Tómas Ingi teiknaði mynd af regnboga og spurði Aldísi hvað hún héldi að hann hefði teiknað. Aldís sagðist nú ekki vita það "Þetta er eitthvað sem á heima í himninum þegar það er rigning og sól".
Ingunn spurði Aron Gauta hvort hann væri að gista hjá ömmu og afa. "Já ég er sko að gista í mörg ár alveg í heila viku"
Það er pizza með skinku og osti í matinn, Georg fær sér sneið og sér anans á pizzunni "Ingunn ég borða ekki ananas" I: "taktu hann þá bara af pizzunni " Þegar Georg er búin með sneiðina segir hann "Ingunn má ég fá ananas. I: "borðar þú ananas" G: "já" Ingunn nær í pizzusneið með miklum ananas, Georg horfir á pizzusneiðina og segir "Ingunn ég borða ekki ananas.
Harpa Rós segir að hún ætli að verða söngkona og hárgreiðslukona þegar hún verður stór . "Ég ætla að vinna hjá Helenu þegar ég er orðin hárgreiðslukona ætlar þú (Ingunn) ekki að panta tíma hjá mér þegar ég er orðin, hárgreiðslukona.
Hafliði sagði: Ég kom með lunda, hann er í frystinum. Hann er sko dauður, það var einhver maður sem drap hann, pabbi drap hann ekki, ég ætla að gefa ömmu Kristrúnu, ég borða lunda og líka sel.
Sæþór, Valur og Haflið sitja við matarborðið og eru að tala saman, Sæþór segir "vitið þið hvernig fiskur er fiskibollur?" Valur og Hafliði svara neitandi. Þá segir Sæþór "Það er svona hringlóttur fiskur eins og fiskibolla er hann er líka með gadda á sér, það þarf bara að taka þá út og þá er fiskibolla tilbúin.