Efnisyfirlit
Almennar upplýsingar
- Leikskóli
- Breytingar og viðhald
Námskrá - stefna
- Uppeldisstarf - áherslur og markmið
- Skólanámskrá
- Matsaðferðir
- Skipulag
- Starfsmannastefna - starfsmannahandbók
Starfið s.l. leikskólaár
- Starfsáætlun
- Dagatal leikskólans
- Mat á starfinu, framkvæmd og niðurstöður
- Þróunar- og nýbreytnistarf
- Menningarviðburðir, ferðir, sýningar, hefðir og hátíðir
- Menningarviðburðir og aðrar skemmtanir
- Kynning á leikskólanum út á við
Börn
- Fjöldi barna - dvalartími
- Flutningur á börnum milli deilda
- Sérkennsla
Starfsmenn
- Stöðugildi
- Endur- og símenntun starfsmanna
- Námskeið, fyrirlestrar, ráðstefnur og fleira
- Leikskólakennaranám við KHÍ og HA nemar
- Skipulagsdagar
- Fundir
Foreldrasamstarf
- Áherslur og markmið
- Foreldrafundir
- Foreldraviðtöl - fréttabréf
- Foreldrafélag
Samstarf - fræðsla - ráðgjöf
- Samstarf við grunnskóla
- Ráðgjöf og samstarf við rekstraraðila
- Samstarf við aðra
- Öryggismál
Árskýrsla 2004-2005
Almennar upplýsingar:
Leikskóli
Tjarnarsel, Tjarnargötu 19 – sími 421-4204. netfang: tjarnarsel@reykjanesbaer.is Veffang: www.rnb.is/tjarnarsel
Leikskólinn Tjarnarsel er rekinn af Reykjanesbæ. Hann er elsti leikskólinn í bæjarfélaginu, opnaður 1967. Í skólanum dvelja alls um 95 börn í fjórum aldursskiptum deildum: Mánavellir, deild 2ja ára barna, Sólvellir, deild 3ja ára barna, Sunnuvellir, deild 4ra ára barna og Ljósvellir, deild 5 ára barna.
Breytingar og viðhald:
Útileiksvæði
Borið var á áhaldaskúr og útihurðir. Endurnýjaður sandur í sandkassa. Rólur lagfærðar. Rennur lagfærðar og þakkantar.
Enn er eftir
Endurnýja hluta girðingar og hlið.
Innanhúss
Keypt tvö átta manna matarborð og sófi á Ljósvelli. Í eldhús var keypt ný hrærivél og borð undir hana. Einnig þvottavél og þurrkari. Í undirbúningsherbergi voru keypt ný vinnuborð og tveir skrifstofustólar, nýr prentari, bréfskurðarhnífur og plastvél. Einnig voru endurnýjaðar þrjár tölvur skólans og keypt var ný stafræn myndavél. Í sumarleyfi var málaður gangur Ljós- og Sunnuvalla.
Enn er eftir
Að yfirfara hurðir og læsingar, einnig gluggakrækjur og festa lausar hillur o.fl. Yfirfara sírennsli í handlaugum og salernum. Lagfæra innstungur o.fl.
Námskrá - stefna:
Uppeldisstarf, áherslur og markmið
Í leikskólanum er starfað samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla sem Menntamálaráðuneytið gaf út 1999. Skýr starfsmannastefna og námsskrá leikskólans gerir vinnuferlið opnara og sýnilegra fyrir starfsfólk leikskólans og foreldra leikskólabarna. Sú hugmyndafræði sem hefur þróast í leikskólanum síðustu árin er útivist, hreyfing og umhverfismál og er aðaláherslan lögð á vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans. Einnig er lögð áhersla á lestrarhvetjandi umhverfi.
Okkar starf byggist upp á einfaldleika þar sem reynir á ímyndun, sköpun og skynjun barnsins. Allt sem gert er með barninu í leikskólanum fer fram í gegnum leikinn á forsendum barnsins. Við leggjum áherslu á að rækta tillitsemi, vináttu og kærleika á milli barna og starfsfólks. Að hver einstaklingur læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, náunganum og umhverfinu. Markmiðið er að flétta saman vettvangsnámi og umhverfisfræðslu inn í daglegt líf og starf leikskólans. Stefnan er sett á Grænfánann á komandi árum.
Loka markmið leikskólagöngunnar er að útskrifa sjálfstæðan, öruggan og gagnrýninn einstakling sem ber virðingu fyrir sjálfum sér, náunganum og umhverfi sínu.
Einkunnarorð leikskólans eru; hreyfing – lífsgleði – upplifun og virðing sem tengjast inn í daglegt líf leikskólans.
Skólanámskrá
Leikskólinn hefur gefið út skólanámskrár frá árinu 1997 og endurskoðað þær árlega síðan, fyrir utan árið 2004. Einnig hafa verið gefnar út námskrár fyrir hvert aldursstig. (sjá þróun og nýbreytni bls. 5).
Matsaðferðir
- Aldursmiðaðar atferliskannanir að hausti og vori, (samræmdar fyrir alla leikskóla Reykjanesbæjar haustið ´03).
- Þroskapróf AAL, sem er athugunarlisti fyrir atferli leikskólabarna.
- Ofvirknikvarði fyrir 4ára og eldri.
- Ísl. þroskalistinn.
- Athyglisbrestur barna, fyrir 4ára og eldri.
- Hegðun á heimili, fyrir 4ára og eldri sem foreldrar fylla út ef um hegðunarerfiðleika er að ræða.
- Hljóm – 2, sem kannar hljóðkerfisvitund elstu barnanna í leikskólanum. Prófað er bæði að hausti og fljótlega eftir áramót.
- Orðaskil (málþroskapróf).
- Færni barns í málnotkun og málskilningi, gróf viðmið fyrir aldurinn 1 – 4ja ára.
Dagskipulag
- 7:30 Leikskólinn opnar, rólegheit
8:00 - 8:45 Morgunverður og leiktími
8:45 - 11:30 Nám og leikur (úti-inni)
11:15 - 13:00 Hádegisverður og hvíld
13:00 - 14:45 Nám og leikur (úti - inni)
14:45 - 15:15 Síðdegishressing
15:30 - 17:00 Nám og leikur (úti - inni)
17:15 Leikskólinn lokar
Hver deild útfærir síðan dagskipulagið tengt árgangi nemanna.
Morgunverður.
Þegar morgunverður stendur yfir leika börnin við rólegheit og einnig er alltaf boðið uppá sögustund. Kennari les á afmörkuðu svæði.
Hópastarf
er fjórum sinnum í viku yfir vetrartímann en þrisvar í viku á sumrin. Nemendunum er raðað í hópa eftir kyni, ef hægt er að koma því við. Hver hópur hefur sinn hópstjóra sem ber ábyrgð á öllu skipulögðu starfi innan hópsins.
