EFNISYFIRLIT
Almennar upplýsingar
Leikskóli
Tjarnarsel, Tjarnargötu 19 – sími 421-4204.
netfang: tjarnarsel@reykjanesbaer.is
Veffang: www.rnb.is/tjarnarsel
Leikskólinn Tjarnarsel er rekinn af Reykjanesbæ. Hann er elsti leikskólinn í bæjarfélaginu, opnaður 1967. Í skólanum dvelja alls um 91 barn í fjórum aldursskiptum deildum: Mánavellir, deild 2ja ára barna, Sólvellir, deild 3ja ára barna, Sunnuvellir, deild 4ra ára barna og Ljósvellir, deild 5 ára barna.
Breytingar og viðhald
Útileiksvæði:
Hóll á útisvæði tyrfður. Gúmmímottur settar undir rólur. Endurnýjaður sandur í sandkassa og hann lagfærður. Settar upp kattafælur.
Enn er eftir;
Að bera á hurðir, glugga, palla o.fl..
Innanhúss:
Skipt var um ofna á Mánavöllum og heimastofa máluð þar, keyptar tuttugu dýnur og útbúnir sérsaumaðir dúkar á matarborðin. Á Sólvöllum var máluð heimastofa, högglistar settir víða og límdir niður listar. Gangur málaður milli Mánavalla og Sólvalla og settir högglistar. Málaður veggur á Sunnuvöllum og útveggir í tengibyggingu, einnig salerni Ljós- og Sunnuvalla. Yfirfarnar skrár og læsingar á hurðum, settir högglistar víða og skipt út brotnum speglum í listasmiðju og í holkubbaherbergi. Endurnýjaður prentari og fjárfest í hljóðkerfi.
Enn er eftir;
Að setja þakmótor upp úr þaki í matargeymslu og einnig í þvottahús.
Námskrá - stefna
Uppeldisstarf, áherslur og markmið
Í leikskólanum er starfað samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla sem Menntamálaráðuneytið gaf út 1999. Skýr starfsmannastefna og námsskrá leikskólans gerir vinnuferlið opnara og sýnilegra fyrir starfsfólk leikskólans og foreldra leikskólabarna. Sú hugmyndafræði sem hefur þróast í leikskólanum síðustu árin er útivist, hreyfing og umhverfismál og er aðaláherslan lögð á vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans. Einnig er lögð áhersla á lestrarhvetjandi umhverfi. Okkar starf byggist upp á einfaldleika þar sem reynir á ímyndun, sköpun og skynjun barnsins. Allt sem gert er með barninu í leikskólanum fer fram í gegnum leikinn á forsendum barnsins. Við leggjum áherslu á að rækta tillitsemi, vináttu og kærleika á milli barna og starfsfólks. Að hver einstaklingur læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, náunganum og umhverfinu. Markmiðið er að flétta saman vettvangsnámi og umhverfis-fræðslu inn í daglegt líf og starf leikskólans. Stefnan er sett á Grænfánann á næsta ári og haustið 2005 urðum við ,,skóli á grænni grein”
Loka markmið leikskólagöngunnar er að útskrifa sjálfstæðan, öruggan og gagnrýninn einstakling sem ber virðingu fyrir sjálfum sér, náunganum og umhverfi sínu.
Einkunnarorð leikskólans eru; hreyfing – lífsgleði – upplifun og virðing sem tengjast inn í daglegt líf leikskólans.
Skólanámskrá
Leikskólinn hefur gefið út skólanámskrár frá árinu 1997 og endurskoðað þær árlega síðan, fyrir utan árið 2004. Einnig hafa verið gefnar út námskrár fyrir hvert aldursstig. (sjá þróun og nýbreytni bls. 5).
Matsaðferðir
- Aldursmiðaðar atferliskannanir að hausti og vori, (samræmdar fyrir alla leikskóla Reykjanesbæjar haustið ´03).
- Þroskapróf AAL, sem er athugunarlisti fyrir atferli leikskólabarna.
- Ofvirknikvarði fyrir 4ára og eldri.
- Ísl. þroskalistinn.
- Athyglisbrestur barna, fyrir 4ára og eldri.
- Hegðun á heimili, fyrir 4ára og eldri sem foreldrar fylla út ef um hegðunarerfiðleika er að ræða.
- Hljóm – 2, sem kannar hljóðkerfisvitund elstu barnanna í leikskólanum. Prófað er bæði að hausti og að vori.
- Orðaskil (málþroskapróf).
- Færni barns í málnotkun og málskilningi, gróf viðmið fyrir aldurinn 1 – 4ja ára.
- Stafaþekking (könnuð hjá elstu nem. fyrir og eftir lestrar- og skriftarnámsk.)
- Lestrar- og skriftarpróf (lagt fyrir hjá elstu nem. fyrir og eftir lestrar- og skriftarnámskeið).
Skipulag
Dagskipulag
07:30 Leikskólinn opnar, rólegheit.
08:00-08:45 Morgunverður og leiktími.
08:45-11:15 Nám og leikur (inni-úti).
11:15–13:00 Hádegisverður og hvíld.
13:00 –14:45 Nám og leikur (inni-úti)
14:45-15:15 Síðdegishressing
15:30-17:00 Nám og leikur (inni-úti)
17:15 Leikskólinn lokar.
Hver deild útfærir síðan dagskipulagið tengt árgangi nemanna.
Morgunverður.
Þegar morgunverður stendur yfir leika börnin við rólegheit og einnig er alltaf boðið uppá sögustund. Kennari les á afmörkuðu svæði.
Hópastarf
er fjórum sinnum í viku yfir vetrartímann en þrisvar í viku á sumrin. Nemendunum er raðað í hópa eftir kyni, ef hægt er að koma því við. Hver hópur hefur sinn hópstjóra sem ber ábyrgð á öllu skipulögðu starfi innan hópsins.
Vettvangsferðir
hafa verið sérkenni á hópastarfinu en jafnframt er lögð áhersla á hreyfingu, samskipti, uppgötvun og lífsgleði. Hópstjórar eru vakandi fyrir því að grípa hugmyndir nemanna og leyfa þeim að þróast.
Val
er alla daga vikunnar fyrir og eftir hádegi. Val byrjar alltaf á valfundi þar sem hvert barn velur sér leiksvæði.
Ritmál
í umhverfinu hefur verið sýnilegt og áhersla verið lögð á nöfn barnanna og merkingar á öllum sýnilegum hlutum skólans.
Söngstund
er einu sinni í viku. Í hverri söngstund koma tvær deildir saman í salnum á Miðvöllum og blandast þar ýmsir aldurshópar og læra þau yngri af eldri nemum.
Aðgengi að bókasafni.
Frjálst aðgengi er í bókasafn leikskólans sem er á opnu svæði á Miðvöllum. Reglulega er skipt um bækur í bókaskápum deildanna.
