var haldinn 18. des. ´07. Sunnu-, Ljós- og Sólvallanemar voru með samverustund fyrir foreldra. Sunnuvallanemar fluttu helgileik og Ljós- og Sólvallanemar fluttu jólasöngva og allir sungu saman jólalög. Boðið var upp á kaffi og smákökur sem nemarnir höfðu bakað. Frábær þátttaka og tókst samverustundin í alla staði mjög vel. Þann sama dag buðu Mánavallanemar foreldrum sínum í leikskólann þar sem boðið var upp á myndasýningu og boðið upp á smákökur og kaffi. Góð þátttaka.
Jólahelgistund. Þann 13. des. var börnum í tveimur elstu árgöngunum boðið að koma í kirkjuna ásamt nemum frá öðrum leikskólum bæjarins, þar sem haldin var jólahelgistund. Nemendur Vesturbergs sáu um helgileikinn í þetta sinn.
Litlu jólin voru haldin hátíðleg 20. des. ´07 á sal skólans. Sungið og dansað í kringum jólatréð og tveir frábærir jólasveinar komu í heimsókn sem skemmtu börnunum. Boðið var upp á hangikjöt með öllu tilheyrandi í hádegismat.
Bóndadagurinn var haldinn hátíðlegur 25. jan. ´08 með því að bjóða pöbbum og/eða öfum að koma í Þorra-morgunmat. Þrátt fyrir slæmt veður var frábær þátttaka.
Bolludagur og sprengidagur 4. og 5. febr. ´08 voru með hefðbundnu sniði. Borðaðar rjómabollur og fiskibollur í tilefni af bolludegi. Saltkjöt og baunir borðað í tilefni af sprengidegi.
Öskudagur 6. febr. ´08 var furðufatadagur í leikskólanum. Allir sem vilja klæðast furðufötum. Í tilefni dagsins er ,,góðgæti slegið úr kassa”, dansað og valsað um allan leikskólann.
Dagur leikskólans 6. febr. ´08. Haldinn hátíðlegur með því að hafa opið hús í leikskólanum þar sem foreldrum var boðið að taka þátt í öskudagsgleði barnanna.
Góð þátttaka.
Þorrablót var 15. febr. ´08. Til þess að gera daginn eftirminnilegan var komið saman á sal skólans og sungnar ,,þorravísur”. Sýning var á gömlum munum og leikföngum sem er í eigu starfsfólks leikskólans og Byggðasafnsins. Einn kennari skólans klæddi sig upp í gömul húsfreyjuföt og útskýrði og sýndi hina ýmsu hluti og brúkun þeirra. Allir fengu að smakka ,,gamlan mat” (hrútspunga, sviðasultu, slátur, hákarl, og harðfisk) og renndu þessu niður með mysu. Í hádegisverð var boðið upp á hangikjöt og slátur m/rófustöppu og kartöflumús. Frábær dagur.
Nemendur úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar (8 talsins) komu og spiluðu fyrir okkur á hin ýmsu hljóðfæri s.s. fiðlu, hljómborð og blokkflautur og selló. Allir höfðu gaman af.
Mömmu- og ömmukaffi 22. febr. ´08. Í tilefni konudags var mömmum og ömmum nemenda boðið upp á morgunkaffi. Frábær þátttaka.
Lestrar- og skriftarnámskeið hófst í leikskólanum 28. jan. ´08 og stóð yfir í tíu vikur og lauk 15. apríl.
Sögulestur: Jón Pétur Jónsson lögregluþjónn kom og las fyrir Sunnuvallanemendur í febr. ´08 í tilefni af degi bókarinnar.
Páskaeggjaleit í skrúðgarðinum 14. mars ´08. Allir nemendur leikskólans fóru og leituðu að páskaeggjum sem voru falin í skrúðgarðinum. Gefendur voru foreldrafélag leikskólans.
Dagur umhverfisins 24. apríl ´08. Í leikskólanum var haldið upp á Dag umhverfisins með því að nemendur fóru ásamt kennurum sínum í allsherjar tiltekt á útisvæðinu.
Allir týndu rusl og förguðu í moltugámana og hrært var í moltutunnunum og fært á milli tunna og fullgerð moldin sett á beðin á svæðinu.
Alþjóðlegi barnabókadagurinn 2. apríl ´08. Í tilefni dagsins komu góðir gestir í leikskólann og lásu fyrir nemendur má þar nefna; Árna Sigfússon bæjarstjóra, Eirík Hermannsson fræðslustjóra, Ingibjörgu Hilmarsdóttur sérkennslustjóra og Kolbrúnu Sveinsdóttur starfsmann í bókasafni Reykjanesbæjar. Sama dag fóru elstu nemendur leikskólans í Dagdvöl aldraðra og lásu fyrir dvalargesti.
Umferðaskólinn ungir vegfarendur kom með umferðarfræðslu í maí ´08.
Listsýning í Duushúsum 16. – 25. maí ´08. Haldin var sameiginleg listahátíð leikskólabarna í sex leikskólum Reykjanesbæjar.
Myndlistarsýning Sól-, Ljós-, Sunnuvallanemenda frá 16. – 30. maí ´08 í bókasafni Reykjanesbæjar.
Sveitaferð 23. maí ´08. Sól- og Ljósvallanemendur fóru á Hraðastaði í Mosfellsbæ ásamt kennurum.