Vettvangsferðir
hafa verið sérkenni á hópastarfinu en jafnframt er lögð áhersla á hreyfingu, samskipti, uppgötvun og lífsgleði. Hópstjórar eru vakandi fyrir því að grípa hugmyndir nemanna og leyfa þeim að þróast
Val
er alla daga vikunnar fyrir og eftir hádegi. Val byrjar alltaf á valfundi þar sem hvert barn velur sér leiksvæði.
Ritmál í umhverfinu
hefur verið sýnilegt og áhersla verið lögð á nöfn barnanna og merkingar á öllum sýnilegum hlutum skólans.
Söngstund
er einu sinni í viku. Í hverri söngstund koma tvær deildir saman í salnum á Miðvöllum og blandast þar ýmsir aldurshópar og læra þau yngri af eldri nemum.
Aðgengi að bókasafni.
Frjálst aðgengi er í bókasafn leikskólans sem er á opnu svæði á Miðvöllum. Reglulega er skipt um bækur í bókaskápum deildanna.
Skógarlund
hafa börn og starfsfólk fóstrað síðan 1997. Er hann í landi Skógræktar Suðurnesja í ,,Vatnsholti”. Þar eru settar niður trjáplöntur, hlúð að eldri plöntum og svæðinu haldið snyrtilegu auk þess sem svæðið er uppspretta ýmissa leikja. Má nefna að á Degi umhverfis fóru allir nemar skólans ásamt kennurum og þrifu svæðið (sjá menningarviðburðir bls. 9).
Starfsmannastefna – starfsmannahandbók
Starfsmannastefna leikskólans byggist á sameiginlegri sýn starfsfólksins um stefnur og leiðir í uppeldismenntun leikskólabarna. Hún byggir einnig á námsskrá leikskólans um ,,Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans”, árlegum starfsmannaviðtölum, sameiginlegum boðleiðum, reglulegum fundum o.s.frv.
Starfsmannahandbók var samin árið 2002 og komu allir kennarar skólans að henni. Smávægilegar breytingar og viðbætur hafa verið settar inn í síðan, en hún er nú í endurvinnslu og kemur endurútgefin á næsta starfsári.
Starfið s.l. leikskólaár
Starfsáætlun
Ársáætlunin byggir á áhersluþáttum leikskólans og framtíðarsýn allra starfsmanna leikskólans. Hlutverk hennar er tvíþætt; annars vegar er hún hugsuð sem tímaáætlun og hins vegar vinnuáætlun
Dagatal leikskólans (sjá fylgiskjöl nr 2 og 3)
Dagatal fyrir haustönn 2005 og vorönn 2006 var kynnt á starfsmannafundi í sept. ´04. Þá var farið yfir það sem er á döfinni allt skólaárið og starfsfólk fékk tækifæri til þess að koma með athugasemdir (sjá fylgiskjal 1).
Innra mat á starfið, framkvæmd og niðurstöður
Starfsmannasamtöl
Starfsmannasamtöl við leikskólastjóra eru einu sinni á ári að vori. Er þetta einkaviðtal sem leikskólastjóri og viðkomandi starfsmaður eiga og er fyllsta trúnaðar gætt. Í starfsmannasamtölunum er m.a. farið yfir líðan starfsmanns í vinnunni, samskipti við börn og samstarfsfólk. Starfsmaður veltir upp sínum sterku eiginleikum og því sem hann telur sig þurfa að styrkja. Einnig hvaða námskeið tengdri símenntun hann óski eftir. Óformlegt endurmat. Leikskólastjóri hélt tvo fundi í Kjarna með deildarstjórum þar sem farið var yfir starfið liðinn vetur og lagðar línurnar fyrir sumarstarfið (sjá fylgiskjöl 2 og 3).
Þróunar- og nýbreytnistarf
Kennsluáætlanir:
Stjórnendur leikskólans með aðstoð leikskólaleiðbeinenda deildanna hafa verið að þróa kennsluáætlun fyrir hvert aldursstig. Verið er að leggja síðustu hönd á þær. Áætlanirnar eru á vefsvæði hverrar deildar inni á vefsíðu leikskólans rnb.is/tjarnarsel. Þegar hópastarfið hefst á haustin fá foreldrar hvers barns afhent eintak af kennslu- og einstaklingsáætlun.
Upplýsinga og kynningarbæklingur
Útbúin var í maí s.l. upplýsinga og kynningarbæklingur fyrir yngsta stigið sem afhentur var foreldrum.
Mynda- og merkispjöld:
Vefsíðustjóri leikskólans hannaði og útbjó ný mynd- og merkispjöld sem hanga fyrir ofan hólf hvers barns leikskólans.
Umsjónarmenn tölvusvæða:
Einn kennari af hverri deild hefur umsjón með vefsvæði sinnar deildar. Sérstök áhersla er lagt á að birta skemmtilegar myndir, gullkorn og fl. úr starfi og leik barnanna.
Hlutverk leikskólans í nærumhverfi og atvinnulífi.
Hugmyndafræði leikskólans hefur einkennst af umhverfismennt frá árinu 1997 þar hafa vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans verið í brennidepli. Umhverfismenntin hefur verið í sífelldri þróun og í ár var engin undatekning á því. Mikil áhersla lagt á að kennarar og nemendur láti sig varða það sem viðkemur umhverfi sínu og að koma með ábendingar, til réttra aðila, ef þurfa þykir.
Eftirtalin verkefni eru dæmi um árangur þess starfs:
Hugmynd leikskólabarna hrint í framkvæmd:
Næst elstu nemendurnir heimsóttu Árna Sigfússon bæjarstjóra þann 27. apríl s.l. og afhentu honum bréf og teikningu með beiðni um fallegan útsýnispall við sjávarsíðuna svo þeir gætu notið útsýnisins betur yfir hafið. Í sumarleyfi leikskólans var hugmyndinni hrint í framkvæmd, sem gladdi nemendur og kennara mikið. Framtak nemenda og leikskólakennara og viðbrögð bæjaryfirvalda hafa víða vakið athygli.
Við þökkum Árna bæjarstjóra kærlega fyrir að bregðast svona skjótt við óskum okkar.
Ábendingar um það sem betur má fara:
- Í vettvangsferðum um bæjarfélagði verða nemendur og kennarar oft varir við misgóða umgengi sem þeir reyndu að koma á framfæri til réttra aðila s.s. bæjarstjóra, þjónustumiðstöðvar og lögreglu.