Skógarlund
hafa börn og starfsfólk fóstrað síðan 1997. Er hann í landi Skógræktar Suðurnesja í ,,Vatnsholti”. Þar eru settar niður trjáplöntur, hlúð að eldri plöntum og svæðinu haldið snyrtilegu auk þess sem svæðið er uppspretta ýmissa leikja. Má nefna að á Degi umhverfis fóru allir nemar skólans ásamt kennurum og þrifu svæðið (sjá menningarviðburðir).
Starfsmannastefna – starfsmannahandbók
Starfsmannastefna leikskólans byggist á sameiginlegri sýn starfsfólksins um stefnur og leiðir í uppeldismenntun leikskólabarna. Hún byggir einnig á námsskrá leikskólans um ,,Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans”, árlegum starfsmannaviðtölum, sameiginlegum boðleiðum, reglulegum fundum o.s.frv.
Starfsmannahandbók var samin árið 2002 og komu allir kennarar skólans að henni. Smávægilegar breytingar og viðbætur hafa verið settar inn í síðan og á komandi haustdögum munu allir starfsmenn leikskólans koma að endurgerð hennar að nýju.
Starfið sl. leikskólaár
Starfsáætlun
Ársáætlunin byggir á áhersluþáttum leikskólans og framtíðarsýn allra starfsmanna leikskólans. Hlutverk hennar er tvíþætt; annars vegar er hún hugsuð sem tímaáætlun og hins vegar vinnuáætlun.
Dagatal leikskólans
Dagatal fyrir haust- og vorönn 2005/2006 var kynnt á starfsmannafundi í sept. ´05. Þá var farið yfir það sem er á döfinni allt skólaárið og starfsfólk fékk tækifæri til þess að koma með athugasemdir (sjá fylgiskjal 1).
Mat á starfinu, framkvæmd og niðurstöður
Starfsmannasamtöl
fara fram einu sinni á ári þar sem farið er yfir útfyllt sjálfsmat og starfsmaður veltir upp sínum sterku eiginleikum. Einnig hvaða námskeið tengdri símenntun hann óski eftir.
Viðhorfskönnun.
Reykjanesbær setti inn á vef hvers leikskóla viðhorfskönnun sem foreldrar svöruðu. Svörunin hjá okkur varð 79%.
Óformlegt endurmat.
Leikskólastjóri hélt fund í Kjarna 25. apríl ´06 með deildarstjórum þar sem farið var yfir starfið liðinn vetur og lagðar línurnar fyrir sumarstarfið (sjá fylgiskjal 2).
Þróunar og nýbreytnistarf
Námskrá yngsta- og næst-yngsta aldurstigsins.
Tvö síðastliðin ár hafa stjórnendur leikskólans ásamt öðru starfsfólki unnið að því að útbúa námskrá hvers aldursstig fyrir sig. Enn er þessi vinna í gangi og stefnt er að því að ljúka henni fyrir n.k. áramót. Útbúin var í maí s.l. námskrá fyrir yngsta stigið sem afhentur var foreldrum á kynningarfundi nýrra barna og í ágúst var útbúin námskrá fyrir næst yngsta stigið og foreldrum afhent hún.
Skóli á grænni grein
Í nóvember ´05 gekk leikskólinn til liðs við verkefnið ,,skólar á grænni grein” og stefnir að því að stíga ,,skrefin 7”. Þegar þau hafa verið stigin mun leikskólinn vinna til alþjóðlegrar viðurkenningar, Grænfánans, sem staðfestingu á góðum ásetningi og virku umhverfisverndarstarfi. Landvernd sendi okkur viðurkenningarskjal þessu til staðfestingar.
Umhverfissáttmáli
samin fyrir hverja deild skólans og er það liður í að stefnt er að fá Grænfánann.
Lífræn flokkun í eldhúsi.
Keyptur var safnkassi í eldhús þar sem matráðar sjá um að flokka lífrænan úrgang.
Moltugerð
er í hávegum höfð og skiptast deildirnar vikulega að sjá um að ,,hræra” í gámunum og einnig fer fram moltugerð inni á deildum með nemendum.
Innleiðing táknmáls
Í janúar sl. var byrjað að kenna elsta stiginu táknmál. Einn kennari fór á táknmálsnámskeið og bætti við fyrri kunnáttu sína og kenndi síðan öðrum kennurum deildarinnar. Táknmálinu var fléttað inn í daglegt starf og einnig lestrarkennsluna og hefur t.d. hver stafur sitt tákn. Þetta mæltist vel fyrir hjá foreldrunum sem sáu árangurinn á skólaslitunum þegar útskriftarnemendur sungu nokkur lög á táknmáli. Eftir sumarleyfið fékk táknmálið aukið vægi í leikskólanum þegar heyrnaskertur 2ja ára nemandi hóf leikskólagöngu sína. Haldið verður áfram að kenna öðrum aldursdeildum táknmálið, með því að fleiri kennarar verði sendir á táknmálsnámskeið.
Starfsmannasamtöl
Nýtt form var útfært (sjálfsmat leikskólakennara sjá fylgiskjal 3) þar sem hver starfsmaður fyllir út staðhæfingar og fullyrðingar sem hann telur að eigi best við sig. Leikskólastjóri tekur viðtöl við deildarstjórana og þeir síðan við starfsmenn sinna deilda.
Hlutverk leikskólans í nærumhverfi og atvinnulífi.
Hugmyndafræði leikskólans hefur einkennst af umhverfismennt frá árinu 1997 þar hafa vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans verið í brennidepli. Umhverfismenntin hefur verið í sífelldri þróun og í ár var engin undatekning á því. Mikil áhersla lögð á að kennarar og nemendur láti sig varða það sem viðkemur umhverfi sínu og að koma með ábendingar, til réttra aðila, ef þurfa þykir.
Samstarf við hverfisvini:
Elstu nemendur skólans voru í samstarfi við hverfisvini Þjónustumiðstöðvar Reykjanes-
bæjar og smíðuðu og hönnuðu safnkassa í sameiningu sem settir voru niður á lóð leikskólans. Þetta tengist umhverfismennt sem er stór liður í okkar leikskólastarfi.
Kattafælur:
Ákveðið var í samráði við verkstjóra Reykjanesbæjar að keyptar og settar yrðu upp öflugar kattafælur til að halda köttum nágrennisins fjarri sandkassa leikskólans. Þetta varð að veruleika í ágúst ´06.
Lestrarmenning Reykjanesbæjar.
Þátttaka okkar að þróunarverkefninu hefur verið með ýmsum hætti þau þrjú ár sem það stóð yfir en því lauk formlega vorið ´06. Framhald við fyrri nýjungar sem tengjast því eru:
Lestrar og skriftarnámskeið:
Þann 1. febr. ´04 hófst tíu vikna lestrar- og skriftarnámskeið fyrir Sunnuvallanemendur (elsta árganginn). Kennt var fjórum sinnum í viku.