Útskriftarhátíð 28. maí ´08 í Kirkjulundi. Nemendur fluttu skemmtiatriði og lásu fyrir gesti. Leikskólastjóri kvaddi nemendur með ljúfum orðum. Boðið var upp á kaffi, safa og kökur. Einnig voru sýndar myndir frá leikskóladvöl nemenda.
Útskriftarferð 30. maí ´08. Sunnuvallanemendur fóru og hittu vinaleikskólann sinn Arnarsmára í Kópavogi. Farið var saman í Heiðmörk, farið var í leiki og grillað saman í frábæru veðri.
Kynningarfundur fyrir foreldra nýrra nemenda haldinn í leikskólanum 10. júní ´08.
Sumarhátíðin var haldin 4. júlí ´08 í blíðskaparveðri að vanda. Allir nemendur leikskólans fluttu söngatriði og skemmtu sér við hinar ýmsu smiðjur. Foreldrafélag leikskólans færði leikskólanum að gjöf ,,hljómflutningstæki” og einnig ,,kaðla og rólur” sem fest var upp í salnum.
Einnig var sölusýning á verkum nemenda á vegum foreldrafélagsins. Afar góð þátttaka.
Matráðum boðið í hóf í heildverslun Ásbjörns Ólafssonar í nóv. ´07 og til heildverslunarinnar Garra í apríl ´08.
Erla Guðmundsdóttir æskulýðsfulltrúi Keflavíkurkirkju kom einu sinni í mánuði og átti samverustund með börnunum.
Inga María og Ragnhildur kynntu leikskólann á sameiginlegum kynningarfundi á vegum Reykjanesbæjar fyrir lokaársnema í leikskólafræðum í KHÍ, sem haldinn var í Duushúsum 28. sept. ´07.
4 nemar frá FS komu í okt. ´07 og kynntu sér starfsemi leikskólans.
Könnunarleikur. Kennari frá Hjallatúni ásamt leikskólakennaranema komu 16. okt. ´07 og kynntu sér könnunarleikinn.
Tveir nemar á lokaári í KHÍ komu og unnu verkefni í tengslum við leikskólakennarám sitt – dvöldu í fjóra daga.
Heimsókn í Arnarsmára. Á starfsmannafundi 6. nóv. ´07 fórum við í heimsókn í vinaleikskólann okkar Arnarsmára í Kópavogi. Fengum kynningu um listir og boðið í kvöldmat. Kennarar Tjarnarsels fluttu skemmtiatriði sem góður rómur var gerður að.
Kennsla á Kjarnanámskeiði. Ragnhildur Sigurðardóttir aðstoðarleikskólastjóri kenndi á Fagnámskeiði III hjá MSS 23. nóv. ´07 um ,,innra starf leikskóla”.
Börn og byggingar. Inga María leikskólastjóri og Ragnhildur aðst.leikskólastjóri fóru á ráðstefnuna 23. nóv. ´07 á Grand hóteli á vegum Félags leikskólakennara og leikskólafulltrúa.
6 kennarar Tjarnarsels héldu til Danmerkur á ráðstefnu um útinám dagana 23. – 26. janúar ´08. (sjá fylgiskjal 3).
Margrét Kolbeinsdóttir kenndi á Fagnámskeiði IV hjá MSS 8. febrúar ´08 um vettvangsferðir.
Einnig kynnti Margrét vettvangsferðir á starfsmannafundi 12. febr. ´08 í leikskólanum.
Viðurkenning fyrir fjölskyldustefnu veitt í Duushúsum 21. febrúar 2008 á degi um málefni fjölskyldunnar. Leikskólinn fékk viðurkenningu frá Fjölskyldu- og félagssviði Reykjanesbæjar fyrir að taka tillit til þarfa fjölskyldunnar.
Tveir starfsmenn leikskólans Hjallatún komu og kynntu sér starfið í Tjarnarseli 25. apríl ´08, dvöldu hér frá 8:30 – 11:30, en þetta var liður í skipulagsdegi Hjallatúns.
Ellefu manns frá leikskólaráði Reykjavíkurborgar komu og fengu kynningu og skoðuðu leikskólann 5. maí ´08.
Starfsfólk Tjarnarsels var tilnefnt til Foreldraverðlaunanna 2008 á vegum Heimilis og skóla, tilnefndar ásamt 34 öðrum leik- og grunnskólum á landsvísu.
Verðlaunaafhending var í Menningarhúsi í Reykjavík 15. 5. ´08. Leikskólastjóri ásamt nokkrum starfsmönnum, og formaður foreldrafélagsins í Tjarnarseli (en það tilnefndi okkur) fóru á viðburðinn, og fékk leikskólinn foreldraverðlaunin fyrir lestrar- og skriftarhvetjandi umhverfi í skólanum.
Kynning á vettvangsferðum í KHÍ. Inga María og Margrét Kolbeinsd. kynntu vettvangsferðir leikskólans 16. maí ´08 og voru það fyrstu skref leikskólans inn í GETA verkefnið (sjá námskeið, fyrirlestur, ráðstefnur o.fl.)
Úthlutað var úr Manngildissjóði 22. maí ´08. Tjarnarsel fékk úthlutað háum styrk fyrir að vera móðurskóli Táknmáls í Reykjanesbæ.
