EFNISYFIRLIT.. 1
Almennar upplýsingar. 2
Leikskóli 2
Starfið sl. leikskólaár. 2
Starfsáætlun. 2
Dagatal leikskólans. 2
Innra mat á starfinu, framkvæmd og niðurstöður. 3
Þróunar og nýbreytnistarf. 3
Námskrá yngsta- og næst-yngsta aldurstigsins. 3
Menningarviðburðir, ferðir, sýningar, hefðir og hátíðir. 3
Menningarviðburðir og aðrar skemmtanir. 4
Kynning á leikskólanum út á við.. 5
Uppeldisstarf, áherslur og markmið.. 6
Matsaðferðir. 6
Starfsmenn.. 7
Stöðugildi 7
Fundir. 7
Flutningur barna milli deilda.. 9
Endur- og símenntun starfsmanna.. 9
Nýjar stöðuveitingar. 10
Framhalds-, leikskólakennara- og þroskaþjálfakennaranám við KHÍ og HA og nemar. 10
Foreldrasamstarf. 10
Áherslur og markmið. 10
Foreldrafundir. 11
Foreldraviðtöl, fréttabréf 11
Foreldrafélag. 11
Samstarf – fræðsla - ráðgjöf. 12
Ráðgjöf og samstarf við rekstraraðila. 12
Samstarf við aðra.. 12
Samstarf við grunnskóla.. 12
Öryggismál. 13
Breytingar og viðhald.. 13
Námskeið, fyrirlestrar, ráðstefnur o. fl. 13
Lokaorð.. 15
Tjarnarsel, Tjarnargötu 19 – sími 420-3100
netfang: tjarnarsel@reykjanesbaer.is
Veffang: www.tjarnarsel.is
Leikskólinn Tjarnarsel er rekinn af Reykjanesbæ. Hann er elsti leikskólinn í bæjarfélaginu, opnaður 18. ágúst 1967 og var 40 ára í ágúst s.l. Í skólanum dvelja alls um 85 börn á fjórum aldursskiptum deildum: Mánavellir, deild 2ja ára barna, Sólvellir, deild 3ja ára barna, Ljósvellir deild 4ra ára barna og Sunnuvellir, deild 5 ára barna.
Starfsmannasamtöl fara fram einu sinni á ári þar sem farið er yfir útfyllt sjálfsmat og starfsmaður veltir upp sínum sterku eiginleikum. Einnig hvaða námskeið tengdri símenntun hann óski eftir.
Dagatal fyrir haust- og vorönn 2006/2007 var kynnt á starfsmannafundi í sept. ´06. Þá var farið yfir það sem er á döfinni allt skólaárið og starfsfólk fékk tækifæri til þess að koma með athugasemdir (sjá fylgiskjal 1).
Tvö síðastliðin ár hafa stjórnendur leikskólans ásamt öðru starfsfólki unnið að því að útbúa námskrá hvers aldursstig fyrir sig. Enn er þessi vinna í gangi og stefnt er að því að ljúka henni á næsta skólaári.
Umhverfissáttmálar í hávegum hafðir á hverri deild
Lífræn flokkun í eldhúsi. Keyptur var safnkassi í eldhús þar sem matráðar sjá um að flokka lífrænan úrgang.
Moltugerð er í fyrirrúmi og skiptast deildirnar vikulega að sjá um að ,,hræra” í jarðvegsgámunum á útisvæði og einnig fer fram moltugerð inni á deildum með nemendum.
Grænfáninn. Það var svo 17. ágúst '07 að leikskólinn fékk afhentan Grænfánann sem viðurkenningu fyrir frábært starf í umhverfismálum.
Tjarnarsel er fyrsti skólinn á Suðurnesjum sem nær þeim áfanga að stíga skrefin sjö og
fá afhentan Grænfánann. Verkefnið á nú töluverðu fylgi að fagna á Suðurnesjum.
Styttri kynnisferðir. Í hópastarfi sem er þrisvar-fjórum sinnum í viku er farið að mestu í vettvangsferðir. Þá eru svæði eins og Skrúðgarður, Nónvarða, Vatnsholt, Hrauntúnsholt, Skólaholt, fjaran, Smábátahöfnin, skoða skipið Íslending á Fitjum, og ótal önnur svæði könnuð í öllum sínum fjölbreytileika. Flest er farið gangandi en þó stundum með strætisvögnum bæjarins.
Lengri ferðir. Í ævintýraviku elstu barna leikskólans er farið í styttri og lengri ferðir. Í vor var farið; í Fræðasetrið í Sandgerði, slökkvistöðina í Reykjanesbæ og að skoða skipið Íslending á Fitjum. Í útskriftarferð var farið með vinaleikskólanum okkar sem er leikskólinn Arnarsmári í Kópavogi á Duussvæðið þar sem margir ævintýralegir hlutir voru skoðaðir s.s. bátasafnið, hellirinn,skipið Baldur og fl. síðan var grillað saman og farið í leiki.
Ljósanótt. Nemendum boðið að vera viðstödd setningu Ljósanæturhátíðar Reykjanesbæjar við Myllubakkaskóla 30/8 ´07.
Uppskeruhátíð var haldin í tengslum við uppskeru úr skólagörðum og úr matjurtagarði Tjarnarsels. Hátíðin var haldin 24/8 ´07 í sal skólans þar sem fram fór einnig söngstund og var að mestu sungin grænmetislög. Allir fengu að smakka á grænmetisuppskerunni og Sunnuvallanemendur gáfu öllum nýuppteknar kartöflur í poka með sér heim.