Rannsóknir og kynningar hafa verið hafa verið áberandi s.l. starfsár og má þar nefna að leikskólastjóri hefur víða verið beðin um að flytja erindi um okkar frumkvöðlastarf sem lestrar- og skriftarkennslan er. Má t.d. nefna að í ágúst s.l. var hún með erindi fyrir framhaldsnemendur í ,,námi og kennslu yngri barna” í KHÍ og á Kjarnanámskeiði í Reykjanesbæ. Einnig gerði hún rannsókn og fylgdi eftir hópi nemenda í námi þeirra við grunnskóla (Myllubakkaskóla) í Reykjanesbæ. Þetta var hluti lokaritgerðar hennar í framhaldsnámi í Stjórnun við KHÍ, sem lauk í okt. ´05.
Leikskólar hafa óskað eftir kynningu á lestrar- og skriftarnámskeiðinu með heimsóknum í skólann og einnig birtist viðtal við leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra í Morgunblaðinu í ágúst ´06.
Samstarf skólastiga:
Myllubakkaskóli bauð Sunnuvallanemum á þemadaga sem haldnir voru í skólanum 1/10 ´05.
Fyrsti bekkur EN úr Myllubakkaskóla kom í heimsókn 20/10 ´05 – liður í samstarfi milli skóla. Tóku þátt í starfi og leik og snæddu með nemendum.
Elstu nemendur okkar (Sunnuvellir) heimsóttu Myllubakkaskóla í nóv. ´05. Skólinn skoðaður og snætt með nemendum.
Í des. ´05 var Sunnuvallanemendum boðið í bókasafn Myllubakkaskóla og lesin fyrir okkur jólasaga.
Skipst var á jólakortum á milli Sunnuvallanema og 1 EN í Myllubakkaskóla í des. ´05.
Myllubakkaskóli var með þemadaga í skólanum og buðu Sunnuvallanemendum í heimsókn til að skoða hvað þau voru búin að gera úr verðlausu efni.
Helmingur Sunnuvallanema fór í leikfimitíma í Myllubakkaskóla á vordögum og hinn helmingur deildarinnar viku síðar.
Deildarstjóri Sunnuvalla og leikskólastjóri fóru á skilafund með grunnskólakennurum og deildarstjórum yngsta stigsins í grunnskóla 15/5 ´06.
Þrír kennarar frá sérdeild Holtaskóla komu 16/5 ´06 og skoðuðu þá nemendur sem fara frá okkur í Holtaskóla haustið ´06.
Deildarstjóri Sunnuvalla og aðstoðarleikskólastjóri fóru á fund 18/5 ´06 með sérkennslufulltrúa og fulltrúum sérdeilda grunnskólanna og ræddu sérkennslubörn sem eru að ljúka dvöl sinni í leikskólanum.
Menningarviðburðir, ferðir, sýningar, hefðir og hátíðir
Styttri kynnisferðir.
Í hópastarfi sem er þrisvar-fjórum sinnum í viku er farið að mestu í vettvangsferðir. Þá eru svæði eins og Skrúðgarður, Nónvarða, Vatnsholt, Hrauntúnsholt, Skólaholt, fjaran, Smábátahöfnin, Fitjarnar, og ótal önnur svæði könnuð í öllum sínum fjölbreytileika. Flest er farið gangandi en þó stundum með strætisvögnum bæjarins.
Lengri ferðir.
Í ævintýraviku elstu barna leikskólans er farið í styttri og lengri ferðir. Í vor var farið; í Fræðasetrið í Sandgerði, slökkvistöðina í Reykjanesbæ og að skoða skipið Íslending. Í útskriftarferð var farið með vinaleikskólanum okkar sem er leikskólinn Arnarsmári í Kópavogi upp í Heiðmörk og var farið í margs konar leiki og grillað saman. Síðan var leikskólinn heimsóttur og dvalið þar góða stund í góðu yfirlæti.
Menningarviðburðir og aðrar skemmtanir
Ljósanótt.
Nemendum boðið að vera viðstödd setningu Ljósanæturhátíðar Reykjanesbæjar við Myllubakkaskóla 1/9 ´05.
Uppskeruhátíð
var haldin í tengslum við uppskeru úr skólagörðum leikskólans. Hátíðin var haldin 17. september ´05 í sal skólans þar sem fram fór einnig söngstund og var að mestu sungin grænmetislög. Allir fengu að smakka á grænmetisuppskerunni og Sunnuvallanemendur gáfu öllum nýuppteknar kartöflur í poka með sér heim.
Inni-íþróttadagur.
Sól-, Ljós- og Sunnuvallanemendum boðið í íþróttahúsið við Sunnubraut 24. okt. ´05. Tveir foreldrar buðu okkur í hreyfistund. Mánavallanemendur héldu sinn inni-íþróttadag í leikskólanum.
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu
sem við héldum uppá föstudaginn 16. nóv. ´05 fluttu Ljós- og Sunnuvallanemar fluttu leikritið um Geiturnar þrjár fyrir alla nemendur skólans, einnig voru sungin gömul íslensk þjóðlög.
Norræn bókasafnsvika.
Í tilefni af norrænu bókasafnsvikunni kom Svanhildur Eiríksdóttir bókasafnsfræðingur 20. nóv. ´05 og las upp ferðasöguna Ferðin til Kalajoki fyrir Sunnuvallanemendur.
Dagur bókarinnar
23. nóv. ´05. Í því tilefni komu fjölmargir foreldrar í heimsókn og lásu upp fyrir börnin.
Jólasögustund 6. des. ´05.
Bergljót Arnalds rithöfundur kom og las frumflutta jólasögu sem hét Jólasveinarnir.
Jólastund starfsfólks 9. des. ´05.
Starfsfólk kom saman og átti góða kvöldstund með tilheyrandi jólamat og skemmtun.
Jólastund í Duushúsum 13. desember ´05.
Sunnuvallanemendum boðið í jólastund á brúðusýninguna Grýlan og súpan í flutningi Hallveigar Thorlacius.
Fjölskyldudagur í Kirkjulundi
var haldinn 14. desember ´05. Sunnu-, Ljós- og Sólvallanemar voru með samverustund fyrir foreldra. Sunnuvallanemar fluttu helgileik og Ljós- og Sólvallanemar fluttu leikþætti og sungin voru jólalög. Boðið var upp á kaffi og smákökur sem nemarnir höfðu bakað. Frábær þátttaka og tókst samverustundin í alla staði mjög vel. Þann sama dag buðu Mánavallanemar foreldrum sínum í leikskólann þar sem gengið var í kringum jólatréð í salnum og síðan var boðið upp á smákökur og kaffi. Góð þátttaka.
Jólahelgistund.