- Sendiherrar:Bæjarstjóri Reykjanesbæjar útnefndi í júní s.l. leikskólabörn Tjarnarsels sendiherra bæjarins. Hann bað þau m.a. um að heimsækja grunnskólana og biðja unglingana um að ganga betur um bæinn ( Sjá fylgiskjal 4).
Útgáfa vettvangsbóka:
- Tveir nemendahópar gáfu út bækur um vettvangsferðir sínar um bæjarfélagið. Hvert barn í Trölla- og Guttahópi útbjó bók með teikningum af flestum útilistaverkum bæjarins sem þau skoðuðu. Stuðst var við bókina ,, Goggi og Valli á ferð og flugi í Reykjanesbæ” (sjá fylgiskjal 5). Bókin var seld á sölusýningu foreldrafélagsins á sumarhátíð leikskólans.
- Allir nemendur Sunnuvalla komu að gerð ,,Vettvangsferðabók barna”. Tveir og tveir nemendur skiptust á að ákveða hvert ætti að fara í vettvangsferð og að taka myndir á svæðunum. Nemendur fengu bókin að gjöf við útskrift. Einnig var bæjarstjóra, fræðslustjóra og leikskólafulltrúa afhent bókin að gjöf.
Lestrarmenning Reykjanesbæjar.
Þátttaka okkar að þróunarverkefninu hefur verið með ýmsum hætti þessi tvö ár sem það hefur staðið yfir. Nýjungar í ár sem tengjast því eru:
- Ljóðaflutningur:
Elstu nemendur leikskólans tóku þátt í ,,Ljóðalestur um allan bæ”. Þeir flutt m.a ljóð um Keflavík eftir Jón Guðmundsson sem ort var árið 1906 fyrir starfsfólk fyrirtækja bæjarins s.s. starfsfólk bæjarskrifstofunnar, Lífeyrissjóðs Suðurnesja og Sparisjóðs Keflavíkur. Allstaðar var framtaki nemenda og kennara vel tekið.
- Bókaormur:
Síðastliðna tvo vetur hefur nemendum elstu deildanna verið boðið upp á að hlusta á framhaldssögu á morgnana og í hvíld eftir hádegismatinn. Eftir hverja lesna bók útbýr einn nemandi hring með heiti bókar og höfundar, sem bætist við bókaorminn sem lengist smátt og smátt.
- Lestrar og skriftarnámskeið:
Síðastliðinn vetur var haldið áfram að þróa lestrar- og skriftarkennsluna sem elsta stiginu er boðið upp á. Kennsluaðferð Thomas Armstrong var innleidd inn í lestrarkennsluna sem byggir á fjölgreindarkenningu Howard Gardner´s.
- Samstarf skólastiga:
Í janúar var í fyrsta skiptið sameiginlegur fundur með deildarstjóra elsta stigsins, leikskólastjóra og deildarstjórum 1. bekkjar Myllubakka- og Holtaskóla,. Á fundinum var aðallega verið að samræma heimsóknartíma og leikskólanema. Leikskólastjóri lagði fram nýtt form til að skrá niður skipulag heimsókna (sjá fylgiskjal 6 a og b).
- Myndlæsi á yngstu deildinni:
Í umsjón deildarstjóri voru teknar myndir af hlutum í nærumhverfi yngstu nemenda leikskólans. Síðan voru þær textaðar, prentaðar út og límdar upp á vegg í augnhæð nemenda. Markmiðið er tvíþætt annarsvegar að auka orðaforða barnanna og hins vegar að gera ritmálið sýnlegt með hjálp mynda.
Breytingar á starfsmannastefnu:
Deildarstjórar hverra deilda taka starfsmenn sína starfsmannaviðtal einu sinni á ári og hefur það gefist vel.
Ferðir, menningaratburðir, sýningar, hefðir og hátíðir
Styttri kynnisferðir.
Í hópastarfi sem er þrisvar-fjórum sinnum í viku er farið að mestu í vettvangsferðir. Þá eru svæði eins og Skrúðgarður, Nónvarða, Vatnsholt, Hrauntúnsholt, Skólaholt, fjaran, Smábátahöfnin, Fitjarnar, hesthúsin á Mánagrund og ótal önnur svæði könnuð í öllum sínum fjölbreytileika. Flest er farið gangandi en þó stundum með strætisvögnum bæjarins.
Lengri ferðir.
Í ævintýraviku elstu barna leikskólans er farið í styttri og lengri ferðir. Í vor var farið; í Fræðasetrið í Sandgerði, slökkvistöðina í Reykjanesbæ og að skoða skipið Íslending. Í útskriftarferðina buðum við til okkar elsta árgangi vinaleikskólans okkar Arnarsmára í Kópavogi og dvöldum við á Duussvæðinu þ.e. fórum í Duushúsin og fengu fræðslu innandyra frá safnverði, skoðuðum hellinn við smábátahöfnina, einnig bátinn Baldur og fórum í leiki á Duustúninu. Enduðum á því að grilla bak við Duushúsin og snæða þar og að því loknu var haldið í leikskólann og boðið upp á safa og nýbakaðar kökur
Menningarviðburðir og aðrar skemmtanir
,,Hjálpfús heimsækir leikskólann”.
Fulltrúi frá Rauða krossinum á Íslandi kom og afhenti leikskólanum fræðslupakka sem ber ofangreint heiti.
Uppskeruhátíð
var haldin í tengslum við uppskeru úr skólagörðum leikskólans. Hátíðin var haldin 17. september ´04 í sal skólans þar sem fram fór einnig söngstund og var að mestu sungin grænmetislög. Allir fengu að smakka á grænmetisuppskerunni og Sunnuvallanemendur gáfu öllum nýuppteknar kartöflur í poka með sér heim.
Tungumáladagurinn okkar 24. sept. ´04.
Hittumst öll í sal og sungum saman ,,Meistari Jakob” á öllum tungumálum og pólsk systkin hjá okkur sungu einnig það lag fyrir okkur á pólsku. Leikskólastjóri kallaði upp þau börn sem voru af erlendu bergi og kynnti móðurmál þeirra og þau sem vildu, sögðu nokkur orð á sínu móðurmáli og þýddu fyrir okkur á íslensku.
Heimsókn í Dagdvöl aldraðra.
Nemar Sólvalla fóru í heimsókn í okt. ´04 og sungu fyrir vistfólk og þáðu veitingar.
Frístundaskólinn bauð í Reykjaneshöllina.
Föstudaginn 14. nóv. ´04 var tveimur elstu árgöngunum boðið í Reykjaneshöllina í þau leiktæki sem boðið er upp á fyrir börn Frístundaskólans. Mikil ánægja með daginn.
Lúlli löggubangsi.