Inni-íþróttadagur. Sól-, Ljós- og Sunnuvallanemendum boðið í íþróttahúsið við Sunnubraut 26/3 ´07. Tveir foreldrar buðu okkur í hreyfistund og þeim til aðstoðar voru nemendur í sérdeild Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Mánavallanemendur héldu sinn inni-íþróttadag í leikskólanum.
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu sem við héldum uppá föstudaginn 16/11´06 fluttu kennarar Sólvalla leikþátt um íþróttaálfinn og hans vini í Latabæ fyrir alla nemendur skólans, einnig voru sungin gömul íslensk þjóðlög.
Norræn bókasafnsvika. Í tilefni af norrænu bókasafnsvikunni kom Svanhildur Eiríksdóttir bókasafnsfræðingur 17/11 ´06 og las bækur fyrir þrjá elstu árgangana.
Lúlli löggubangsi kom í heimsókn og rifjuðu upp með okkur umferðareglurnar. Að endingu færði hann nemendum endurskynsmerki að gjöf.
Dagur bókarinnar 17/12 ´06. Í því tilefni komu fjölmargir foreldrar í heimsókn og lásu upp fyrir börnin.
Jólasögustund 15/12 ´06. Gréta Eiríksdóttir flutti okkur jólaguðspjallið.
Jólastund starfsfólks 15/12 ´06. Starfsfólk kom saman og átti góða kvöldstund með tilheyrandi jólamat og skemmtun.
Jólastund í Duushúsum 13/12 ´06. Sunnuvallanemendum boðið í jólastund á brúðusýninguna Höll ævintýranna í flutningi Möguleikhússins.
Fjölskyldudagur í Kirkjulundi var haldinn 12/12 ´06. Sunnu-, Ljós- og Sólvallanemar voru með samverustund fyrir foreldra. Sunnuvallanemar fluttu helgileik og Ljós- og Sólvallanemar fluttu leikþætti og sungin voru jólalög. Boðið var upp á kaffi og smákökur sem nemarnir höfðu bakað. Frábær þátttaka og tókst samverustundin í alla staði mjög vel. Þann sama dag buðu Mánavallanemar foreldrum sínum í leikskólann þar sem gengið var í kringum jólatréð í salnum og síðan var boðið upp á smákökur og kaffi. Góð þátttaka.
Jólahelgistund. Þann 18/12 ´06 var börnum í tveimur elstu árgöngunum boðið að koma í kirkjuna ásamt nemum frá öðrum leikskólum bæjarins, þar sem haldin var jólahelgistund. Elstu nemendur Tjarnarsels sáu um helgileikinn í þetta sinn.
Litlu jólin voru haldin hátíðleg 19/12 ´06 á sal skólans. Sungið og dansað í kringum jólatréð og tveir frábærir jólasveinar komu í heimsókn sem skemmtu börnunum. Boðið var upp á hangikjöt með öllu tilheyrandi í hádegismat. Við fengum gest frá Mjólkursamsölunni sem kom til að mynda fallega jólatréð okkar sem var skreytt með myndum af mjólkurfernum.
Bóndadagurinn var haldinn hátíðlegur 19/1 ´07 með því að bjóða pöbbum og/eða öfum að koma í morgunmat/síðdegishressingu. Frábær þátttaka.
Þorrablót var 2/2 '07. Til þess að gera daginn eftirminnilegan var komið saman á sal skólans og sungnar ,,þorravísur”. Sýning var á gömlum munum og leikföngum sem er í eigu starfsfólks leikskólans og Byggðasafnsins. Einn kennari skólans klæddi sig upp í gömul húsfreyjuföt og útskýrði og sýndi hina ýmsu hluti og brúkun þeirra. Allir fengu að smakka ,,gamlan mat” (hrútspunga, sviðasultu, slátur, hákarl, og harðfisk) og renndu þessu niður með mysu. Í hádegisverð var boðið upp á hangikjöt og slátur m/rófustöppu og kartöflumús. Frábær dagur.
Bókarkoffort frá Bókasafni Reykjanesbæ 5/2 ´07. Koffortið er ætlað til að auðvelda nemendum og foreldrum að fá bækur lánaðar heim.
Mömmu- og ömmukaffi 16/2 ´07. Í tilefni konudags var mömmum og ömmum nemenda boðið upp á morgunkaffi. Frábær þátttaka.
Bolludagur og sprengidagur 19.og 20/2 ´07 voru með hefðbundnu sniði. Borðaðar rjómabollur og fiskibollur í tilefni af bolludegi. Saltkjöt og baunir borðað í tilefni af sprengidegi.
Öskudagur 21/2 ´07 var furðufatadagur í leikskólanum. Allir sem vilja klæðast furðufötum. Í tilefni dagsins er ,,góðgæti slegið úr kassa”, dansað og valsað um allan leikskólann.
Blái herinn. Tómas Knútsson afi eins leikskólanemenda okkar og kafari með meiru, skellti sér í sjóinn 14/5 '07 og kom færandi hendi með ýmis lifandi krabbadýr s.s. krossfiska, ígulker o.fl. gladdi þetta elstu nemendur okkar ásamt vinum okkar frá leikskólanum Arnarsmára sem heimsóttu okkur á útskriftardaginn 15/5 '07 .