30 kennarar af leikskólanum Velli á Vallarheiði komu og kynntu sér starfsemi leikskólans 30. maí ´08.
10 manns frá Menntamálaráðuneytinu og landssamtökum Heimila og skóla komu í heimsókn og fengu kynningu á starfsemi leikskólans og verkefninu ,,Lestrar- og skriftarhvetjandi umhverfi í skólanum” 2. júní ´08. Inga María og Ragnhildur kynntu verkefnið. Í móttökunefnd voru einnig, Eiríkur fræðslustjóri og Guðríður leikskólafulltrúi.
Starfsmenn Sólvalla voru tilnefndir til hvatningarverðlauna Reykjanesbæjar og fengu viðurkenningu í Duushúsum 11. júní ´08.
Kynningarfundur fyrir foreldra nýrra nemenda, haldinn 10. júní ´08. Foreldrar fengu kynningu á skólanum og áherslum hans. Foreldrar skoðuðu yngstu deildina og var góð mæting foreldra.
Listsýning á verkum nemanna í leikskólanum haldin í Bókasafni Reykjanesbæjar 28. maí til 4. júní ´07.
Þess má geta að kennarar skólans eru duglegir að kynna allt starfið á vefsíðu leikskólans. Einnig hafa þeir verið iðnir að senda fréttir í staðarblöð og landsblöð og fengið jákvæða og góða umfjöllun.
Í október 2007 skiptust stöðugildi þannig:
Leikskólakennarar: 8 starfsmenn 7,35 stöðugildum.
Leiðbeinendur: 15 starfsmenn í 16,62 stöðugildum.
Starfsfólk í eldhúsi: 2 starfsmenn í 1,6 stöðugildum.
Af ofangreindum stöðugildum voru 3,37,5 stöðugildi í sérkennslu.
Starfsmannafundir eru einu sinni í mánuði. Á fundinum er upplýsingum og fróðleik komið á framfæri. Einnig eru fundirnir nýttir m.a. til að endurmeta og skipuleggja starf leikskólans. Í lok starfsmannafunda eru haldnir deildafundir, þar sem farið er yfir málefni deildanna.
Deildarstjórafundir eru einu sinni í mánuði fyrir starfsmannafund. Á fundunum eru leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri og deildarstjórar. Fundirnir eru nýttir til að ræða faglegt starf leikskólans og taka sameiginlegar ákvarðanir. Einnig vettvangur fyrir leikskólastjóra að koma áleiðis upplýsingum til deildarstjóra.
Samráðsfundir leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra eru á sameiginlegum tíma á skrifstofu.
Undirbúningstímar eru einu sinni í viku hjá hverjum starfsmanni sem vinnur inni á deild. Ófaglærðir fá 2 tíma, leikskólakennarar 4 tíma og deildarstjórar 5 tíma á viku miðað við 100% starf. Í undirbúningstímum er hópastarfið og annað faglegt starf undirbúið og skipulagt. Einnig eru þeir nýttir til foreldraviðtala.
Fagfundir leikskólafulltrúa og leikskólastjóra í Reykjanesbæ eru haldnir einu sinni í mánuði.
Leikskólafulltrúi kemur á viðverufund til leikskólastjóra í leikskólann einu sinni í mánuði og heldur 2 fundi á ári með aðstoðarleikskólastjórum í Reykjanesbæ
Sérkennslufulltrúi heldur mánaðarlega fundi með leikskólastjóra deildarstjórum og sérkennslustjóra í leikskólanum og rætt er um þau börn sem njóta sérstuðnings, framvindu og leiðir og greiningar sem framundan eru og gefur fagleg ráð. Einnig hélt hann fund með kennurum sem sjá um sérkennslu í leikskólum Reykjanesbæjar, þar sem farið var yfir einstaklingsnámskrár og samskiptabækur.
Sérkennslustjóri hélt fundi um fjölmenningu í okt., 30. nóv. ´07, apríl ´08 og sat þá fulltrúi leikskólans sem er aðstoðarleikskólastjórinn.
Trúnaðarmannafundir; Trúnaðarmaður FL í leikskólanum fór á trúnaðarmannanámskeið í Kaffitári vorið ´08 og trúnaðarmannanámskeið í Rvík einnig.
Skipulagsdagur 9. nóvember ´07. Hópefli á vegum Mörtu Eiríksdóttur fyrir hádegi og unnið að gerð sögupoka o.fl. eftir hádegi.
Skipulagsdagur 22. apríl ´08. Haldinn á vegum 10. svæðadeildar FL, þar sem starfsfólk frá flestum leikskólum Reykjanesbæjar og nágrannasveitarfélaga komu saman í Kirkjulundi og hlustuðu á góða fyrirlestra frá 9-16. Aðstoðarleikskólastjóri í nefnd sem stóð að þeim undirbúningi.
Skipulagsdagur 16. júní ´08. Verður unnin í okt. 2008.
Skipulagsdagur 18. ágúst ´08. Svanborg R. Jónsdóttir flutti fyrirlestur um nýsköpunarmennt og starfsfólk vann í hópum. Einnig nýttur til að koma leikskólanum í eðlilegt horf eftir viðhaldsvinnu og hreingerningu sem gerð var í sumarleyfinu.