Þann 19. des. ´05 var börnum í tveimur elstu árgöngunum boðið að koma í Kirkjulund ásamt nemum frá öðrum leikskólum bæjarins, þar sem haldin var jólahelgistund.
Litlu jólin
voru haldin hátíðleg 20. desember ´05 á sal skólans. Sungið og dansað í kringum jólatréð og tveir frábærir jólasveinar komu í heimsókn sem skemmtu börnunum. Boðið var upp á hangikjöt með öllu tilheyrandi í hádegismat.
Bóndadagurinn var haldinn hátíðlegur 20. jan. ´06 með því að bjóða pöbbum og/eða öfum að koma í morgunmat/síðdegishressingu. Frábær þátttaka.
Þorrablót var 3. febrúar '06. Til þess að gera daginn eftirminnilegan var komið saman á sal skólans og sungnar ,,þorravísur”. Sýning var á gömlum munum og leikföngum sem er í eigu starfsfólks leikskólans og Byggðasafnsins. Einn kennari skólans klæddi sig upp í gömul húsfreyjuföt og útskýrði og sýndi hina ýmsu hluti og brúkun þeirra. Allir fengu að smakka ,,gamlan mat” (hrútspunga, sviðasultu, slátur, hákarl, og harðfisk) og renndu þessu niður með mysu. Í hádegisverð var boðið upp á hangikjöt og slátur m/rófustöppu og kartöflumús. Frábær dagur.
Tannverndarvika 2-6. febr. ´06. Ljósvallanemar heimsóttu tannlæknastofu og fjallað var um verkefnið á öllum deildum.
Mömmu- og ömmukaffi 17. febr. ´06. Í tilefni konudags var mömmum og ömmum nemenda boðið upp á morgunkaffi. Frábær þátttaka.
Bolludagur og sprengidagur 27. og 28. febr. ´06
voru með hefðbundnu sniði. Borðaðar rjómabollur og fiskibollur í tilefni af bolludegi. Saltkjöt og baunir borðað í tilefni af sprengidegi.
Vinavika 27. febr. – 3. mars.
Haldin vinavika meðal starfsfólks.
Öskudagur 1. mars ´06
var furðufatadagur í leikskólanum. Allir sem vilja klæðast furðufötum. Í tilefni dagsins er ,,góðgæti slegið úr kassa”, dansað og valsað um allan leikskólann.
Blái herinn.
Tómas Knútsson afi tveggja leikskólanemenda okkar og kafari með meiru, skellti sér í sjóinn 7/3 ´06 og kom færandi hendi með ýmis lifandi krabbadýr s.s. krossfiska, ígulker o.fl. og gaf skólanum til fræðslu og nota. Gladdi það alla og tengdist könnunar-aðferðarverkefni eins leikskólakennaranema sem hér dvaldi og var þemaverkefnið hafið.
Inni-íþróttadagur
var 30. mars. Sól-, Ljós- og Sunnuvellir fóru í íþróttahúsið við Sunnubraut og Mánavallanemendur héldu sinn inni-íþróttadag í leikskólanum.
Dagur bókar 23. apríl ´06.
Í því tilefni kom Svanhildur Eiríksdóttir bókasafnsfræðingur 19. apríl og las fyrir nemendur á öllum deildum skólans.
Dagur umhverfisins var 25. apríl ´05.
Nemar Sól-, Ljós- og Sunnuvalla fóru ásamt kennurum upp í Vatnsholt að þrifu skógarlundinn okkar og svæðið þar í kring. Nemendur Mánavalla þrifu útisvæðið í leikskólanum.
Matráðum boðið í hóf 27. apríl ´06 í heildverslun Ásbjörns Ólafssonar.
Ævintýravika Sunnuvallanema
8.9.10 og 15. maí (sjá lengri ferðir bls. ??)
Sveitaferð 16. maí ´06 fyrir Sól- og Ljósvallanema að Hraðastöðum í Mosfellsdal. Kennarar deildanna og 8 foreldrar fóru með í sveitaferðina.
Umferðarfræðsla
19. maí ´06 á vegum Umferðarstofu ásamt lögreglunni í Reykjanesbæ, haldin í leikskólanum fyrir Ljós- og Sunnuvallanemendur. Var hún í formi fræðslu, myndbands og annars skemmtiefnis.
Útskriftarhátíð elstu nema
var haldin í Kirkjulundi 23. maí ´06. Fjölskyldum nemanna boðið til útskriftarinnar. Einn nemandi lék á fiðlu nemarnir allir fluttu sönglög m/táknmáli og einnig lásu nokkrir nemendur stuttan texta. Leikskólastjóri talaði til þeirra og afhenti þeim blóm og viðurkenningarskjal. Að lokum var öllum boðið upp á kaffi og safa og kökur og myndasýning var á starfi nemanna.
Sumarhátíð
var haldin 2. júní ´06. Fjölskyldum barnanna var boðið að taka þátt í gleðinni með okkur. Dagskráin saman stóð m.a. af leikjum, andlitsmálun, söng, útskrift og grilli. Foreldrafélagið var með sölusýningu á listaverkum eftir nemendur. Foreldrafélagið afhenti leikskólanum þrjú hlaupahjól að gjöf og kennurum skólans færði það ilmkerti. Frábært veður og mikill fjöldi mætti.
Kynning á leikskólanum út á við
Nemi frá FS
kom 15. nóv. ´05 og kynnti sér starfsemi leikskólans og annar nemi frá FS kom 9/3 ´06.
Leikskólakennaranemi frá KHÍ
á 4. ári kom í heimsókn ásamt æfingakennara sínum frá Heiðarseli 4. okt. ´05 og kynntu þær sér lestrarnámið í Tjarnarseli.
Könnunarleikur.
Tíu kennarar frá leikskólanum Suðurvöllum í Sandgerði komu og kynntu sér könnunarleikinn dagana 24. – 30. jan. ´06.
Kennsla á Kjarnanámskeiði.
Þrír kennarar leikskólans kenndu á kjarnanámskeiði sem haldið er fyrir leiðbeinendur í leikskólum á vegum Miðstöðvar símenntunar í Reykjanesbæ dagana 26. jan. og 2. og 9. febr. ´06. Ásta Sigurðardóttir kenndi könnunarleikinn, Margrét Kolbeinsdóttir kenndi um vettvangsferðir og Inga María Ingvarsdóttir kenndi lestrartækni.
Málþing um náttúrufræðimenntun
haldið í KHÍ 31. mars og 1. apríl. Inga María leikskólastjóri og Margrét Kolbeinsdóttir deildarstjóri fluttu erindi um vettvangsferðir og útikennslu fyrir hádegi og eftir hádegi sama dag voru þær með vinnustofu þar sem þær kynntu bakpokanotkun í vettvangsferðum (útikennslu).