Þann 27. nóv. ´03 kom Lúlli löggubangsi í heimsókn, fór yfir umferðarreglur með börnunum og talaði um hvað þau þyrftu að varast. Einnig tók hann lagið fyrir börnin og þau fyrir hann. Þessa skemmtan sjá tveir lögregluþjónar um árlega frá lögregluembættinu í Reykjanesbæ (sjá öryggismál bls. 16 ).
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu
sem við héldum uppá föstudaginn 16. nóv. ´04 fluttu Sunnuvallanemar leikrit við ljóð og kennarar Mána- og Sunnuvalla fluttu leikritið Gullbrá og birnirnir þrír fyrir alla nemendur skólans.
Hattur og Fattur í Frumleikhúsinu 24. nóvember.
Sólvalla-, Ljósvalla- og Sunnuvallanemar fóru að sjá leiksýningu hjá Möguleikhúsinu um Hatt og Fatt. Frábær sýning sem allir höfðu gaman af.
Jólarútuferð
í boði Sérleyfisbifreiða Keflavíkur var farin 13. des. ´04. Öllum nemum boðið í rútuferð um Reykjanesbæ og voru jólasveinar með í för.
Jólastund í Duushúsum 13. desember ´04.
Elstu nemunum var boðið í Duushúsin þar sem tekið var á móti þeim af safnstjóra og þeim sagt frá jólahaldi í gamla daga og skoðað tilheyrandi jóladót.
Fjölskyldudagur í Kirkjulundi
var haldinn 14. desember ´04. Sunnu-, Ljós- og Sólvallanemar voru með samverustund fyrir foreldra. Sunnuvallanemar fluttu helgileik og Ljós- og Sólvallanemar fluttu leikþætti og sungin voru jólalög. Boðið var upp á kaffi og smákökur sem nemarnir höfðu bakað. Frábær þátttaka og tókst samverustundin í alla staði mjög vel. Þann sama dag buðu Mánavallanemar foreldrum sínum í leikskólann þar sem gengið var í kringum jólatréð í salnum og síðan var boðið upp á smákökur og kaffi. Góð þátttaka.
Jólahelgistund.
Þann 15. des. ´04 var börnum í tveimur elstu árgöngunum boðið að koma í Kirkjulund ásamt öðrum leikskólum bæjarins, þar sem haldin var jólahelgistund. Sunnuvallanemar fóru fyrir hádegi og Ljósvallanemar eftir hádegi.
Litlu jólin
voru haldin hátíðleg 21. desember ´04 á sal skólans. Sungið og dansað í kringum jólatréð og tveir frábærir jólasveinar komu í heimsókn sem skemmtu börnunum. Boðið var upp á hangikjöt með öllu tilheyrandi í hádegismat.
Bóndadagurinn
var haldinn hátíðlegur 21. jan. ´05 með því að bjóða pöbbum og/eða öfum að koma í morgunmat/síðdegishressingu. Frábær mæting.
Þorrablót
var 3. febrúar '05. Til þess að gera daginn eftirminnilegan var komið saman á sal skólans og sungnar “þorravísur”. Sýning var á gömlum munum og leikföngum sem er í eigu starfsfólks leikskólans og Byggðasafnsins. Einn kennari skólans klæddi sig upp í gömul húsfreyjuföt og útskýrði og sýndi hina ýmsu hluti og brúkun þeirra. Annar kennari skólans var í fallegum upphlut og möttli. Allir fengu að smakka ,,gamlan mat” (hrútspunga, sviðasultu, slátur, hákarl, og harðfisk og renndu þessu niður með mysu. Í hádegisverð var boðið upp á hangikjöt og slátur m/rófustöppu og kartöflumús. Frábær dagur.
Bolludagur og sprengidagur
7. og 8. febr. ´05 voru með hefðbundnu sniði. Borðaðar rjómabollur og fiskibollur í tilefni af bolludegi. Saltkjöt og baunir borðað í tilefni af sprengidegi.
Öskudagur
9. febr. ´05 er furðufatadagur í leikskólanum. Allir sem vilja klæðast furðufötum. Í tilefni dagsins er ,,góðgæti slegið úr kassa”, dansað og valsað um allan leikskólann.
Stekkjarkot var heimsótt
á Þorranum 10. febrúar ´05. Einn kennari skólans (Gréta) lék húsfreyju staðarins, tók á móti nemum og kynnti búsetuhætti gamalla tíma. Frábær ferð í frábæru veðri.
Heimsókn frá Tónlistarskólanum. Þann 24. febr. ´05 komu sex fiðlu-susukinemar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í tilefni tónlistarviku og héldu tónleika í sal fyrir nemendur skólans.
Heimsókn frá Holtaskóla. Þann 16. mars komu sautján nemendur Holtaskóla í þemaviku skólans og léku fyrir nemendur okkar. Þemaverkefni þeirra var tröll og léku þau leikritið um Gilitrutt.
Inni-íþróttadagur var 1. apríl ´05. Sól-, Ljós- og Sunnuvellir fóru í íþróttahúsið við Sunnubraut í boði Kristjönu Gunnarsdóttur íþróttafræðings og móður barns í leikskólanum. Mánavellir héldu sinn inni-íþróttadag í leikskólanum.
Dagur umhverfisins v
ar 25. apríl ´05. Nemar Sól-, Ljós- og Sunnuvalla fóru ásamt kennurum upp í Vatnsholt að þrifu skógarlundinn okkar og svæðið þar í kring. Nemendur Mánavalla þrifu útisvæðið í leikskólanum.
Hestaferð.
Ljós- og Sunnuvallanemar fóru dagsferð í apr. og maí ´05 og heimsóttu hesthús á Mánagrund í boði eins kennara skólans. Allir fóru á hestbak og snæddur var hádegisverður. Eftirminnilegur dagur sem allir höfðu gaman af.
Mömmukaffi
í tilefni mæðradagsins 8. maí var haldið í leikskólanum föstudaginn 6. maí. Þá var mæðrum og ömmum boðið í morgunkaffi í leikskólann.
Umferðarfræðsla
3. maí ´05 á vegum Umferðarstofu ásamt lögreglunni í Reykjanesbæ, haldin í leikskólanum, fyrir nemendur f. 1999 og 2000. Frábær mæting.
Poppminjasafnið
í Gryfjunni í Duushúsunum heimsótt af Sunnuvallanemum 22. júní ´05 og skoðuð var sýningin ,, Stuð og friður” sem allir höfðu mikið gaman af.
Útskriftarhátíð elstu nema
var haldin í Kirkjulundi 26. maí ´05. Fjölskyldum nemanna boðið til útskriftarinnar. Nemendur fluttu ljóðið ,,Keflavík”, sungu og lásu. Aðstoðarleikskólastjóri afhenti viðurkenningarskjöl og lítið kver sem heitir ,,Vettvangsferðabók barnanna” sem var þeirra afurð frá liðnum vetri í tengslum við lokaverkefni deildarstjóra deildarinnar.