Dagur umhverfisins var 25/4 ´07. Nemar Sól-, Ljós- og Sunnuvalla fóru ásamt kennurum upp í Vatnsholt að þrifu skógarlundinn okkar og svæðið þar í kring. Nemendur Mánavalla þrifu útisvæðið í leikskólanum.
Ævintýravika Sunnuvallanema 8.9.10 og 15. maí (sjá lengri ferðir bls. ??)
Sveitaferð 16/5 ´07 í boði foreldrafélagsins að Grjóteyri við Meðalfellsvatn. Umferðarfræðsla 31/5 ´07 á vegum Umferðarstofu ásamt lögreglunni í Reykjanesbæ, haldin í leikskólanum fyrir Ljós- og Sunnuvallanemendur. Var hún í formi fræðslu, myndbands og annars skemmtiefnis.
Erla Guðmundsdóttir æskulýðsfulltrúi Keflavíkurkirkju kom 1 einu sinni í mánuði og átti samverustund með börnunum.
Útskriftarhátíð elstu nema var haldin í Kirkjulundi 24/5´07. Fjölskyldum nemanna boðið til útskriftarinnar. Nemarnir allir fluttu sönglög m.a. söngva úr Dagasögum en höfundar þeirra komu og áttu góðan dag með okkur einnig lásu nokkrir nemendur stuttan texta. Leikskólastjóri talaði til þeirra og afhenti þeim blóm og viðurkenningarskjal. Að lokum var öllum boðið upp á kaffi og safa og kökur og myndasýning var á starfi nemanna.
Sumarhátíð var haldin 22/6 ´07. Fjölskyldum barnanna var boðið að taka þátt í gleðinni með okkur. Dagskráin saman stóð m.a. af leikjum, andlitsmálun, söng, útskrift og grilli. Foreldrafélagið var með sölusýningu á listaverkum eftir nemendur.
Opið hús var 17/8 í tilefni af 40 ára afmæli Tjarnarsels
Nemar frá FS komu 10/10 ´06 og kynnti sér starfsemi leikskólans og tveir nemar frá FS komu 14/2 ´07.
Fræðsluráð hélt fund í leikskólanum 9/10 '06. Ragnhildur kynnti stefnu Tjarnarsels.
Umboðsmaður barna Ingibjörg Rafnar ásamt tveimur starfsmönnum sínum kom í heimsókn í Tjarnarsel og kynnti sér starfið í leikskólanum. Hún fékk handbókina Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans að gjöf. Nemendur Sunnuvalla tóku á móti þeim með söngvum úr Dagasögum.
Meistaranemi frá KHÍ kom og kynnti sér leikskólamöppur barnanna 1/2 ´07.
Kennsla á Kjarnanámskeiði. Þrír kennarar leikskólans kenndu á kjarnanámskeiði sem haldið er fyrir leiðbeinendur í leikskólum á vegum Miðstöðvar símenntunar í Reykjanesbæ dagana 23/1 til 13/2 07. Ásta Sigurðardóttir kenndi könnunarleikinn, Margrét Kolbeinsdóttir kenndi um vettvangsferðir og Inga María Ingvarsdóttir kenndi lestrartækni. Tveir leiðbeinendur Tjarnarsels sóttu námskeiðið.
Nítján kennarar frá leikskólanum Heiðarborg í Reykjavík heimsóttu skólann
8/9´06 og fengu kynningu á starfi okkar sérstaklega lestrar og skriftarkennslu. Þær skoðuðu síðan skólann og þáðu veitingar.
Dagsverk fyrir Malaví einn nemandi frá F.S. kom og vann hjá okkur og kynnti sér starfið en kjörorð dagsins var ,,Tökum framhaldsskóla í fóstur´´ 24/11 ´06
Tveir kennarar frá Heiðarseli komu og kynntu sér aldurskiptingu á deildum 9/5 '07.
Listsýning á verkum nemanna í leikskólanum haldin í Bókasafni Reykjanesbæjar 28/5 til 4/6´07.
Einnig má geta þess að kennarar skólans eru duglegir að kynna allt starfið á vefsíðu leikskólans. Einnig hafa þeir verið iðnir að senda fréttir í staðarblöð og landsblöð og fengið jákvæða og góða umfjöllun.
Í leikskólanum er starfað samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla sem Menntamálaráðuneytið gaf út 1999. Skýr starfsmannastefna og námsskrá leikskólans gerir vinnuferlið opnara og sýnilegra fyrir starfsfólk leikskólans og foreldra leikskólabarna. Sú hugmyndafræði sem hefur þróast í leikskólanum síðustu árin er útivist, hreyfing og umhverfismál og er aðaláherslan lögð á vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans. Leikskólinn öðlaðist viðurkenningu Landverndar í ágúst s.l. Einnig er lögð áhersla á lestrarhvetjandi umhverfi. Okkar starf byggist upp á einfaldleika þar sem reynir á ímyndun, sköpun og skynjun barnsins. Allt sem gert er með barninu í leikskólanum fer fram í gegnum leikinn á forsendum barnsins. Við leggjum áherslu á að rækta tillitsemi, vináttu og kærleika á milli barna og starfsfólks. Að hver einstaklingur læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, náunganum og umhverfinu. Markmiðið er að flétta saman vettvangsnámi, umhverfis-fræðslu og lestrarhvetjandi umhverfi inn í daglegt líf og starf leikskólans. Loka markmið leikskólagöngunnar er að útskrifa sjálfstæðan, öruggan og gagnrýninn einstakling sem ber virðingu fyrir sjálfum sér, náunganum og umhverfi sínu.