Leikskólastjórafundur í Hvalfirði
27. og 28. apríl ´06. Leikskólastjórar Reykjanesbæjar ásamt sérkennslu- og leikskólafulltrúa funduðu um sameiginleg málefni. Inga María leikskólastjóri flutti erindi um náms- og kynnisferðina sem farin var til Edenborgar 20.-23. apríl ´06.
Tuttugu og þrír kennarar frá leikskólanum Álfaheiði á Selfossi heimsóttu skólann
30. maí ´06 og fengu kynningu á starfi okkar og sérstaklega vettvangsferðunum.
Listsýning á verkum nemanna í leikskólanum haldin í Bókasafni Reykjanesbæjar 28. júlí til 14. ágúst ´06.
Einnig má geta þess að kennarar skólans eru duglegir að kynna allt starfið á vefsíðu leikskólans. Einnig hafa þeir verið iðnir að senda fréttir í staðarblöð og landsblöð og fengið jákvæða og góða umfjöllun.
Börn
Fjöldi barna - dvalartími
Í október ´05 dvöldu 91 barn í leikskólanum, 69 börn dvöldu allan daginn í 7-9,5 klst. en 22 börn dvöldu í 4-6,5 klst.
Aldursdreifing barnanna í september ´05 var:
22 börn fædd 2003
22 börn fædd 2002
23 börn fædd 2001
24 börn fædd 2000
Dvalarstundir voru 704,5 - Barngildi voru 101,4 - Dvalargildi 810,8.
Flutningur barna milli deilda
Skólinn býr við þá sérstöðu að hver deild er með hreinan árgang vetrarstarfið allt. Um sumarleyfi ár hvert færast allir (sama dag) yfir á næstu aldursdeild og kennararnir einnig. Þetta gerum við á skemmtilegan hátt, þ.e. allir hittast í sal og eru deildirnar afhentar formlega með fánum, barmmerkjum, vísum og söng. Síðan er ,,marserað” yfir á nýja deild.
Þannig verður deild yngstu nemanna auð og strax að loknu sumarleyfi byrjar aðlögun yngstu nemanna inn í skólann.
Sérkennsla
Í okt. ´05 voru 6 börn með samtals 19 klst. á dag sem nutu sérstuðnings:
1 barn fætt ´00 í flokki I með 8 klst. á dag.
1 barn fætt ´01 í flokki III með 4 klst. á dag.
1 barn fætt ´03 í flokki III með 4 klst. á dag.
2 börn fædd ´00 í flokki IV, ½ til 1klst. á dag.
1 barn fætt ´01 í flokki IV, ½ til 1 klst. á dag.
Tína Gná Róbertsdóttir er sérkennslustjóri leikskólans. Aðrir sérkennarar voru, Kristrún Samúelsdóttir, Þórey Óladóttir, Jenný Eggertsdóttir og Halldóra Andrésdóttir.
Starfsmenn
Stöðugildi
Í október 2005 skiptust stöðugildi þannig:
Leikskólakennarar: 7 starfsmenn 6,60 stöðugildum.
Leiðbeinendur: 15 starfsmenn í 16,25 stöðugildum.
Starfsfólk í eldhúsi: 2 starfsmenn í 1,6 stöðugildum.
Af ofangreindum stöðugildum voru 2,37 stöðugildi í sérkennslu.
Endur- og símenntun starfsmanna
Menntun starfsmanna 1. okt. ´05
Leikskólakennarar: 7 starfsmenn.
Fjarnám í leikskólafræðum á 3. ári við Kennaraháskóla Íslands; 1 starfsmaður.
Nám í fjarnámi í þroskaþjálfabraut við KHÍ: 1 starfsmaður
Grunnskólapróf eða sambærileg menntun: 15 starfsmenn
Nýjar stöðuveitingar.
Halldóra Andrésdóttir hóf störf í leikskólanum 14/9 ´05. Brynja Brynleifsdóttir hóf störf í leikskólanum 2/1 ´06. Margrét Kolbeinsdóttir deildarstjóri fór úr 75% stöðu í 100% stöðu 1. júní ´05. Tína Gná Róbertsdóttir leikskólakennari fór í stöðu sérkennslustjóra í jan. ´06 og Þórey Óladóttir hóf 100% starf við sérkennslu 28. ágúst ´06.
Endurheimtir starfsmenn.
Hrefna Björk Sigvaldadóttir kom úr launalausu leyfi 18. maí ´06 og vann til 18. ágúst ´06 er hún hætti störfum og Sigrún Sigurðardóttir kom úr launalausu leyfi 17. júlí ´06.
Fjarvistir nema.
Einn fjarnámsnemandi við leikskólaskor KHÍ fór samtals í staðarlotur í skólann samtals 11 daga.
Veikindaleyfi.
Alls voru fjórir starfsmenn samfellt í veikindaleyfi frá fjórum vikum upp í fjóra mánuði á s.l. starfsári.
Launalaust leyfi.
Hrefna Björk Sigvaldadóttir fór í launalaust leyfi frá ágúst ´05 til maí ´06.
Uppsagnir.
Lórý Benjamínsdóttir hætti störfum 1. júní ´06 og Halldóra Andrésdóttir hætti störfum 12. júní ´06.
Námskeið, fyrirlestrar, ráðstefnur o.fl.
Grunnnámskeið um Einhverfu og skyldar þroskaraskanir
haldið 21/9 ´05 hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Jenný Eggertsdóttir, Ingunn Ósk Ingvarsdóttir, Gréta Eiríksdóttir, Kristrún Samúelsdóttir og Tína Gná Róbertsdóttir sóttu námskeiðið, alls 8 kennslustundir.
Sértæk úrræði og árangur í brennidepli.
Ráðstefna hjá Talþjálfun Reykjavíkur í tal og málörvun 23/9 ´05. Ragnhildur Sigurðardóttir, Fanney Jósepsdóttir, Gréta Eiríksdóttir og Aldís Einarsdóttir sóttu ráðstefnuna, alls 6 kennslustundir.
Atferlismótun.
Námskeið hjá Greiningarstöð ríkisins 13. og 14. okt. ´05. Jenný Eggertsdóttir og Ingunn Ósk Ingvarsdóttir sóttu námskeiðið, alls 16 klst.
Stjórnendanámskeið
á vegum Reykjanesbæjar haldið í Bláa lóninu 19/10 ´05. Inga María Ingvarsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir sóttu námskeiðið, alls 8 klst.
Trúnaðarmannanámskeið
á vegum Félags leikskólakennara haldið á Selfossi 19/10 ´05. Fanney Jósepsdóttir trúnaðarmaður sótti námskeiðið, alls 8 klst.
Hvernig virkjum við starfsmennina með í ákvörðunarferlið?
Námskeið á vegum Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar haldið í Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum 21/10 ´05. Margrét Kolbeinsdóttir, Ingunn Ósk Ingvarsdóttir, Ásta Sigurðardóttir og Fanney Jósepsdóttir sóttu námskeiðið, alls 3,5 klst.