Sumarhátíð var haldin 24. júní. Fjölskyldum barnanna var boðið að taka þátt í gleðinni með okkur. Dagskráin saman stóð m.a. af leikjum, andlitsmálun, söng, útskrift og grilli. Foreldrafélagið var með sölusýningu á listaverkum eftir nemendur. Þátttaka foreldra og annarra fjölskyldumeðlima góð í þokkalegu veðri.
Stekkjarkot og víkingaskipið. Í júlíbyrjun fóru Sól-, Ljós-, og Sunnuvallanemar ásamt kennurum í dagsferð og skoðuðu Stekkjarkot og víkingaskipið Íslending. ,,Víkingar” mættu á svæðið og fræddu nemanna um smíði og notkun skipsins og ,,húsfreyja” staðarins (einn kennari skólans) tók á móti okkur og bauð í bæ. Einnig var fjaran skoðuð og farið í marga leiki í besta veðri sumarsins, sól, hita og logni.
Kynning á leikskólanum út á við
Kynning í KHÍ.
Leikskólastjóri flutti erindi um formlega lestrar- og skriftarkennslu í leikskólanum Tjarnarseli 15. október ´04.
Læsi á 21. öldinni.
Leikskólastjóri flutti erindið Lestrar- og ritmálskennsla í gegnum fjölgreindir á ráðstefnunni, Læsi á 21. öldinni, sem haldin var á Akureyri 16. apríl ´05. Listsýning á verkum nemanna í leikskólanum haldin í Bókasafni Reykjanesbæjar 24. maí til 6. júní ´05.
Tveir nemar frá Háskólanum á Akureyri komu 16. sept. ´04 og fengu kynningu á lestrarnámi elstu nema leikskólans.
Nemi frá KHÍ vann verkefni með fjórum nemum Sunnuvalla í heimspeki í okt./nóv.´04.
Tveir fjarnámsnemar í grunnskólafræðum Kennaraháskóla Íslands komu 3. nóv. ´04 og tóku viðtal við einn nema okkar á Sunnuvöllum. Var þetta liður í námi þeirra.
Þrettán nemendur frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja kynntu sér starf leikskólans í tengslum við verkefni sem þeir voru að vinna í uppeldisfræði og barnabókmenntum og dvöldu hér part úr degi í apríl ´05.
Þrír nemar úr Myllubakkaskóla komu í starfskynningu dagana 23. og 24. maí ´05.
Tíu kennarar frá leikskólanum Dvergasteini í Reykjavík komu og skoðuðu leikskólann og fengu kynningu á vettvangsferðum.
Kennarar frá leikskólunum Holti og Heiðarseli í Reykjanesbæ og frá leikskólanum Sólvöllum í Vogum komu í febr. mars og júní ´05 og kynntu sér könnunarleikinn sem iðkaður er á yngstu deild (Mánavöllum).
Nemi frá KHÍ leikskólaskor og vettvangskennari komu og kynntu sér kennsluaðferðir leikskólans og sérstaklega könnunarleikinn.
Einnig má geta þess að kennarar skólans eru duglegir að kynna allt starfið á vefsíðu leikskólans. Einnig hafa þeir verið iðnir að senda fréttir í staðarblöð og landsblöð og fengið jákvæða og góða umfjöllun.
Starfsmenn
Stöðugildi
Í október 2004 skiptust stöðugildi þannig:
Leikskólakennarar: 4 starfsmenn 3,80 stöðugildum.
Leiðbeinendur: 18 starfsmenn í 16,25 stöðugildum.
Starfsfólk í eldhúsi: 2 starfsmenn í 1,6 stöðugildum.
Af ofangreindum stöðugildum voru 2,37 stöðugildi í sérkennslu.
Endur- og símenntun starfsmanna
Menntun starfsmanna 1. okt. ´04
Leikskólakennarar: 4 starfsmenn.
Nám í fjarnámi í leikskólafræðum við Háskólann á Akureyri: 3 starfsmenn.
Nám í stjórnun við Kennaraháskóla Íslands; 1 starfsmaður.
Nám í fjarnámi í þroskaþjálfabraut við KHÍ: 1 starfsmaður (í fæðingarorlofi)
Grunnskólapróf eða sambærileg menntun: 15 starfsmenn
Fjarvistir nema.
Þrír fjarnámsnemar frá okkur fóru í vettvangsnám í 10 vikur í sept.-des.´04 (3x10 vikur).
Veikindaleyfi.
Alls voru fjórir starfsmenn samfellt í veikindaleyfi frá þremur vikum upp í þrjá mánuði á s.l. starfsári.
Endurheimtir starfsmenn.
Arnbjörg Elsa Hannesdóttir kom aftur til starfa í maí ´05 og starfaði hjá okkur til 12. júlí ´05.
Launalaust leyfi.
Sigrún Sigurðardóttir fór í árs launalaust leyfi að loknu fæðingarorlofi.
Inga María Ingvarsdóttir fór í launalaust leyfi frá 16. maí til 12. júlí
Ingunn Ósk Ingvarsdóttir fór í launalaust leyfi frá 20/6 – 12/7 og frá 16/8 til 1/9 ´05.
Hrefna Björk Sigvaldadóttir fór í launalaust leyfi frá 16. ágúst ´05 til maí ´06.
Uppsagnir.
Rúna Lís Emilsdóttir hætti störfum hjá okkur 1. maí ´05.
Inga Rósa Loftsdóttir hætti störfum hjá okkur 12. júlí ´05.
Nýtt stöðuheiti.
Þrír leiðbeinendur við skólann luku fjarnámi í leikskólakennarafræðum við Háskólann á Akureyri og hlutu nafnbótina leikskólakennarar 11. júní ´05.
Nýjar stöðuveitingar.
Margrét Kolbeinsdóttir deildarstjóri fór úr 75% stöðu í 100% stöðu 1. júní ´05.
Tína Gná Róbertsdóttir leikskólakennari fór úr 75% stöðu í 100% stöðu 1. sept. ´05
Ástríður Guðmundsdóttir fór úr 100% stöðu í 75% stöðu 1. sept. ´05
Fanney Jósepsdóttir deildarstjóri fór úr 75% stöðu í 87,5% stöðu 1. sept. ´05
Þórey Óladóttir hóf 75% starf við sérkennslu 20. ágúst ´05
Lórý Benjamínsdóttir hóf 100% starf sem leiðbeinandi 20. ágúst ´05
Svanhildur Ingólfsdóttir leiðbeinandi fór úr 75% stöðu í 87,5% stöðu frá 17. ágúst ´05
Rut Ingólfsdóttir var ráðinn í afleysingar frá 3. júní – 3. sept. ´05.
