Stjórn foreldrafélagsins
Formaður: Karólína Óskarsdóttir (Sól- og Sunnuvellir), netfang; fletta_13.@hotmail.com
Ritari:
María Óla (Ljósvellir) netfang; maria@keflavik.is
Gjaldkeri:
Særún T. Jensdóttir (Sólvellir) netfang; bjarnipall@mmedia.is
Meðstjórnendur
Fríða Bergmann (Sólvellir)
netfang: fridabh@simnet.is
Inga Dóra Karlsdóttir (Sunnuvellir) netfang; ingadorak@gmail.com
Jóhanna Sigurbjörnsdóttir (Sólvellir) netfang; johannab72@yahoo.com
Ástríður Sigurðardóttir (Mána- og Sólvellir) netfang; astasig71@hotmail.com
Tengiliður stjórnar við leikskóla: Inga María Ingvarsdóttir leikskólastjóri
netfang: inga.m.ingvarsdottir@reykjanesbaer.is
Ársskýrsla foreldrafélags Tjarnarsels
Starfsárið 2008-2009
Á síðasta aðalfundi bættust við 3 nýjir meðlimir í stjórn foreldrafélagsins þær María Óladóttir, Karólína Björg Óskarsdóttir og Fríða Bergmann.
Fyrsta verk nýju stjórnarinnar var að innheimta árgjaldið í félagið og gekk það mjög vel, um 59 greiddu í félagið. Þetta árið var ákveðið að senda árgjaldið í heimabankann hjá foreldrum og gafst það vel.
Jólaballið var haldið þann 7.desember 2008 í Heiðarskóla. Þangað mættu 87 börn ásamt foreldrum, forráðamönnum og systkinum. Að þessu sinni sá Léttsveit Tónlistarskóla Keflavíkur um stuðið og nokkrir jólasveinar frá þeim mættu á svæðið og dönsuðu með börnunum í kringum jólatréð og gáfu gjafir. Í jólapakkanum var Hr. Jóli fyrir strákana og Ungfrú Jóla fyrir stelpurnar. Sigurjónsbakarí gaf foreldrafélaginu kleinur og kökur og erum við þeim afar þakklát. Foreldrafélagið keypti svo piparkökur og kaffi, Lagnaþjónustan lánaði djúsvélina sína. Gjafirnar voru keyptar í samstarfi við aðra leikskóla í Reykjanesbæ
Fimmtudaginn 5.febrúar buðu foreldrafélög leikskóla Reykjanesbæjar upp á fyrirlestur um heilsusamlegt uppeldi í Kirkjulundi. Þrúður Gunnarsdóttir var með fyrirlestur um hvaða leiðir séu færar til að auka líkur á að börn þrói með sér heilsusamlegan lífstíl.
Rétt fyrir páska stóð foreldrafélagið fyrir eggjaleit í skrúðgarðinum fjórða árið í röð. Börnin höfðu þá málað steina sem starfsmenn sáu svo um að dreifa um skrúðgarðinn og börnin leituðu svo að. Þegar börnin höfðu fundið steinana fengu þau afhent lítið páskaegg, þeim til mikillar ánægju, sem foreldrafélagið hafði keypt.
Þann 19.mars fóru nemendur Tjarnarsels ásamt leikskólakennurum niður í Myllubakkaskóla til að horfa á brúðuleiksýninguna ,,Klókur ertu Einar Áskell”. Þessi sýning var í boði foreldrafélagsins.
Í byrjun maí seldum við 66°norður flíspeysur og húfur á mjög góðu verði og voru margir foreldrar sem nýttu tækifærið og keyptu á börnin sín.
Um miðjan maí færðum við starfsfólki Tjarnarsels smá meðlæti með morgunkaffinu, bæði heimabakað og keypt í búð. Okkur finnst að það þurfi að sýna í verki hversu vel við kunnum að meta það frábæra starf sem fer hér fram á Tjarnarseli.
7.júní´09 stóð foreldrafélagið fyrir sveitaferð á Grjóteyri í Kjós. ____ manns fóru í sveitaferðina. Að þessu sinni var farið á einkabílum. Þegar búið var að skoða dýrin og leika sér var borðað nesti sem hver og einn kom með. Ferðin gekk mjög vel og voru allir ánægðir með daginn.
5.júní´09 hélt leikskólinn sumarhátíðina sína. Á sumarhátíðinni voru að sjálfsögðu seld listaverk barnanna sem tókst einkar vel, enn sem fyrr og fór peningurinn í sjóð foreldrafélagsins sem er síðan notaður til handa börnunum okkar. Foreldrafélagið færði leikskólanum veglega gjöf þetta árið, íslenska fánann og eina sandgröfu.
Í sumar kom Brúðubíllinn 2x og sýndi skemmtileg leikrit í Skrúðgarðinum í Keflavík. Var þetta enn eitt samstarfsverkefnið sem foreldrafélögin í Reykjanesbæ stóðu að við mikinn fögnuð leikskólabarna hér á svæðinu.
Einn meðlimur foreldrafélagsins hverfur nú á braut en það er hann Rúnar Helgason. Rúnar starfaði í fjögur ár og vil ég nota tækifærið og þakka honum fyrir frábært starf í þágu félagsins.
Reykjanesbær, 25.október 2009
F.h. stjórnar
Jane Petra Gunnarsdóttir
ritari