Konur – kynjamunur og jafnrétti.
Fyrirlestur fluttur af Þorgerði Einarsdóttur félagsfræðingi 24/10 ´05. Inga María Ingvarsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir sóttu fyrirlesturinn.
Trúnaðarmannanámskeið
á vegum VSFK haldið 28/10 ´05. Hjálmey Einarsdóttir trúnaðarmaður sótti námskeiðið.
Matreiðsla og hollir neysluhættir.
Námskeið hjá Símenntunarstofnun Kennaraháskóla Íslands 28. og 29/10 ´05. Matráðar skólans, Fanney Sigurðardóttir og Fríða Bjarnadóttir sóttu námskeiðið, alls 10 klst.
Góð samskipti á vinnustað.
Helga Jóhanna Oddsdóttir starfsþróunarstjóri Reykjanesbæjar kom á starfsmannafund 7/12 ´05 og fjallaði um samskipti á vinnustöðum, sýndi okkur myndband og svaraði fyrirspurnum.
Námskeið í einingakubbum.
Haldið í leikskólanum 10/1 ´06 fyrir starfsmenn deildanna. Inga María og Ragnhildur héldu námskeiðið v/yngri nema og Margrét v/eldri nema.
Kjarnanámskeið.
Inga María Ingvarsdóttir, Ásta Sigurðardóttir og Margrét Kolbeinsdóttir kenndu á Kjarnanámskeiði (sjá kynning á leikskólanum út á við).
Skólar á grænni grein.
Inga María Ingvarsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir sóttu fund hjá Landvernd fyrir verðandi Grænfánaskóla 16/3 ´06.
Öflug liðsheild – samstíga til framtíðar.
Málþing félags leikskólakennara haldið í KHÍ 17/3 ´06. Inga María Ingvarsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Tína Gná Róbertsdóttir, Fanney Jósepsdóttir og Margrét Kolbeinsdóttir sóttu málþingið.
Fyrirlestur um heyrnarskerðingu.
Margrét Gígja Þórðardóttir frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra kom á starfsmannafund 2/5 ´06 og hélt fyrirlestur um heyrnarskerðingu og svaraði fyrirspurnum.
Vinnustaðavandamál.
Inga María Ingvarsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir sóttu námskeiðið 11/5 ´06, alls 8 klst.
Táknmálskynning 30/5 ´06.
Fjórir kennarar skólans heimsóttu leikskólann Sólborg í Sandgerði og kynntu sér táknmálsumhverfi sem lögð er mikil áhersla á þar en það verður áhersluatriði á Mánavöllum á komandi vetri.
Hjálp í Viðlögum.
Námskeið haldið á vegum skólans á starfsmannafundi 15. ágúst ´06. Rúnar Helgason frá RKÍ hélt námskeiðið sem var í formi fyrirlestrar og æfinga. Allir starfsmenn leikskólans tóku þátt. Alls 4 klst.
Framhalds-, leikskólakennara- og þroskaþjálfakennaranám við KHÍ og HA og nemar
Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri stundaði fjarnám í stjórnun við KHÍ. Námið hófst haustið ´02 og því lauk í október ´06.
Sigrún Sigurðardóttir hóf fjarnám í KHÍ – þroskaþjálfaskor haustið 03.
Theodóra Mýrdal er í leikskólakennaranámi 3. ári (fjarnám) við KHÍ. Er í fæðingarorlofi fram í maí ´07.
Ragnhildur Sigurðardóttir stundaði fjarnám við HA í Mannauðsstjórnun frá sept. – des. ´05, alls 12 vikur.
Ragnheiður Valdimarsdóttir og Svava Stefánsdóttir 2. árs leikskólakennaranemar í KHÍ komu í vettvangsnám frá 30. jan. til 30. mars ´06. Æfingakennarar þeirra voru Ásta Sigurðardóttir og Ingunn Ósk Ingvarsdóttir.
Fríða Egilsdóttir leikskólaleiðbeinendanemi á 1. ári frá KHÍ var í vettvangsnámi í leikskólanum frá 20. mars til 28. apríl ´06. Æfingakennari hennar var Margrét Kolbeinsdóttir.
Skipulagsdagar
Skipulagsdagur 7. nóvember ´05.
Sigrún Helgadóttir frá Landvernd kom og kynnti hugmyndafræði Grænfánans. Einnig komu Jónína Lárusdóttir og Sigrún U. Einarsdóttir frá leikskólanum Fálkaborg og kynntu leiðir leikskólans að Grænfánanum. Kosinn var umhverfisnefnd skólans og staða umhverfismála leikskólans metin út frá gátlistum frá Landvernd.
Skipulagsdagur 20. apríl ´06.
Tuttugu starfsmenn heimsóttu þrjá Grænfánaskóla í Edinborg í Skotlandi dagana 19. – 22. apríl ´06. (sjá fskj. 4)
Skipulagsdagur 17. júlí ´06.
Fyrsti vinnudagur eftir sumarleyfi. Nýttur til að koma leikskólanum í eðlilegt horf eftir hreingerningu sem gerð var í sumarleyfinu. Einnig nýttur til foreldraviðtala nýrra barna og vistunarsamningar gerðir.
Fundir
Starfsmannafundir
eru einu sinni í mánuði. Á fundinum er upplýsingum og fróðleik komið á framfæri. Einnig eru fundirnir nýttir m.a. til að endurmeta og skipuleggja starf leikskólans. Í lok starfsmannafunda eru haldnir deildafundir, þar sem farið er yfir málefni deildanna.
Deildarstjórafundir
eru einu sinni í mánuði fyrir starfsmannafund. Á fundunum eru leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri og deildarstjórar. Fundirnir eru nýttir til að ræða faglegt starf leikskólans og taka sameiginlegar ákvarðanir. Einnig vettvangur fyrir leikskólastjóra að koma áleiðis upplýsingum til deildarstjóra.
Samráðsfundir leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra
eru á sameiginlegum tíma á skrifstofu.
Undirbúningstímar eru einu sinni í viku hjá hverjum starfsmanni sem vinnur inná deild. Ófaglærðir fá 2 tíma, leikskólakennarar 4 tíma og deildarstjórar 5 tíma á viku miðað við 100% starf. Í undirbúningstímum er hópastarfið og annað faglegt starf undirbúið og skipulagt. Einnig eru þeir nýttir til foreldraviðtala.
Fagfundir leikskólafulltrúa og leikskólastjóra í Reykjanesbæ eru haldnir einu sinni í mánuði á Fræðsluskrifstofu.
Handleiðslufundir
leikskólastjóra eru haldnir mánaðarlega í Kirkjulundi.
Leikskólafulltrúi
kemur á viðverufund til leikskólastjóra í leikskólann einu sinni í mánuði og heldur 1-2 fundi á ári með aðstoðarleikskólastjórum Reykjanesbæjar í Kjarna.