Námskeið, fyrirlestrar, ráðstefnur o.fl.
Stjórnendanámskeið
haldið á vegum Reykjanesbæjar í Eldborg dagana 23. og 24. nóv. ´04. Inga María Ingvarsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir sóttu námskeiðið. Alls 16 klst.
Skriftarkennsla.
Gunnar Þór Jónsson hélt námskeið í skriftarkennslu fyrir nokkra kennara skólans 10. febrúar ´05.
Listin að slaka á í leik og starfi (snerting-jóga-slökun).
Haldið í Kjarna 17. mars ´05. Kennari Sigurlaug Einarsdóttir. Tína Gná, Jenný, Ásta S. og Hólmfríður sóttu námskeiðið, alls 4,5 stundir.
Fljótandi skil leik- og grunnskóla. Haldið í KHÍ 1. apríl ´05. Inga María Ingvarsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir sóttu málþingið alls 4 klst.
SOS – námskeið.
Þrír kennarar skólans fóru á SOS námskeið sem haldið var á vegum Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar í mars og apríl ´05.
Kjarnanámskeið II fyrir leiðbeinendur í leikskólum haldið á vegum miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum í jan.febr. og mars ´04.
Leikskólakennaranám við KHÍ og HA - nemar
Margrét Kolbeinsdóttir, Tína Gná Róbertsdóttir og Fanney Jósepsdóttir eru starfsmenn í leikskólanum en stunda jafnhliða fjögurra ára fjarnám í leikskólafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Námið hófst haustið ´01 og lauk 11. júní ´05 .
Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri stundar fjarnám í stjórnun við KHÍ. Námið hófst haustið ´02.
Sigrún Sigurðardóttir hóf fjarnám í KHÍ – þroskaþjálfaskor haustið 03. Er í launalausu leyfi til vors ´06.
Guðný María Bragadóttir, nemi á þriðja ári við KHÍ, var í vettvangsnámi hjá okkur í sjö vikur í nóv. og des. ´04. Æfingakennari hennar var Ingunn Ósk Ingvarsdóttir.
Fundir
Starfsmannafundir
eru einu sinni í mánuði. Á fundinum er upplýsingum og fróðleik komið á framfæri. Einnig eru fundirnir nýttir m.a. til að endurmeta og skipuleggja starf leikskólans. Í lok starfsmannafunda eru haldnir deildafundir, þar sem farið er yfir málefni deildanna.
Deildarstjórafundir
eru einu sinni í mánuði fyrir starfsmannafund. Á fundunum eru leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri og deildarstjórar. Fundirnir eru nýttir til að ræða faglegt starf leikskólans og taka sameiginlegar ákvarðanir. Einnig vettvangur fyrir leikskólastjóra að koma áleiðis upplýsingum til deildarstjóra.
Samráðsfundir leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra
eru á sameiginlegum tíma á skrifstofu.
Undirbúningstímar eru einu sinni í viku hjá hverjum starfsmanni sem vinnur inná deild. Ófaglærðir fá 2 tíma, leikskólakennarar 4 tíma og deildarstjórar 5 tíma á viku miðað við 100% starf. Í undirbúningstímum er hópastarfið og annað faglegt starf undirbúið og skipulagt. Einnig eru þeir nýttir til foreldraviðtala.
Fagfundir
leikskólafulltrúa og leikskólastjóra í Reykjanesbæ eru haldnir einu sinni í mánuði á Fræðsluskrifstofu.
Handleiðslufundir
leikskólastjóra eru haldnir mánaðarlega í Kirkjulundi.
Leikskólafulltrúi kemur á viðverufund til leikskólastjóra
í leikskólann einu sinni í mánuði og heldur 1-2 fundi á ári með aðstoðarleikskólastjórum Reykjanesbæjar í Kjarna.
Sérkennslufulltrúi
heldur mánaðarlega fundi með leikskólastjóra deildarstjórum og kennara sem hefur umsjón með sérkennslu í leikskólanum og rætt er um þau börn sem njóta sérstuðnings, framvindu og leiðir og greiningar sem framundan eru og gefur fagleg ráð. Einnig hélt hann fund með kennurum sem sjá um sérkennslu í leikskólum Reykjanesbæjar, þar sem farið var yfir einstaklingsnámskrár og samskiptabækur.
Fundir vegna lestrarmenningar
Fundur haldinn hjá leikskólafulltrúa í Kjarna um yngstu-barna verkefnin haldinn í okt. ´04.
Fundur með leikskólafulltrúa og umsjónarkennurum/verkefnastjórum næst elsta stigsins haldinn í mars ´05.
Fundur með leikskólafulltrúa og umsjónarkennurum/verkefnastjórum elstu barna í leikskólunum var maí ´05.
Kynningarfundur
þar sem kynnt var námsefni leik- og grunnskólanna haldinn í Heiðarskóla í sept. ´04.
Trúnaðarmannafundir;
Trúnaðarmaður FL í leikskólanum fór á trúnaðarmannanámskeið á Selfossi í okt. ´04. Trúnaðarmannafund hjá 10. deild leikskólakennara sem haldinn var í Kjarna í jan. ´05 og einnig í apríl ´05.
Skipulags- og námskeiðsdagar
Skipulagsdagur 11. október ´04.
Námskeið um Jákvæð lífsgildi haldið af Erlu Björk Steinarsdóttur grunnskólakennara. Allir starfsmenn skólans sóttu námskeiðið auk þriggja gesta frá leikskólum annarra byggðarlaga.
Skipulagsdagur 15. apríl ´05. (laugardagur)
– Átján starfsmenn fóru á ráðstefnuna ,,Læsi á 21. öldinni” á Akureyri þar sem sóttir voru hinir ýmsu fyrirlestrar. Leikskólastjóri flutti erindi á ráðstefnunni um lestrar- og skriftarkennslu í gegnum fjölgreindir. Þeir sem heima sátu fóru í leikskólaheimsóknir að Suðurvöllum í Vogum og Krók í Grindavík, skoðuðu skólana og kynntu sér stefnur og strauma þeirra.
Skipulagsdagur 16. ágúst ´05.
Fyrsti vinnudagur eftir sumarleyfi. Nýttur til að koma leikskólanum í eðlilegt horf eftir hreingerningu sem gerð var í sumarleyfinu. Einnig nýttur til foreldraviðtala nýrra barna og vistunarsamningar gerðir.
Börn
Fjöldi barna
Í október ´04 dvöldu 94 börn í leikskólanum, 54 börn dvöldu allan daginn í 8-9,5 klst. en 40 börn dvöldu í 4-6,5 klst.