Einkunnarorð leikskólans eru; hreyfing – lífsgleði – upplifun og virðing sem tengjast inn í daglegt líf leikskólans.
Aldursmiðaðar atferliskannanir að hausti og vori, (samræmdar fyrir alla leikskóla Reykjanesbæjar haustið ´03).
v Þroskapróf AAL, sem er athugunarlisti fyrir atferli leikskólabarna.
v Ofvirknikvarði fyrir 4ára og eldri.
v Ísl. þroskalistinn.
v Smábarnalistinn.
v Athyglisbrestur barna, fyrir 4ára og eldri.
v Hegðun á heimili, fyrir 4ára og eldri sem foreldrar fylla út ef um hegðunarerfiðleika er að ræða.
v Hljóm – 2, sem kannar hljóðkerfisvitund elstu barnanna í leikskólanum. Prófað er bæði að hausti og að vori.
v Orðaskil (málþroskapróf).
v Gillberg og Echlers gátlisti fyrir einhverfa einstaklinga.
v Færni barns í málnotkun og málskilningi, gróf viðmið fyrir aldurinn 1 – 4ja ára.
v Stafaþekking (könnuð hjá elstu nem. fyrir og eftir lestrar- og skriftarnámsk.)
v Lestrar- og skriftarpróf (lagt fyrir hjá elstu nem. fyrir og eftir lestrar- og skriftarnámskeið)
Í október 2007 skiptust stöðugildi þannig:
Leikskólakennarar: 9 leikskólakennarar í 8,35 stöðugildum.
Leiðbeinendur: 15 starfsmenn í 12,69 stöðugildum.
Starfsfólk í eldhúsi: 2 starfsmenn í 1,6 stöðugildum.
Af ofangreindum stöðugildum voru 2,50 stöðugildi í sérkennslu.
Starfsmannastefna leikskólans byggist á sameiginlegri sýn starfsfólksins um stefnur og leiðir í uppeldismenntun leikskólabarna. Hún byggir einnig á námsskrá leikskólans um ,,Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans”, árlegum starfsmannaviðtölum, sameiginlegum boðleiðum, reglulegum fundum o.s.frv.
Starfsmannahandbók var endurgerð haustið 2006 og komu allir kennarar skólans að henni.
Starfsmannafundir eru einu sinni í mánuði. Á fundinum er upplýsingum og fróðleik komið á framfæri. Einnig eru fundirnir nýttir m.a. til að endurmeta og skipuleggja starf leikskólans. Í lok starfsmannafunda eru haldnir deildafundir, þar sem farið er yfir málefni deildanna.
Deildarstjórafundir eru einu sinni í mánuði fyrir starfsmannafund. Á fundunum eru leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri og deildarstjórar. Fundirnir eru nýttir til að ræða faglegt starf leikskólans og taka sameiginlegar ákvarðanir. Einnig vettvangur fyrir leikskólastjóra að koma áleiðis upplýsingum til deildarstjóra.
Samráðsfundir leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra eru á sameiginlegum tíma á skrifstofu.
Undirbúningstímar eru einu sinni í viku hjá hverjum starfsmanni sem vinnur inni á deild. Ófaglærðir fá 2 tíma, leikskólakennarar 4 tíma og deildarstjórar 5 tíma á viku miðað við 100% starf. Í undirbúningstímum er hópastarfið og annað faglegt starf undirbúið og skipulagt. Einnig eru þeir nýttir til foreldraviðtala.
Fagfundir leikskólafulltrúa og leikskólastjóra í Reykjanesbæ eru haldnir einu sinni í mánuði.
Leikskólafulltrúi kemur á viðverufund til leikskólastjóra í leikskólann einu sinni í mánuði og heldur 1-2 fundi á ári með aðstoðarleikskólastjórum í Reykjanesbæ
Sérkennslufulltrúi heldur mánaðarlega fundi með leikskólastjóra deildarstjórum og kennara sem hefur umsjón með sérkennslu í leikskólanum og rætt er um þau börn sem njóta sérstuðnings, framvindu og leiðir og greiningar sem framundan eru og gefur fagleg ráð. Einnig hélt hann fund með kennurum sem sjá um sérkennslu í leikskólum Reykjanesbæjar, þar sem farið var yfir einstaklingsnámskrár og samskiptabækur.
Trúnaðarmannafundir; Trúnaðarmaður FL í leikskólanum fór á trúnaðarmannanámskeið í Kaffitári 13.febrúar ´07.
Starfsmannasamtöl
Leikskólastjóri tekur viðtöl við deildarstjórana og þeir síðan við starfsmenn sinna deilda.
Hlutverk leikskólans í nærumhverfi og atvinnulífi.
Hugmyndafræði leikskólans hefur einkennst af umhverfismennt frá árinu 1997 þar hafa vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans verið í brennidepli. Umhverfismenntin hefur verið í sífelldri þróun og í ár var engin undatekning á því. Mikil áhersla lögð á að kennarar og nemendur láti sig varða það sem viðkemur umhverfi sínu og að koma með ábendingar, til réttra aðila, ef þurfa þykir.
Samstarf við hverfisvini:
Ætíð er gott samstarf milli leikskólans og hverfisvina. |
Fyrsti bekkur ER úr Myllubakkaskóla kom í heimsókn 18/10 ´07 – liður í samstarfi milli skóla. Tóku þátt í starfi og leik og snæddu með nemendum.
Elstu nemendur okkar (Sunnuvellir) heimsóttu Myllubakkaskóla í nóv. ´05. Skólinn skoðaður og snætt með nemendum.
Í nóv. ´06 var Sunnuvallanemendum boðið í félagsmiðstöðina Myllubakkaskóla skemmtiatriði í tengslum við Dag íslenskrar tungu.
Skipst var á jólakortum á milli Sunnuvallanema og 1 EN í Myllubakkaskóla í des. ´06.
5.6. og 12. febr. ´07. Heimsókn í kennslutíma í Myllubakkaskóla.
13/3 ´07 Heimsókn í leikfimitíma í Myllubakkaskóla.
25/3 ´07 Heimsókn í bókasafn Myllubakkaskóla.
Deildarstjóri Sunnuvalla og leikskólastjóri fóru á skilafund með grunnskólakennurum og deildarstjórum yngsta stigsins í grunnskóla 15/5 ´07.
Þrír kennarar frá sérdeild Holtaskóla komu 16/5 ´07 og skoðuðu þá nemendur sem fara frá okkur í Holtaskóla haustið ´07.
Deildarstjóri Sunnuvalla og aðstoðarleikskólastjóri fóru á fund 18/5 ´07 með sérkennslufulltrúa og fulltrúum sérdeilda grunnskólanna og ræddu sérkennslubörn sem eru að ljúka dvöl sinni í leikskólanum.
Skólinn býr við þá sérstöðu að hver deild er með hreinan árgang vetrarstarfið allt. Síðasta dag fyrir sumarleyfi færast allir yfir á næstu aldursdeild og kennararnir einnig. Þetta gerum við á skemmtilegan hátt, þ.e. allir hittast í sal og eru deildirnar afhentar formlega með fánum, barmmerkjum, vísum og söng. Síðan er ,,marserað” yfir á nýja deild.
Þannig verður deild yngstu nemanna auð og strax að loknu sumarleyfi byrjar aðlögun yngstu nemanna inn í skólann.
Menntun starfsmanna 1. okt. ´07
Leikskólakennarar: 9 starfsmenn.
Fjarnám í leikskólafræðum á 4. ári við Kennaraháskóla Íslands; 1 starfsmaður.
Nám í fjarnámi í þroskaþjálfabraut við KHÍ: 1 starfsmaður
Nám á 3. ári í leikskólafræðum við Háskóla Akureyri.
Grunnskólapróf eða sambærileg menntun: 12 starfsmenn
Dóra Eggertsdóttir tók að sér skilastöðu 24/8 '06 er síðan ráðin í fullt starf 2/1 07. Ingunn Þormar leikskólakennaranemi við HA hóf störf 18/9 '06. Margrét Kolbeinsdóttir deildarstjóri tók við aðstoðarleikskólastjórastarfi 13/9 ´06 og Ragnhildur Sigurðardóttir sem leikskólastjóri sama dag. Ólafía Marelsdóttir leikskólakennari hóf störf 2/1 '07 Elísabet M. Kristinsdóttir leikskólakennari hóf störf 1/6 ´07. María Hauksdóttir hóf störf 6/6 ´07.
Fjarvistir nema.
Tveir fjarnámsnemar við leikskólaskor KHÍ og HA fóru staðarlotur í skólann.
Veikindaleyfi.
Alls var einn starfsmaður samfellt í veikindaleyfi í fimm vikur á s.l. starfsári.
Uppsagnir. Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Dóra Eggertsdóttir hættu störfum 16/8 ´07.
Launað námsleyfi.
Inga María Ingvarsdóttir var í launuðu námsleyfi frá 1/9 '06 til 3/9 '07
Launalaust leyfi Elínrós Benediktsdóttir starfsmaður frá Hæfingarstöð Suðurnesja fór í veikindaleyfi og síðan í launalaust leyfi frá og með jan '07. Sigrún Sigurðardóttir þroskaþjálfanemi fór launalaust leyfi í 1 ár vegna skólagöngu frá og með 24/8 '07.
Sigrún Sigurðardóttir hóf fjarnám í KHÍ – þroskaþjálfaskor haustið '03.
Theodóra Mýrdal er í leikskólakennaranámi 3. ári (fjarnám) við KHÍ. Hún var í fæðingaorlofi til 1/5 '07.
Ingigerður Gísladóttir nemi á 3. ári við KHÍ. Æfingakennari hennar var Fanney M. Jósepsdóttir.
Harpa Mjöll Magnúsdóttir nemi á 2. ári við HA. Æfingakennari hennar var Margrét Kolbeinsdóttir.
Þar sem börnin dvelja mikinn hluta dagsins í leikskólanum teljum við mikilvægt að góð samvinna og traust skapist milli foreldra og starfsfólks. Að gott upplýsingaflæði þurfi að vera fyrir hendi milli þessara aðila til þess að dvöl barnsins verði sem ánægjulegust. Við leggjum okkur fram við að bjóða foreldra velkomna hvenær sem þeir óska og hvetjum þá til að koma í heimsókn og fylgjast með starfseminni.