Sérkennslufulltrúi
heldur mánaðarlega fundi með leikskólastjóra deildarstjórum og kennara sem hefur umsjón með sérkennslu í leikskólanum og rætt er um þau börn sem njóta sérstuðnings, framvindu og leiðir og greiningar sem framundan eru og gefur fagleg ráð. Einnig hélt hann fund með kennurum sem sjá um sérkennslu í leikskólum Reykjanesbæjar, þar sem farið var yfir einstaklingsnámskrár og samskiptabækur.
Trúnaðarmannafundir;
Trúnaðarmaður FL í leikskólanum fór á trúnaðarmannanámskeið á Selfossi í október ´05.
Foreldrasamstarf
Áherslur og markmið
Þar sem börnin dvelja mikinn hluta dagsins í leikskólanum teljum við mikilvægt að góð samvinna og traust skapist milli foreldra og starfsfólks. Að gott upplýsingaflæði þurfi að vera fyrir hendi milli þessara aðila til þess að dvöl barnsins verði sem ánægjulegust. Við leggjum okkur fram við að bjóða foreldra velkomna hvenær sem þeir óska og hvetjum þá til að koma í heimsókn og fylgjast með starfseminni.
Foreldrafundir
Í janúar ´06
var foreldrum elstu barna skólans boðið á kynningarfund um væntanlega lestrarkennslu sem skólinn var að byrjaði á s.l. og mun standa yfir í 10 vikur. Sýnt í máli og myndum hvernig undirbúningi og framkvæmd er háttað og foreldrar hvattir til samstarfs. Leikskólakennarar hópanna kynntu markmið með starfinu og leiðir til að ná þeim Fundurinn var haldinn e.h. á vinnutíma og var góð mæting foreldra á fundinn.
7. júní ´06
var kynningarfundur fyrir foreldra nýrra barna. Á fundinum var foreldrafélagið kynnt, aðstoðarleikskólastjóri kynnti markmið og leiðir leikskólans í grófum dráttum. Deildarstjóri og starfsfólk Mánavalla kynnti hugmyndir að áhersluþáttum deildarinnar. Mjög góð þátttaka foreldra.
Foreldraviðtöl, fréttabréf
Foreldraviðtöl.
Í afmælismánuði barnsins er foreldrum boðið að fá viðtal við deildarstjóra sem hópstjóri/tengill viðkomandi barns situr einnig Á haustin gera hópstjórar ,,atferlisathugun” á hverju barni í sínum hópi og endurskoða hana í janúar. Í samtalinu er foreldrum m.a. greint frá niðurstöðum.
Fréttabréf
leikskólans voru fjögur á síðasta starfsári. Þau komu út í, desember, janúar, apríl og júní. Í fréttabréfinu er upplýsingum komið á framfæri við foreldra hvað varðar starfið í leikskólanum.
Foreldrafélag
Foreldrafélag Tjarnarsels er skipað sex fulltrúum foreldra og einum starfsmanni leikskólans.
Foreldrafélagið stóð m.a. fyrir:
- Aðalfundi í október ´05. Fundurinn hófst með fyrirlestri Kristjönu Gunnarsdóttur íþróttafræðings um hreyfingu og mataræði barna. Síðan voru venjuleg aðalfundar-störf.
- Jólaballi sem var 18. desember ´05 í Heiðarskóla. Það var vel sótt og áttu foreldrar og börn ánægjulega stund saman með góðum gestum.
- Gjöfum. Fulltrúi frá foreldrafélaginu kom 23. jan. ´06 og afhenti leikskólanum tíu snjóþotur að gjöf. Nokkrum dögum áður hafði formaður félagsins afhent leikskólanum margvísleg leikföng.
- Leiksýningu í febr. ´06 í Myllubakkaskóla að sjá leikritið um Selinn Snorra.
- Boli fyrir nemendur leikskólans í febr. ´06. Þeim nýjungum var beitt að þeir foreldrar sem höfðu greitt árgjald foreldrafélagsins fengu boli fyrir börn sín merkta leikskólanum.
- Nuddi fyrir starfsfólk leikskólans í mars ´06. Öllum starfsmönnum leikskólans var boðið upp á nudd og gladdi það okkur allar. Frábært framtak og sýnir hlýju í okkar garð. Áður hafði það gefið starfsfólki boli merkta leikskólanum.
- Páskaeggjaleit í skrúðgarðinum 11. apríl ´06. Foreldrafélagið gaf öllum nemunum páskaegg í tilefni páskahátíðarinnar. Útbúin var ratleikur í skrúðgarðinum þar sem nemendur skemmtu sér við að finna eggin.
- Afhendingu hjóla á sumarhátíðinni 2. júní ´06. Foreldrafélagið afhenti þrjú hlaupahjól til leikskólans að gjöf. Einnig færði það öllu starfsfólkinu ilmkerti að gjöf.
- Sölusýningu á sumarhátíð leikskólans þann 2.júní ´06 þar sem listaverk eftir leikskólabörnin voru til sölu. Þetta var einn liður í fjáröflun félagsins.
- Fréttabréfum í des. ´05 og febr. ´06.
- Kynningu á foreldrafélaginu 7. júní ´06 á fundi með nýjum foreldrum.
Samstarf – fræðsla - ráðgjöf
Ráðgjöf og samstarf við rekstraraðila
Leikskólinn hefur aðgang að ráðgjöf og þjónustu frá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Meðal annars við talmeinafræðing, sálfræðinga, sérkennslufulltrúa, leikskólafulltrúa, félagsráðgjafa og fleira fagfólk. Fræðsluskrifstofan hefur staðið fyrir námskeiðum og fyrirlestrum fyrir starfsfólk leikskólans. Leikskólafulltrúi hélt mánaðarlega fund með leikskólastjóra og kom hann þá í leikskólann. Leikskólafulltrúi fundar mánaðarlega sameiginlega með öllum leikskólastjórum Reykjanesbæjar. Einnig hélt hann einn fund með aðstoðarleikskólastjórum. Sérkennslufulltrúi kom mánaðarlega inn í skólann og fundaði með sérkennslustjóra um börn er njóta sérkennslu. Fylgist vel með og gefur okkur fagleg ráð (sjá Starfsmenn – fundir). Leikskólinn hefur einnig gott samstarf við starfsfólk bæjarskrifstofu, þjónustumiðstöðvar, ÍAV og Fasteignar h.f. Allt okkar samstarf við rekstraraðila hefur verið mikið og gott í gegnum árin.
Samstarf við aðra
- Samstarf við Greiningarstöð ríkisins var í tengslum við börn sem dvelja í leikskólanum og njóta sérkennslu.
- Samstarf við fjölskyldu og félagsþjónustu hefur verið mikið og gott í gegnum tíðina.