Aldursdreifing barnanna í september ´04 var:
20 börn fædd 2002
25 börn fædd 2001
25 börn fædd 2000
24 börn fædd 1999
Dvalarstundir voru 688 - Barngildi voru 100,9 - Dvalargildi 807,2.
Flutningur á milli
Skólinn býr við þá sérstöðu að hver deild er með hreinan árgang vetrarstarfið allt. Um sumarleyfi ár hvert færast allir (sama dag) yfir á næstu aldursdeild og kennararnir einnig. Þetta gerum við á skemmtilegan hátt, þ.e. allir hittast í sal og eru deildirnar afhentar formlega með fánum, barmmerkjum, vísum og söng. Síðan er ,,marserað” yfir á nýja deild.
Þannig verður deild yngstu nemanna auð og strax að loknu sumarleyfi byrjar aðlögun yngstu nemanna inn í skólann.
Sérkennsla
Í okt. ´03 voru 7 börn með samtals 19 klst. á dag sem nutu sérstuðnings alls 2,37% stöðugildi:
1 barn fætt ´99 í flokki I með 8 klst. á dag.
1 barn fætt ´00 í flokki I með 4 klst. á dag.
1 barn fætt ´99 í flokki III með 4 klst. á dag.
3 börn fædd ´98, ´99 og ´00 í flokki IV, ½ til 1kl. á dag.
1 barn fætt ´98, mælt með stuðningi 2x í viku.
Ragnhildur Sigurðardóttir aðstoðarleikskólastjóri var með umsjón sérkennslu í leikskólanum. Er hún tengill þeirra nema sem njóta sérkennslu í skólanum við sérkennslufulltrúa, foreldra og þá er sinna sérkennslu í skólanum. Fylgir eftir skýrslugerð, situr skilafundi og miðlar upplýsingum. Sérkennarar voru Ástríður Guðmundsdóttir, Kristrún Samúelsdóttir, Jenný Eggertsdóttir, Margrét Kolbeinsdóttir, Fríða Bjarnadóttir, Rúna L. Emilsdóttir og Ingunn Ósk Ingvarsdóttir.
Foreldrasamstarf
Áherslur og markmið
Þar sem börnin dvelja mikinn hluta dagsins í leikskólanum teljum við mikilvægt að góð samvinna og traust skapist milli foreldra og starfsfólks. Að gott upplýsingaflæði þurfi að vera fyrir hendi milli þessara aðila til þess að dvöl barnsins verði sem ánægjulegust. Við leggjum okkur fram við að bjóða foreldra velkomna hvenær sem þeir óska og hvetjum þá til að koma í heimsókn og fylgjast með starfseminni.
Foreldrafundir
Í febrúar ´05 var foreldrum elstu barna skólans boðið á kynningarfund um væntanlega lestrarkennslu sem skólinn var að byrjaði á s.l. og mun standa yfir í 10 vikur. Sýnt í máli og myndum hvernig undirbúningi og framkvæmd er háttað og foreldrar hvattir til samstarfs. Leikskólakennarar hópanna kynntu markmið með starfinu og leiðir til að ná þeim Fundurinn var haldinn e.h. á vinnutíma og var góð mæting foreldra á fundinn.
7. júní ´05 var kynningarfundur fyrir foreldra nýrra barna. Á fundinum var foreldrafélagið kynnt, aðstoðarleikskólastjóri kynnti markmið og leiðir leikskólans í grófum dráttum. Deildarstjóri og starfsfólk Mánavalla kynnti hugmyndir að áhersluþáttum deildarinnar. Mjög góð þátttaka foreldra.
Foreldraviðtöl, fréttabréf og dreifibréf
Foreldraviðtöl.
Í afmælismánuði barnsins er foreldrum boðið að fá viðtal við deildarstjóra sem hópstjóri/tengill viðkomandi barns situr einnig Á haustin gera hópstjórar “atferlisathugun” á hverju barni í sínum hópi og endurskoða hana í janúar. Í samtalinu er foreldrum m.a. greint frá niðurstöðum.
Fréttabréf leikskólans voru fjögur á síðasta starfsári. Þau komu út í, desember, janúar, apríl og júní. Í fréttabréfinu er upplýsingum komið á framfæri við foreldra hvað varðar starfið í leikskólanum.
Foreldrafélag
Foreldrafélag Tjarnarsels er skipað sex fulltrúum foreldra og einum starfsmanni leikskólans.
Foreldrafélagið stóð m.a. fyrir:
- Aðalfundi í október ´04.
- Fyrirlestur um skapmikil börn í samráði við öll foreldrafélög leikskóla Reykjanesbæjar, haldið í Heiðarskóla 1. mars ´05. Fyrirlesari var Þuríður Pétursdóttir sálfræðingur.
- Jólaballi sem var 14. desember í Heiðarskóla. Það var vel sótt og áttu foreldrar og börn ánægjulega stund saman með góðum gestum.
- Leikhúsferð í jan. ´05 að sjá Línu langsokk. Góð þátttaka.
- Sveitaferð að Bjarteyjarsandi í Hvalfirði 22. maí. Frábær þátttaka.
- Sölusýningu á sumarhátíð leikskólans þann 24. júní s.l. þar sem listaverk eftir leikskólabörnin voru til sölu. Þetta var einn liður í fjáröflun félagsins.
- Fréttabréfi sem kom út í mars ´05.
- Kynningu á foreldrafélaginu 7. júní á fundi með nýjum foreldrum.
Samstarf-fræðsla-ráðgjöf
Ráðgjöf og samstarf við rekstraraðila
Leikskólinn hefur aðgang að ráðgjöf og þjónustu frá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Meðal annars við talmeinafræðing, sálfræðinga, sérkennslufulltrúa, leikskólafulltrúa, félagsráðgjafa og fleira fagfólk. Fræðsluskrifstofan hefur staðið fyrir námskeiðum og fyrirlestrum fyrir starfsfólk leikskólans. Leikskólafulltrúi hélt mánaðarlega fund með leikskólastjóra og kom hann þá í leikskólann. Leikskólafulltrúi fundar mánaðarlega sameiginlega með öllum leikskólastjórum Reykjanesbæjar. Einnig hélt hann tvisvar sinnum fundi með aðstoðarleikskólastjórum. Sérkennslufulltrúi kom mánaðarlega inn í skólann og fundar með leikskólastjóra og aðst.leikskólastjóra um börn er njóta sérkennslu. Fylgist vel með og gefur okkur fagleg ráð (sjá Starfsmenn – fundir). Leikskólinn hefur einnig gott samstarf við starfsfólk bæjarskrifstofu, þjónustumiðstöðvar, ÍAV og Fasteignar h.f. Allt okkar samstarf við rekstraraðila hefur verið mikið og gott í gegnum árin.