16/1 '07 var foreldrum elstu barna skólans boðið á kynningarfund um væntanlega lestrarkennslu og stendur yfir í 10 vikur og hefst 22/1. Sýnt í máli og myndum hvernig undirbúningi og framkvæmd er háttað og foreldrar hvattir til samstarfs. Leikskólakennarar hópanna kynntu markmið með starfinu og leiðir til að ná þeim. Fundurinn var haldinn e.h. á vinnutíma og var góð mæting foreldra á fundinn.
4/6 '07 var kynningarfundur fyrir foreldra nýrra barna. Á fundinum var foreldrafélagið kynnt, aðstoðarleikskólastjóri kynnti markmið og leiðir leikskólans í grófum dráttum. Deildarstjóri og starfsfólk Mánavalla kynnti hugmyndir að áhersluþáttum deildarinnar. Mjög góð þátttaka foreldra.
Foreldraviðtöl, fréttabréf
Foreldraviðtöl. Í afmælismánuði barnsins er foreldrum boðið að fá viðtal við deildarstjóra sem hópstjóri/tengill viðkomandi barns situr einnig Á haustin gera hópstjórar ,,atferlisathugun” á hverju barni í sínum hópi og endurskoða hana í janúar. Í samtalinu er foreldrum m.a. greint frá niðurstöðum.
Fréttabréf leikskólans voru fjögur á síðasta starfsári. Þau komu út í, desember, janúar, apríl og júní. Í fréttabréfinu er upplýsingum komið á framfæri við foreldra hvað varðar starfið í leikskólanum.
Foreldrafélag Tjarnarsels er skipað sex fulltrúum foreldra og einum starfsmanni leikskólans.
Foreldrafélagið stóð m.a. fyrir: Aðalfundi í október ´06. Fundurinn hófst með fyrirlestri Svanhildar Eiríksdóttur bókmenntafræðings um lestur barna. Síðan voru venjuleg aðalfundar-störf.
v Jólaballi sem var 16/12 ´06 í Heiðarskóla. Það var vel sótt og áttu foreldrar og börn ánægjulega stund saman með góðum gestum.
v Leiksýning 7/3 '07 í Myllubakkaskóla að sjá leikritið með Skoppu og Skrýtlu.
v Boli fyrir nemendur leikskólans í des. ´06. Þeim nýjungum var beitt að þeir foreldrar sem höfðu greitt árgjald foreldrafélagsins fengu boli fyrir börn sín merkta leikskólanum. Einnig voru flíspeysur með nöfnum barnanna seldar foreldrum í mars '07.
v Páskaeggjaleit í skrúðgarðinum 29/3 ´07. Foreldrafélagið gaf öllum nemunum páskaegg í tilefni páskahátíðarinnar. Útbúin var ratleikur í skrúðgarðinum þar sem nemendur skemmtu sér við að finna eggin.
v Sveitaferð. Farið var að Grjóteyri 16/5 07. Góð þátttaka.
v Sölusýningu á sumarhátíð leikskólans þann 22./6 ´07 þar sem listaverk eftir leikskólabörnin voru til sölu. Þetta var einn liður í fjáröflun félagsins.
v Fréttabréf í nóv. ´06 og í feb. '07.
v Kynningu á foreldrafélaginu 4/6. ´07 á fundi með nýjum foreldrum.
v Fulltrúar foreldrafélagsins færðu Tjarnarseli myndavél að gjöf í tilefni 40 ára afmæli leikskólans 20/8 '07
Ráðgjöf og samstarf við rekstraraðila Leikskólinn hefur aðgang að ráðgjöf og þjónustu frá Fræðslusviði Reykjanesbæjar. Meðal annars við talmeinafræðing, sálfræðinga, sérkennslufulltrúa, leikskólafulltrúa, félagsráðgjafa og fleira fagfólk. Fræðslusviði hefur staðið fyrir námskeiðum og fyrirlestrum fyrir starfsfólk leikskólans. Leikskólafulltrúi hélt mánaðarlega fund með leikskólastjóra og kom hann þá í leikskólann. Leikskólafulltrúi fundar mánaðarlega sameiginlega með öllum leikskólastjórum Reykjanesbæjar. Einnig hélt hann einn fund með aðstoðarleikskólastjórum. Sérkennslufulltrúi kom mánaðarlega inn í skólann og fundaði með sérkennslustjóra um börn er njóta sérkennslu. Fylgist vel með og gefur okkur fagleg ráð (sjá Starfsmenn – fundir). Leikskólinn hefur einnig gott samstarf við starfsfólk bæjarskrifstofu, þjónustumiðstöðvar, ÍAV og Fasteignar h.f. Allt okkar samstarf við rekstraraðila hefur verið mikið og gott í gegnum árin.
v Samstarf við Greiningarstöð ríkisins var í tengslum við börn sem dvelja í leikskólanum og njóta sérkennslu.
v Samstarf við fjölskyldu og félagsþjónustu hefur verið mikið og gott í gegnum tíðina.
v Samstarf við svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi vegna starfsmanns í leikskólanum.
v Samstarf við Þroskahjálp á Suðurnesjum m.a. við sjúkraþjálfa og fjölskylduráðgjafa.
v Samstarf við samskiptamiðstöð heyrnalausra vegna heyrnaskerts nemenda.
v Samstarf við Landvernd vegna Grænfána
v Samstarf við Íþróttaakademíuna vegna heilsuátaks starfsmanna.
v Samstarf við tölvufyrirtækið Dacoda vegna heimsíðu leikskólans.
v Samstarf við fagaðila hjá skrifstofu Reykjanesbæjar.
v Samstarf við Hverfisvini vegna viðhalds í leikskóla.