- Samstarf við svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi vegna starfsmanns í leikskólanum.
- Samstarf við Þroskahjálp á Suðurnesjum m.a. við sjúkraþjálfa og fjölskylduráðgjafa.
Samstarf við grunnskóla
Elstu börnin í leikskólanum fóru ásamt hópstjórum í heimsóknir í Myllubakkaskóla, Holtaskóla og Heiðarskóla.
Kennarar yngsta stigs grunnskóla og elsta stigs leikskólans og deildarstjórar hittust nokkrum sinnum á árinu til að ræða samstarf milli skólanna. Einnig hittust þeir á vordögum og farið var yfir gátlista sem fylltir höfðu verið út um þá nemendur sem fara í viðkomandi skóla.
Sérkennarar frá Holtaskóla komu á vordögum í leikskólann til þess að hitta þá nemendur sem njóta sérstuðnings og munu hefja nám í viðkomandi skólum að hausti.
Öryggismál
Þjónustuaðili gagnvart brunavörnum leikskólanna er Öryggismiðstöð Íslands.
Brunaæfing er einu sinni á ári á haustin. Deildarstjórar endurmeta fyrri rýmingaráætlanir einu sinni á ári. Að þessu sinni var æfingin 17. okt. ´05. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja komu og reykfylltu húsið. Húsið var rýmt skv. rýmingaráætlun hússins og þurftu nemendur tveggja deilda að forða sér út um glugga. Allt gekk skv. áætlun og tók skamman tíma.
Slökkvitæki eru yfirfarin einu sinni á ári.
Umferðarskólinn á vegum Umferðarstofu kemur orðið einu sinni á ári og er með umferðarfræðslu fyrir tvo elstu árgangana (sjá menningarviðburðir og aðrar skemmtanir).
Fulltrúi frá Vinnuverndareftirlitinu kom 16. maí ´06 og tók út vinnuaðstæður fyrir starfsfólk með tilliti til aðbúnaðs, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Fulltrúar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja komu í sept. ´04, tóku sýni svo sem af borðum og borðbúnaði og yfirfóru eldhús, salerni og annað aðbúnað og tók út slysahættur utandyra.
Öryggisfulltrúi og ,,húsvörður” leikskólans er Kristrún Samúelsdóttir.
Lokaorð
Viðburðaríku starfi í leikskólanum Tjarnarseli hefur verið gerð skil í þessari ársskýrslu. Á síðasta starfsárið höfum við verið nokkuð sýnilegar á landsvísu fyrir okkar frumkvöðlastarf í þróun læsis og 10 vikna lestrarnámskeið sem við bjóðum elstu nemendum okkar upp á . Tjarnarsel er fyrsti leikskólinn á landinu sem býður upp á slíkt formlegt lestrar- og skriftarnám. Stjórnendur leikskólans, leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri og deildarstjórar hafa verið með erindi á ýmsum ráðstefnum og gestakennarar á Starfsþjálfunarnámskeiði fyrir leiðbeinendur í leikskólum og á sumarnámskeið í framhaldsnám í Nám og kennsla ungra barna við KHÍ þar sem þeir hafa kynnt leiðir og hugmyndafræði lestrar- og skriftarkennslunnar. Einnig má nefna að dagblöð og staðarblöð hafa gert okkur góð skil og munum við halda ótrauðar áfram að þróa okkur.
Vettvangsferðir um okkar nánasta umhverfi og umhverfismennt er eru alltaf í hávegum hafðar og sífellt bætast við nýjungar í útikennslunni. Áttum m.a. samstarf við ,,Bláa herinn” en fulltrúi hans heimsótti leikskólann og kynnti undur hafsins í gegnum þemaverkefni um Hafið. Síðast liðið haustið (2005) varð Tjarnarsel að ,,skóla á grænni grein” og er stefnt að því á næstunni að fá Grænfánann sem er alþjóðleg viðurkenning á umhverfisfræðslu.
Á síðast liðnum árum hefur samstarf á milli Myllubakkaskóla og Tjarnarsels verið þróast Á síðasta ári fjölguðu gagnkvæmum heimsóknum nemenda og kennara og þátttaka í menningaviðburðum skólanna eins og þemadögum verið að aukast. Fyrir jólin 2005 skiptust Sunnuvallarnemendur og nemendur í 1. bekk í Myllubakkaskóla á jólakortum í fyrsta sinn.
Eins má nefna að við höfum á að skipa frábæru foreldrafélagi sem lætur líðan starfsmannanna sig varða ekki síður en barna sinna, því ánægt starfsfólk og ánægðir nemendur, skilar ánægðum foreldrum. Félagið hefur hlúð að okkur með persónulegum gjöfum s.s. nuddi o.fl. og gjöfum til leikskólastarfsins. Fyrir það viljum við þakka. Einnig fengum við afar jákvæðar niðurstöður í vefkönnum Reykjanesbæjar frá foreldrunum um starf okkar og það hvetur enn frekar að vinna að heill og framtíð okkar nemenda
Reykjanesbæ í september 2006
__________________________________________
Ragnhildur Sigurðardóttir aðstoðarleikskólastjóri
__________________________________________
Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri
Myllubakkaskóli bauð Sunnuvallanemum á þemadaga sem haldnir voru í skólanum 1/10 ´05.
Fyrsti bekkur EN úr Myllubakkaskóla kom í heimsókn 20/10 ´05 – liður í samstarfi milli skóla. Tóku þátt í starfi og leik og snæddu með nemendum.
Elstu nemendur okkar (Sunnuvellir) heimsóttu Myllubakkaskóla í nóv. ´05. Skólinn skoðaður og snætt með nemendum.
Í des. ´05 var Sunnuvallanemendum boðið í bókasafn Myllubakkaskóla og lesin fyrir okkur jólasaga.
Skipst var á jólakortum á milli Sunnuvallanema og 1 EN í Myllubakkaskóla í des. ´05.
Myllubakkaskóli var með þemadaga í skólanum og buðu Sunnuvallanemendum í heimsókn til að skoða hvað þau voru búin að gera úr verðlausu efni.
Helmingur Sunnuvallanema fór í leikfimitíma í Myllubakkaskóla á vordögum og hinn helmingur deildarinnar viku síðar.
Deildarstjóri Sunnuvalla og leikskólastjóri fóru á skilafund með grunnskólakennurum og deildarstjórum yngsta stigsins í grunnskóla 15/5 ´06.
Þrír kennarar frá sérdeild Holtaskóla komu 16/5 ´06 og skoðuðu þá nemendur sem fara frá okkur í Holtaskóla haustið ´06.
Deildarstjóri Sunnuvalla og aðstoðarleikskólastjóri fóru á fund 18/5 ´06 með sérkennslufulltrúa og fulltrúum sérdeilda grunnskólanna og ræddu sérkennslubörn sem eru að ljúka dvöl sinni í leikskólanum.