Samstarf við aðra
- Samstarf við Greiningarstöð ríkisins var í tengslum við börn sem dvelja í leikskólanum og njóta sérkennslu.
- Samstarf við fjölskyldu og félagsþjónustu hefur verið mikið og gott í gegnum tíðina.
- Samstarf við svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi vegna starfsmanns í leikskólanum.
- Samstarf við Þroskahjálp á Suðurnesjum m.a. við sjúkraþjálfa og fjölskylduráðgjafa.
Samstarf við grunnskóla (Sjá einnig á bls. 7.)
Elstu börnin í leikskólanum fóru ásamt hópstjórum í heimsóknir í Myllubakkaskóla, Holtaskóla og Heiðarskóla.
Kennarar yngsta stigs grunnskóla og elsta stigs leikskólans og deildarstjórar hittust nokkrum sinnum á árinu til að ræða samstarf milli skólanna. Einnig hittust þeir á vordögum og farið var yfir gátlista sem fylltir höfðu verið út um þá nemendur sem fara í viðkomandi skóla.
Sérkennarar frá Holtaskóla og Heiðarskóla komu á vordögum í leikskólann til þess að hitta þá nemendur sem njóta sérstuðnings og munu hefja nám í viðkomandi skólum að hausti.
Öryggismál
Þjónustuaðili gagnvart brunavörnum leikskólanna er Öryggismiðstöð Íslands.
Brunaæfing
er einu sinni á ári á haustin. Deildarstjórar endurmeta fyrri rýmingaráætlanir einu sinni á ári. Að þessu sinni var æfingin 29. sept. ´04. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja komu og reykfylltu húsið. Húsið var rýmt skv. Rýmingaráætlun hússins og þurftu nemendur einnar deildarinnar að forða sér út um glugga. Allt gekk skv. Áætlun og tók skamman tíma og fengu nemarnir síðan að keyra um með slökkvibílnum um bæinn
Slökkvitæki
eru yfirfarin einu sinni á ári.
Lögreglan
kemur í heimsókn einu sinni á ári á haustin og var heimsóknin þann 15. sept. ´04 fyrir hádegi. Tveir lögregluþjónar komu ásamt Lúlla löggubangsa. Þeir fóru yfir helstu hættur sem ber að varast í umferðinni og lögðu sérstaka áherslu á notkun endurskinsmerkja. Öll börn og starfsfólk fengu endurskinsmerki að gjöf
Fulltrúar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja komu í sept. ´04, tóku sýni svo sem af borðum og borðbúnaði og yfirfóru eldhús, salerni og annað aðbúnað og tók út slysahættur utandyra.
Öryggisfulltrúi og ,,húsvörður” leikskólans er Kristrún Samúelsdóttir.
Lokaorð
Það sem stendur upp úr á s.l. starfsári er að þrír starfsmenn luku fjarnámi frá leikskólakennarabraut Háskóla Akureyrar. Vissulega er það ekki alltaf dans á rósum að vera með marga fjarnámsnema í starfi. En þegar upp er staðið er námið að skila þekkingu og reynslu inn í leikskólann öll námsárin sem er ómetanlegt. Leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóri lokuðu skrifstofunni í tíu vikur s.l. vetur og stýrðu deildum, því ekki reyndist unnt að ráða og þjálfa nýtt starfsfólk þegar vettvangsnemarnir okkar voru boðaðir í tíu vikna vettvangsnám í aðra leikskóla.
Nýútskrifaðir leikskólakennarar færðu skólanum lokaritgerðir sínar að gjöf. Ritgerðirnar fjalla allar að einhverju leyti um hugmyndafræði og stefnu leikskólans sem nýtist kennurum skólans í starfi með börnunum.
Undanfarin tíu ár hefur starfsfólk og leikskólakennarar Tjarnarsels verið að þróa ýmsar nýjungar í leik og starfi með börnunum og farið ótroðnar slóðir til þess s.s. skipulagðar vettvangsferðir þar sem áhersla er lögð á umhverfis- og grenndarfræðslu og hreinar aldursskiptar deildir þar sem börn og kennarar færast árlega yfir á næstu aldursdeild. Enn erum við að selja handbókina ,,Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans”, sérstaklega til nemenda í grunn- og leikskólakennaranámi við Háskóla Akureyrar. Bragi Guðmundsson lektor hefur bent á handbókina sem gott námsefni í grenndarfræðslu.
Á síðustu þremur árum hefur leikskólinn Tjarnarsel verið að þróa lestrarhvetjandi umhverfi fyrir alla aldurshópa skólans, utan húss sem innan. Þróunarverkefnið hefur beina tengingu í verkefnið ,,Lestrarmenning í Reykjanesbæ”. Tjarnarsel er fyrsti leikskólinn á landinu sem býður upp á formlegt lestrarnám fyrir elsta árgang skólans.
Starfsmannahópurinn lagði land undir fót 16. apríl s.l. og ók norður á Akureyri til að sitja ráðstefnuna ,,Læsi á nýrri öld”. Á ráðstefnunni var Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri með erindi um ,,Lestrar- og skriftarkennslu í gegnum fjölgreindir”. Einnig var leikskólastjóri með erindi á kynningu við RKHÍ, ,,formleg lestrar- og skriftarkennsla í leikskólanum Tjarnarseli”.
Bæjarstjóri tilnefndi leikskólabörn Tjarnarsels sem sendiherra Reykjanesbæjar þar sem þau hafa látið sig mikið varða sitt nánasta umhverfi og komið með ábendingar sem tekið hefur verið tillit til og má þar nefna beiðni um útsýnispall við Ægisgötu sem hefur orðið að veruleika, öllum til mikillar ánægju og gleði.
Ánægjulegt er að finna og heyra hversu sýnileg við erum fyrir okkar þróunarstörf (þ.e. vettvangsferðirnar og lestrarkennsluna) á landsbyggðinni allri, sem sýnir sig best í sölu handbókarinnar, óska um fyrirlestur á hinar ýmsu ráðstefnur um þróun lestrarkennslunnar og hinna fjölmörgu heimsókna í leikskólann. Allt slíkt væri ekki mögulegt nema fyrir hversu mikill stöðugleikinn og samheldnin í starfsmannahópnum er. Einnig fyllir það okkur stolti að sjá hverju nemendur okkar hafa fengið áorkað með framtaki sínu sem tekið hefur verið eftir um land allt, þ.e. að hugmynd sem komið er á framfæri verði framkvæmd og sýnileg og komi að notum, þeim og öðrum bæjarbúum til ánægju.
Reykjanesbæ í september 2005
__________________________________________
Ragnhildur Sigurðardóttir aðstoðarleikskólastjóri
__________________________________________
Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri