25. júní 2010
Formleg deildarskipti fóru fram í dag
Í dag kl. 14:00 fór fram formleg deildarskiptu, sem er árlegur viðburður í leikskólanum, þar sem öll börn deildarinnar færast ásamt leikskólakennurum sínum yfir á næstu deild, sem er ætluð þeirra aldursstig. Börnin mættu í fallegum röðum inni í sal leikskólans þar sem þau stóðu í röðum eftir deildum og sungu uppáhalds sönglag skólaársins. Í lokin afhentu fulltrúar viðkomandi deildar hana með formlegum hætti.
Til baka
|
|