Endur- og símenntun starfsmanna
Menntun starfsmanna 1. okt. ´07
Leikskólakennarar: 9 starfsmenn.
Fjarnám í leikskólafræðum á 4. ári við Kennaraháskóla Íslands; 1 starfsmaður.
Nám í fjarnámi í þroskaþjálfabraut við KHÍ: 1 starfsmaður.
Nám á 3. ári í leikskólafræðum við Háskóla Akureyri: 1 starfsmaður
Meistaranám í stjórnun lokaár, 1 starfsmaður
Grunnskólapróf og önnur menntun: 12 starfsmenn
Nýjar stöðuveitingar.
Dóra Eggertsdóttir tók að sér skilastöðu í jan. ´07 og síðan fullt starf frá maí fram að sumarleyfi.
Tveir fjarnámsnemar við leikskólaskor KHÍ og HA fóru staðarlotur í skólann.
María Hauksdóttir lét af störfum 15. sept. ´07.
Einn nemi við KHÍ fór í 8 vikna vettvangsnám haustið ´07
Veikindaleyfi.
Ásta S. var í veikindaleyfi frá 1. okt. ´07 – 18. ágúst ´08
Fanney Sigurðardóttir var í veikindaleyfi frá 11. febr. – 1. maí ´08.
Hjálmey Einarsdóttir var í veikindaleyfi frá 5. maí – 14. júlí ´08
Uppsagnir.
María Hauksdóttir hætti störfum 15. sept. ´07
Launalaust leyfi
Sigrún Sigurðardóttir þroskaþjálfanemi á síðasta ári fór í launalaust leyfi frá 24. ágúst ´07 og sagði síðan starfi sínu lausu frá áramótum ´08. Ingunn Ósk Ingvarsdóttir fór í launalaust leyfi frá 1. mars – 25. ágúst ´08.
Flutningur barna milli deilda
Skólinn býr við þá sérstöðu að hver deild er með hreinan árgang vetrarstarfið allt. Síðasta dag fyrir sumarleyfi færast allir yfir á næstu aldursdeild og kennararnir einnig. Þetta gerum við á skemmtilegan hátt, þ.e. allir hittast í sal og eru deildirnar afhentar formlega með fánum, barmmerkjum, vísum og söng. Síðan er ,,marserað” yfir á nýja deild.
Þannig verður deild yngstu nemanna auð og strax að loknu sumarleyfi byrjar aðlögun yngstu nemanna inn í skólann.
Í október 2007 voru alls 84 börn í Tjarnarseli.
Árg. 2002, alls 22 börn,
Árg. 2003, alls 22 börn,
Árg. 2004, alls 20 börn,
Árg. 2005, alls 20 börn,
Í október 2007 voru alls 5 börn í Tjarnarseli sem nutu sérstuðning í alls 2,12% stöðugildum. Sérkennslufulltrúi Reykjanesbæjar kom mánaðarlega í skólann og hélt fund með sérkennslustjóra leikskólans sem var Ragnhildur Sigurðardóttir.
Þar sem börnin dvelja mikinn hluta dagsins í leikskólanum teljum við mikilvægt að góð samvinna og traust skapist milli foreldra og starfsfólks. Að gott upplýsingaflæði þurfi að vera fyrir hendi milli þessara aðila til þess að dvöl barnsins verði sem ánægjulegust. Við leggjum okkur fram við að bjóða foreldra velkomna hvenær sem þeir óska og hvetjum þá til að koma í heimsókn og fylgjast með starfseminni.
25. sept. ´07 var haldinn foreldrafundur og aðalfundur foreldrafélagsins (sjá Foreldra-félag)
18. jan. '08 var foreldrum elstu barna skólans boðið á kynningarfund um væntanlega lestrarkennslu og stendur yfir í 10 vikur og hefst 28/1. Sýnt í máli og myndum hvernig undirbúningi og framkvæmd er háttað og foreldrar hvattir til samstarfs. Leikskólakennarar hópanna kynntu markmið með starfinu og leiðir til að ná þeim. Fundurinn var haldinn e.h. á vinnutíma og var góð mæting foreldra á fundinn.
4. júní '08 var kynningarfundur fyrir foreldra nýrra barna. Á fundinum var foreldrafélagið kynnt, aðstoðarleikskólastjóri kynnti markmið og leiðir leikskólans í grófum dráttum. Deildarstjóri og starfsfólk Mánavalla kynnti hugmyndir að áhersluþáttum deildarinnar. Mjög góð þátttaka foreldra.
Foreldraviðtöl, fréttabréf
Foreldraviðtöl. Í afmælismánuði barnsins er foreldrum boðið að fá viðtal við deildarstjóra sem hópstjóri/tengill viðkomandi barns situr einnig Á haustin gera hópstjórar ,,atferlisathugun” á hverju barni í sínum hópi og endurskoða hana í janúar. Í samtalinu er foreldrum m.a. greint frá niðurstöðum.
Fréttabréf leikskólans voru fimm á síðasta starfsári. Þau komu út í, nóvember, desember, janúar, apríl og júní. Í fréttabréfinu er upplýsingum komið á framfæri við foreldra hvað varðar starfið í leikskólanum.