Elstu börnin í leikskólanum fóru ásamt hópstjórum í heimsóknir í Myllubakkaskóla, Holtaskóla og Heiðarskóla.
Kennarar yngsta stigs grunnskóla og elsta stigs leikskólans og deildarstjórar hittust nokkrum sinnum á árinu til að ræða samstarf milli skólanna. Einnig hittust þeir á vordögum og farið var yfir gátlista sem fylltir höfðu verið út um þá nemendur sem fara í viðkomandi skóla.
Sérkennarar frá Holtaskóla komu á vordögum í leikskólann til þess að hitta þá nemendur sem njóta sérstuðnings og munu hefja nám í viðkomandi skólum að hausti.
Þjónustuaðili gagnvart brunavörnum leikskólanna er Öryggismiðstöð Íslands.
Brunaæfing er einu sinni á ári á haustin. Deildarstjórar endurmeta fyrri rýmingaráætlanir einu sinni á ári. Að þessu sinni var æfingin sept. ´07. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja komu og reykfylltu húsið. Húsið var rýmt skv. rýmingaráætlun hússins og þurftu nemendur tveggja deilda að forða sér út um glugga. Allt gekk skv. áætlun og tók skamman tíma.
Slökkvitæki eru yfirfarin einu sinni á ári.
Umferðarskólinn á vegum Umferðarstofu kemur orðið einu sinni á ári og er með umferðarfræðslu fyrir tvo elstu árgangana (sjá menningarviðburðir og aðrar skemmtanir).
Fulltrúi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja komu í ágúst. ´07, tóku sýni svo sem af borðum og borðbúnaði og yfirfóru eldhús, salerni og annað aðbúnað og tók út slysahættur utandyra.
Öryggisfulltrúi og ,,húsvörður” leikskólans er Kristrún Samúelsdóttir.
v Útileiksvæði:. Gúmmímottur settar undir rólur og kringum kastala, fúavarin helmingur af girðingu sem snýr að Norðurtúni, skipt um þak á kofa í sandkassa, nýr bíll. Kastalinn var lagfærður. Hellulögn var löguð
v Enn er eftir; Að bera á hurðir, glugga, palla o.fl.. Að fjarlæga geitungabú í þakinu í Lundinum einungis var eitrað tvisvar sinnum en hafði ekkert að segja. Ekki var fest niður grasteppi hjá fótboltamarki. Ekki voru lagaðar niðurfallsristar við Álnabæ. Steyptar einingar fyrir ruslagáma enga framkvæmd fengið þrátt fyrir loforð. Ekki var skipt um sand í sandkassa.
v Innanhúss: Gangur málaður milli Sunnuvalla og Ljósvalla. Skipt út brotnum speglum í holkubbaherbergi. Á Ljósvöllum var endagangur málaður. Í tengibyggingu var gólfdúkur lagaður og gólflúga.
v Enn er eftir; Aðaláhersla var sett á salerni nemenda í Lundinum. Gólf og listar ónýtir, setja mætti upp ný skilrúm, vantar eitt salerni, taka þetta rými alveg upp á nýtt. (40-50 börn nota þetta daglega) Ekkert gert.
EECERA ráðstefna um menntunarrannsóknir á uppeldi og kennslu ungra barna. 30.08 / 2.09 06. Inga María Ingvarsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir sóttu ráðstefnuna.
Hreyfinám og hreyfiþroski barna. 13/10-14/10 06. Ráðstefna haldin í Íþróttaakademíuni í Reykjanesbæ. Margrét Kolbeinsdóttir sótti ráðstefnuna.
Fagfundur leikskólastjóra. Haldin á Hótel Sögu 26/1 07 . Yfirskrift fundarins var Barnið og samfélagið. Ragnhildur Sigurðardóttir, Margrét Kolbeinsdóttir og Inga María Ingvarsdóttir sóttu fundinn.
Áfram ábyrg Ráðstefna haldin í Kirkjulundi 13/2 07 um áhrif skilnaðar á börn. Margrét Kolbeinsdóttir og Hjálmey Einarsdóttir sóttu ráðstefnuna.
Kjarnanámskeið 2. fyrsti hluti Brynja Brynleifsdóttir og Þórey Óladóttir sóttu námskeiðið.19. sept. - 5. okt. ´06.
Hljóm 2 Námskeið haldið í Kennaraháskóla Íslands 25. sept. og 27. okt. ´06. Margrét Kolbeinsdóttir og Fanney Jósepsdóttir sóttu námskeiðið.
Börn með hreyfihömlun – þátttaka í leikskólastarfi. Brynja Brynleifsdóttir sótti námskeiðið sem var á vegum Greiningar og ráðgjafarstöð ríkisins. 26. sept. ´06.
Deildarstjóranámskeið / stjórnun. Var haldið í Kjarna á vegum fræðsluskrifstofu
29/9 ´06, kennari Anna Hermannsdóttir. Margrét Kolbeinsdóttir, Fanney M. Jósepsdóttir og Ásta Sigurðardóttir sóttu námskeiðið.
Stjórnendur í leikskólum Námskeið haldið í Kjarna 30/11 '06 fyrirlesari var Guðný Elísabet Ingadóttir. Ragnhildur Sigurðardóttir og Margrét Kolbeinsdóttir sóttu námskeiðið.
Stjórnendur í leikskólum Haldið í Kjarna fyrir deildarstjóra. Sama námskeið og hér fyrir ofan.
Leikskólastórar í Keflavíkursókn fóru á fund 2/11 ´06 með séra Skúla Ólafsyni og Erlu Guðmundsdóttur æskulýðsfulltrúa. Rætt var um samstarf kirkju og leikskóla
Trúnaðarmannafundur
á vegum Félags leikskólakennara haldin í Kaffitári 13/2 ´07. Fanney Jósepsdóttir trúnaðarmaður og Ragnhildur Sigurðardóttir fóru á fundinn.
Fjölmenningarnámskeið Haldið í Duushúsum 12/1 ´07. Ingunn Ósk Ingvarsdóttir, Fanney M. Jósepsdóttir og Tína Gná Róbertsdóttir sóttu námskeiðið.
Kjarnanámskeið starfsþjálfunarnámskeið fyrir leiðbeinendur. Annar hluti. 23/1 til 13/2 ´07. Svanhildur Ingólfsdóttir og Þórey Óladóttir sóttu námskeiðið. Meðal kennara voru Inga María Ingvarsdóttir, Ásta Sigurðardóttir og Margrét Kolbeinsdóttir leikskólakennarar í Tjarnarseli.
Táknmálsnámskeið 26/1 ´07 Starfsmenn Mánavalla ásamt fjölskyldu fatlaðs nemenda okkar sóttu námskeiðið sem haldið var einu sinni í viku fram til 10/4. Kennari var frá Samskiptamiðstöð heyrnalausra.
Jóga með börnum. Kennari Sigurlaug Einarsdóttir. Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Ingunn Þormar sóttu námskeiðið 2/3 ´07.
Skipulagsdagur 20. okt. '06. Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur í Reykjanesbæ var með upprifjun á S.O.S uppeldisaðferðinni fyrir starfsfólk.
Skipulagsdagur 20. apríl ´07. Unnið að undirbúningi að Grænfánanum, skýrslugerð og gátlistar. Kennsla á nýju heimasíðuna. www.tjarnarsel.is
Skipulagsdagur 7. ágúst ´07. Fyrsti vinnudagur eftir sumarleyfi. Nýttur til að koma leikskólanum í eðlilegt horf eftir hreingerningu sem gerð var í sumarleyfinu. Unnið að undirbúningi 40 ára afmælis Tjarnarsels. Einnig nýttur til foreldraviðtala nýrra barna og vistunarsamningar gerðir.
Viðburðaríku starfi í leikskólanum Tjarnarseli hefur verið gerð skil í þessari ársskýrslu.
Nú eru liðin fjögur ár síðan leikskólinn byrjaði að vera með aldurskiptar deildir svo nú erum við komnar hringinn. Starfsfólkið sem og foreldrar eru afar ánægð með þessa þróun þar sem hvert aldurstig fær að njóta sín á sínum forsendum.
Vettvangsferðir um okkar nánasta umhverfi og umhverfismennt eru alltaf í hávegum hafðar og sífellt bætast við nýjungar í útikennslunni. Háskólinn á Akureyri hefur síðastliðin ár kennt í grenndarkennslu Vettvangsferðarhandbókina sem leikskólinn gaf út árið 2002.
Frá hausti 2005 hefur Tjarnarsel verið ,,skóli á grænni grein” og fékk afhentan Grænfánann 17. ágúst. s.l. (sjá fylgiskjal 2.)
Fyrir nokkrum árum tók leikskólinn Holt að sér að vera með hæfileikakeppni fyrir starfsfólk leikskóla Reykjanesbæjar. Þessar keppnir hafa verið afar vinsælar og vel sóttar af bæjarbúum. Síðastliðið haust kom það í hlut Tjarnarsels að sjá um og vera gestgjafi hæfileikakeppninnar og heppnaðist það vel og þjappaði starfsfólkinu saman.
Einnig tókum við þátt í að vera með í Heilsuátaki með stuðningi frá Íþróttaakademíunni.
Eins má nefna að við höfum á að skipa frábæru foreldrafélagi sem lætur líðan starfsmannanna sig varða ekki síður en barna sinna, því ánægt starfsfólk og ánægðir nemendur, skilar ánægðum foreldrum.
Það sem upp úr stendur á s.l. starfsári er þegar leikskólinn fékk afhentan Grænfánann og haldið var upp á 40 ára afmæli Tjarnarsels 17/8 ´07 í yndislegu veðri , meðal gesta voru frumkvöðlar úr Kvenfélagi Keflavíkur sem færðu leikskólanum 100 þúsund krónur að gjöf til bókarkaupa.
Manngildissjóður veitti leikskólanum 100 þúsund króna styrk vegna vinnu við Grænfánann.
Einnig má nefna nýja heimasíðu leikskólans www.tjarnarsel.is sem tekinn var í notkun
7/3 ´07.
Reykjanesbæ í september 2007
_________________________________________
Margrét Kolbeinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri
__________________________________________
Ragnhildur Sigurðardóttir leikskólastjóri