Þann 6. febr. ´08 var opið hús í leikskólanum í tilefni af Degi leikskólans og bar það upp á öskudag. Allmargir foreldrar komu og heimsóttu leikskólann og tóku þátt í öskudagsgleði barnanna.
Foreldrafélag Tjarnarsels er skipað sex fulltrúum foreldra og einum starfsmanni leikskólans.
Foreldrafélagið stóð m.a. fyrir:
v Aðalfundi 25. sept. ´07. Fundurinn hófst með því að deildarstjórar allra deildanna kynntu starfsáætlun fyrir veturinn í máli og myndum. Síðan voru venjuleg aðalfundarstörf. Formaður foreldrafélagsins kvaddi eftir fjögurra ára frábæra formennsku og kosin var ný stjórn.
v Jólaballi sem var 14/12 ´07 í Heiðarskóla. Það var vel sótt og áttu foreldrar og börn ánægjulega stund saman með góðum gestum.
v Leiksýningu 7/3 '07 í Myllubakkaskóla að sjá leikritið með Skoppu og Skrýtlu.
v Páskaeggjaleit í skrúðgarðinum 14/3 ´08. Foreldrafélagið gaf öllum nemunum páskaegg í tilefni páskahátíðarinnar. Útbúin var ratleikur í skrúðgarðinum þar sem nemendur skemmtu sér við að finna eggin.
v Tilnefningu til Foreldraverðlaunanna 2008 fyrir lestrar- og skriftarhvetjandi umhverfi í skólanum.
v Sölusýningu á sumarhátíð leikskólans þann 4. júlí ´08 þar sem listaverk eftir leikskólabörnin voru til sölu. Þetta var einn liður í fjáröflun félagsins.
v Fréttabréfi í nóv. ´07 og apríl ´08.
v Foreldrafélög leikskólanna í Reykjanesbæ héldu sameiginlegan fund 8. apríl í Kirkjulundi fyrir foreldra þar sem kynnt var verkefnið Blátt áfram – sem er forvarnarverkefni og afhentu síðan öllum leikskólabörnum bókina – Þetta eru mínir einkastaðir
v Kynningu á foreldrafélaginu 4. júní. ´08 á fundi með nýjum foreldrum.
v Gjöf til leikskólans. Fulltrúar foreldrafélagsins færðu Tjarnarseli kaðla og rólur og hljómflutningstæki að gjöf á sumarhátíðinni 4. júlí ´08.
Ráðgjöf og samstarf við rekstraraðila Leikskólinn hefur aðgang að ráðgjöf og þjónustu frá Fræðslusviði Reykjanesbæjar. Meðal annars við talmeinafræðing, sálfræðinga, sérkennslufulltrúa, leikskólafulltrúa, félagsráðgjafa og fleira fagfólk. Fræðslusviðið hefur staðið fyrir námskeiðum og fyrirlestrum fyrir starfsfólk leikskólans. Leikskólafulltrúi hélt mánaðarlega fund með leikskólastjóra og kom hann þá í leikskólann. Leikskólafulltrúi fundar mánaðarlega sameiginlega með öllum leikskólastjórum Reykjanesbæjar. Einnig hélt hann einn fund með aðstoðarleikskólastjórum. Sérkennslufulltrúi kom mánaðarlega inn í skólann og fundaði með sérkennslustjóra um börn er njóta sérkennslu. Fylgist vel með og gefur okkur fagleg ráð (sjá Starfsmenn – fundir). Leikskólinn hefur einnig gott samstarf við starfsfólk bæjarskrifstofu, þjónustumiðstöðvar, ÍAV og Fasteignar h.f. Allt okkar samstarf við rekstraraðila hefur verið mikið og gott í gegnum árin.
v Samstarf við Brunavarnir Suðurnesja (sjá öryggismál).
v Forstöðumaður bókasafns Reykjanesbæjar kom og afhenti leikskólanum bókakassa sem inniheldur myndskreyttar barnabækur sem lesnar hafa verið inn á geisladiska fyrir börn af erlendum uppruna sem dvelja í leikskólanum og foreldrar geta fengið lánaðar heim undir yfirskriftinni ,,Gaman að lesa saman”. Bæklingi á ísl., ensku og pólsku verður dreift til forráðamanna barnanna um bókakassann og notkun. Einnig færði forstöðumaður leikskólanum bókina ,,Stóra myndorðabókin” sem er á fjórum tungumálum.
v Samstarf við bókasafn Reykjanesbæjar hefur ætíð verið farsælt og má geta þess að nemendur Ljósvalla fóru vikulega í sögulestur í bókasafnið og las þar Kolbrún Sveinsdóttir starfsmaður bókasafnsins fyrir þau. Þegar ekki viðraði til bókasafnsferðar (sem kom fyrir) þá fengum við Kolbrúni til okkar og las hún fyrir nemendur í leikskólanum.
v Samstarf við Greiningarstöð ríkisins var í tengslum við börn sem dvelja í leikskólanum og njóta sérkennslu.
v Samstarf við fjölskyldu og félagsþjónustu hefur verið mikið og gott í gegnum tíðina.
v Samstarf við Þroskahjálp á Suðurnesjum m.a. við sjúkraþjálfa og fjölskylduráðgjafa.
v Samstarf við samskiptamiðstöð heyrnalausra vegna heyrnaskerts nemenda.
v Samstarf við Landvernd vegna Grænfána
v Samstarf við Dacoda vegna heimsíðu leikskólans.
v Samstarf við listamenn í Reykjanesbæ.
v Samstarf við fagaðila hjá skrifstofu Reykjanesbæjar.
v Samstarf við Hverfisvini vegna viðhalds í leikskóla.
Liðveisla. Starfsfólk Sunnuvalla tók starfsmann á vegum Fjölskyldu og félagsþjónustunnar í handleiðslu í þrjár vikur s.l. sumar.
Leikskólastjóri tók samtöl við alla starfsmenn leikskólans í mars, apríl og maí ´08. Starfsmannasamtöl fara fram einu sinni á ári þar sem farið er yfir útfyllt sjálfsmat og starfsmaður veltir upp sínum sterku eiginleikum. Einnig hvaða námskeið tengdri símenntun hann óski eftir.
Theodóra Mýrdal lauk leikskólakennaraprófi frá KHÍ í júní 2008.
Aldís Einarsdóttir lauk námskeiði á vegum Starfsmenntar – starfsnám stuðningsfulltrúa.
Alls 80 stundir.
Jenný Olga Eggertsdóttir, Þórey Óladóttir, Aldís Einarsdóttir og Svanhildur Ingólfsdóttir hófu leikskólaliðanám við MSS og stendur það yfir 4 annir.
Selma Kristjánsdóttir og Matthildur Emilsdóttir hófu leikskólaliðanám við Keili. Fóru í staðarlotu vikuna 9. – 13. júní og tvær vikur í ágúst ´08.
Elstu börnin í leikskólanum fóru ásamt hópstjórum í heimsóknir í Myllubakkaskóla, Holtaskóla og Heiðarskóla.
Kennarar yngsta stigs grunnskóla og elsta stigs leikskólans og deildarstjórar hittust á árinu til að ræða samstarf milli skólanna. Einnig hittust þeir á vordögum og farið var yfir gátlista sem fylltir höfðu verið út um þá nemendur sem fara í viðkomandi skóla.
Sérkennarar frá Holtaskóla komu á vordögum í leikskólann til þess að hitta þá nemendur sem munu hefja nám í skólanum að hausti.
Fyrsti bekkur ER úr Myllubakkaskóla kom í heimsókn í okt. ´07 – liður í samstarfi milli skóla. Tóku þátt í starfi og leik og snæddu með nemendum.
Elstu nemendur okkar (Sunnuvellir) heimsóttu Myllubakkaskóla í nóv. ´07. Skólinn skoðaður og snætt með nemendum.
Nóv. ´07. Elstu nem. heimsóttu Holtaskóla og skoðuðu hann í fylgd skólastjóra.
Í nóv. ´07 var Sunnuvallanemendum boðið í félagsmiðstöðina Myllubakkaskóla og sáu skemmtiatriði í tengslum við Dag íslenskrar tungu.
Skipst var á jólakortum á milli Sunnuvallanema og 1 EN í Myllubakkaskóla í des. ´07.
Skólaheimsókn í Myllubakkaskóla í janúar 2008 þar sem skólinn var skoðaður.
Í mars kom 6IH frá Myllubakkaskóla og lásu nemendur fyrir Sunnuvallanemendur (maður á mann).
Slökkvistjóri og þrír brunaverðir komu frá Brunavörnum Suðurnesjum og gerður var samningur við leikskólastjóra um eldvarnir og fræðslu í leikskólanum ásamt elstu nemendum skólans. Tveir fulltrúar þeirra tóku á móti vestum (Glóð og Logi) og fengu verkefni sem þau munu vinna í vetur sem varðar eldvarnir – einnig er ráðgert að það muni skila sér inn á heimilin (sjá fylgiskjal 4).
Þjónustuaðili gagnvart brunavörnum leikskólanna er Öryggismiðstöð Íslands.
Brunaæfing er einu sinni á ári á haustin. Deildarstjórar endurmeta fyrri rýmingaráætlanir einu sinni á ári. Að þessu sinni var æfingin 26. sept..´07. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja komu og reykfylltu húsið. Húsið var rýmt skv. rýmingaráætlun hússins og þurftu nemendur tveggja deilda að forða sér út um glugga. Allt gekk skv. áætlun og tók skamman tíma.
Slökkvitæki eru yfirfarin einu sinni á ári.
Lúlli löggubangsi kom í heimsókn 14. nóv. ´07 og rifjaði upp með okkur umferðarreglurnar. Að endingu færði hann nemendum endurskinsmerki að gjöf.
Fulltrúar frá Securitas komu 22. jan. ´08 og yfirfóru allt öryggis- og brunakerfi skólans.
Fulltrúar frá viðhaldsþjónustunni Mímo ehf. komu 30. mars ´08 og yfirfóru loftræstistokka leikskólans og hreinsuðu það sem þurfti.
Fulltrúar frá Slysavarnarfélagi Íslands komu í heimsókn vorið ´08 og afhentu öllum nemendum leikskólans bæklinginn ,,Öryggi barna í bíl” frá Umferðarstofu, en SVÍ gerðu könnun í Reykjanesbæ á árinu um hversu mörg börn voru laus í bílum og voru þau allt of mörg.
Umferðarskólinn á vegum Umferðarstofu kemur orðið einu sinni á ári og er með umferðarfræðslu fyrir tvo elstu árgangana (sjá menningarviðburðir og aðrar skemmtanir).
Fulltrúi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja kom í nóvember ´07, til að skoða leikskólalóð eftir endurgerð.
Öryggisfulltrúi og ,,húsvörður” leikskólans er Kristrún Samúelsdóttir.
Beðið var um að mála grindverk, dótaskúr, glugga – laga niðurfall v/Álnabæ.
Tyrfa hólinn – skipta um sand í sandkassa – laga og mála palla o.fl og helst að fá gúmmímottur í kringum gormatæki og bíl.
Útileiksvæði:. Hólinn tyrfður, pallar slípaðir og málaðir.
Enn er eftir; Að skipta um útihurð í þvottahúsi. Að bera á hurðir og glugga. Ekki voru lagaðar niðurfallsristar við Álnabæ. Ekki var skipt um sand í sandkassa.
Innanhúss: Málaðar allar deildir og gluggar, fjarlægðar hillur úr geymslu á Mánavöllum og aðrar settar í staðinn. Nýr skápur í hvíldarherbergið á Sólvöllum. Settir víða í húsinu stálúthornlistar og tréplötur yfir göt sem hafa myndast í gifsinu v/húna o.fl. Skipt út brotnum spegli, yfirfarðar og festar upp hillur í listasmiðju Ljós- og Sunnuvalla.. Skipt á þiljum í kringum salerni, málað og nýr gólfdúkur og nýir gólflistar á wc, Ljós- og Sunnuvalla. Máluð púðastofa – yfirfarnar allar skrár og læsingar á hurðum, yfirfarin lausafög, þéttingar, krækjur og stormjárn, yfirfarnir ofnar og ofnkranar, einnig niðurföll. Eldhús málað og einnig kaffistofa starfsfólks.
Fundur um málefni leik- og grunnskóla haldinn í Heiðarskóla, 18. sept. ´07.
Ásta Egilsdóttir leik- og grunnskólakennari fjallaði um samstarf leik- og grunnskóla á Akranesi. Einnig var farið í hugmyndavinnu um samstarf skólastiga í Reykjanesbæ.
Fjölmenning – framtíðarsýn haldið á vegum MSS, 2. október ´07. Ragnhildur og Inga María sóttu ráðstefnuna alls 4 tímar.
Verndum þau – fyrirlestur á vegum barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar, Rannveig yfirfélagsráðgjafi og María félagsráðgjafi flutti erindið á starfsmannafundi 2. okt. ´07 og gáfu leikskólanum tvær bækur um efnið.
Inga María sótti námskeið með Pétri Guðjónssyni á vegum Reykjanesbæjar, dagana 10. og 12. október ´07.
Ragnhildur og Fanney J. fóru á samráðsfund í Holtaskóla með leikskólanum Hjallatúni
Inga María og Ingunn Ósk fóru á málþing í KHÍ dagana 18. og 19. október ´07.
Nemar frá FS komu 4. okt. ´07 og kynntu sér starfsemi leikskólans.
Námskeið um fjölmenningu haldið á vegum MSS og Reykjanesbæjar 2. okt. ´07. Ragnhildur og Inga María sóttu námskeiðið alls 4 klst.
NEAP Prófasafnið. Námskeið haldið á vegum Heyrnar- og Talmeinastöðvar Íslands 27. sept. ´07. Brynja Brynleifsdóttir sótti námskeiðið alls 7 kennslust.
Kjaramálaráðstefna FL. Haldin í Reykjavík 5. okt. Ragnhildur Sigurðard. aðstoðarleikskólastjóri stjórnarmeðlimur í 10. svæðadeildar sótti ráðstefnuna.
Fundur í Duus húsum í jan. ´08 þar sem kynntur var vefurinn leikskóli.is fyrir öllum leikskólastjórum Reykjanesbæjar. Inga María og Ragnhildur sóttu fundinn.
Fundur um lestrarmenningu í leikskólum haldinn á bæjarskrifstofu á vegum leikskólafulltrúa með deildarstjórum elstu nem. í öllum leikskólum bæjarins 18. jan. ´08. Fanney Jósepsd. sótti fundinn.
Virðing og jákvæð samskipti. Gerður Pétursdóttir verkefnastjóri í Gefnarborg, kom á starfsmannafund í febr. ´08 og sagði okkur frá þróunarverkefni í leikskólanum Gefnarborg í Garði.
Ráðstefna um útikennslu haldin á Jótlandi í Danmörku í jan. ´08. Ráðstefnan innihélt fyrirlestra um ferskar hugmyndir og aðferðir í markvissu útinámi. Inga María, Ragnhildur, Margrét, Fanney J., Tína og Ólafía sóttu ráðstefnuna. (sjá fylgiskjal 3).
Táknmálsnámskeið á vegum MSS í febr. ´08. Margrét Kolbeinsdóttir og Aldís Einarsdóttir sóttu námskeiðið alls 15 klst.
Stuðningsfulltrúanám – Aldís Einarsdóttir sótti námskeiðið sem hófst 18. febr. ´08
Leikskólabrú á vegum MSS hófst 26. febr. ´08 og stendur yfir í 4 annir. Þórey Óladóttir, Svanhildur Ingólfsdóttir, Aldís Einarsdóttir og Jenný Eggertsdóttir hófu námið.
Aðalfundur FL haldinn 13. og 14. mars ´08 á Grand hóteli í Rvík. Margrét Kolbeinsdóttir gjaldkeri 10. svæðadeildar FL sótti ráðstefnuna.
Leikskólastjórar í Keflavíkursókn fóru á fund í febr. ´08 með séra Skúla Ólafsyni og Erlu Guðmundsdóttur æskulýðsfulltrúa. Rætt var um samstarf kirkju og leikskóla.
Kristinn Hilmarsson talmeinafræðingur hélt námskeið 4. apríl ´08 í Tjarnarseli um Hljóðþróun og framburð – hagnýt verkefni. Alls mættu 19 kennarar frá leikskólunum í Reykjanesbæ og nágrannabyggðarlögum.
Vinnufundur um forvarnarmál í Reykjanesbæ, haldinn 7. apríl. Margrét Kolbeinsd. mætti f.h. Tjarnarsels.
Rödd barnsins – ráðstefna haldin í Borgarleikhúsinu 18. apríl ´08. Inga María og Ragnhildur sóttu ráðstefnuna.
Táknmálsnámskeið haustið ´07 og vorið ´08. Kennarar Sólvalla sóttu námskeiðin og var kennari frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra, alls 10 vikur.
Jóga með börnum. Fanney Jósepsdóttir og Ásta Sigurðardóttir sóttu námskeiðið í maí ´08.
GETA til sjálfbærni – menntun til aðgerða, ráðstefna í KHÍ 20. maí og 16. júní ´08. Inga María, Ragnhildur og Margrét sóttu ráðstefnuna (sjá fylgiskjal 5).
Fundur á bæjarskrifstofu í jan. ´08 þar sem kynnt var forritið Mentor. Ragga sótti fundinn.
Námskeið fyrir leikskólastjórnendur 28. mars ´08, þar sem farið var úr Stundvísi yfir í Mentor. Ragnhildur sótti námskeiðið.
Enn einu viðburðarríku starfsári leikskólans er lokið og mörgum minnisverðum atburðum.
Hæst ber að starfsfólk Tjarnarsels hlaut foreldraverðlaunin 2008 frá Heimili og skóla sem eru Landssamtök foreldra, fyrir lestrar- og skriftarhvetjandi umhverfi í skólanum, fyrst allra leikskóla á landinu. Slík viðurkenning styrkir okkur á þeirri frumkvöðlastarfsemi sem við hófum fyrir fimm árum með formlegu tíu vikna lestrar- og skriftarnámskeiði.
Leikskólinn fékk einnig viðurkenningu frá Fjölskyldu- og félagssviði Reykjanesbæjar – fyrir að vera stofnun sem tekur tillit til þarfa fjölskyldunnar þ.e. okkar fjölskyldustefnu.
Við erum alltaf að þróa enn frekar vettvangsferðavinnu okkar og á liðnu ári hóf leikskólinn
þátttöku í rannsóknar- og þróunarverkefninu GETA til sjálfbærni – menntun til aðgerða sem er unnið við KHÍ og HA í samstarfi við nokkra aðra háskóla á árunum 2007 – 2010. Markmið verkefnisins er annars vegar að efla rannsóknir á menntun til sjálfbærni og hins vegar að þróa leiðir til að efla menntun til sjálfbærni á Íslandi. Unnin verða þróunarverkefni í samstarfi við þrjá leik-, grunn- og framhaldsskóla á skólaárinu 2008 – 2009. Enn eitt spennandi verkefnið framundan sem allir í leikskólanum taka þátt í.
Leikskólinn fékk úthlutað úr Manngildissjóði í maí s.l. fyrir að vera móðurskóli táknmáls í Reykjanesbæ og voru Sólvellir tilnefndir til hvatningarverðlauna Reykjanesbæjar fyrir kennslu í táknmáli og frábærs stuðning við nemanda deildarinnar sem er táknmálstalandi.
Nú þegar hafa verið haldin sex, fimm vikna táknmálsnámskeið í leikskólanum sem sex leikskólakennarar hafa setið.
Sífellt eru starfsmenn hvattir til menntunar og endurmenntunar og á árinu hófu sex leiðbeinendur nám við leikskólabrú Keilis og leiðskólaliðanám við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Leikskólastjóri hefur undanfarið ár unnið að meistararannsókn sinni þar sem hún rannsakar starfs- og kennsluaðferðir sex leikskólakennara í Tjarnarseli.
Sex leikskólakennarar leikskólans fóru til Danmerkur á ráðstefnu um útinám í janúar s.l. og flestallt starfsfólkið fór í skemmtiferð til Englands í júní ´08. Samheldni og stöðugleiki starfsfólks er afar mikill og styrkur fyrir allt starf leikskólans. Mikið er um gestakomur í leikskólann annars vegar frá ,,gömlum” nemendum og foreldrum og hins vegar af fagfólki víðs vegar að sem er að kynna sér starfshætti leikskólans og ber þar hæst heimsókn starfsfólks menntamálráðuneytisins og heimilis og skóla.
Reykjanesbæ í september 2008
_________________________________________
Ragnhildur Sigurðardóttir aðstoðarleikskólastjóri
__________________________________________
Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri